Crisp Cranberries Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, blöðruermum og breiðum köntum í stroffprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 226-38 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 67 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 57 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 14,3. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 13. og 14. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-1 (á við um stroff í hálsi): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 2 lykkjur brugðið. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ATH: Í stærð S, M, XL og XXL stendur fjöldi mynstureininga í stroffi á oddatölu – í þessum stærðum verður þess vegna að auka út í 2 mynstureiningum á eftir hvorri annarri mitt í stykki (= mitt að aftan) í fyrsta skipti þegar aukið er út. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkju sléttprjón (laskalína), í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í útaukningsumferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING-2 (á við um mitt undir ermum): Aukið út á undan prjónamerki þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= 1 lykkja fleiri). Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 3 cm. Fellið síðan af fyrir 4 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-9-8½-8½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 53-56-56-59-59-62 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 3 cm, setjið 1 prjónamerki á eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan – stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 4 cm, aukið út um 7-8-8-8-8-9 lykkjur með því að auka út aðra hverja 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 60-64-64-67-67-71 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-7-8-8 cm, aukið út þær 2 lykkjur brugðið sem eftir eru til 3 lykkjur brugðið = 67-71-71-75-75-79 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-8-8-9-9 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-0-0-0-4-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 71-71-71-75-79-79 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 9. Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu – ATH: Lykkjur eru ekki prjónaðar þegar prjónamerkin eru sett. Teljið 15-15-15-15-16-16 lykkjur (= framstykki) setið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalykkja), teljið 8-8-8-10-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalykkja), teljið 21-21-21-21-23-23 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalykkja), teljið 8-8-8-10-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalykkja). Nú eru 15-15-15-15-16-16 lykkjur eftir í umferð á eftir síðustu laskalínulykkju (= framstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalykkjur – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 9-11-13-14-14-16 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 143-159-175-187-191-207 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki í kanti í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 25-27-29-31-32-35 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 26-30-34-36-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 41-45-49-53-55-61 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 26-30-34-36-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 25-27-29-31-32-35 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 103-111-119-127-135-147 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 19-19-19-18-18-18 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8-8-8-9-9-9 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff fram og til baka svona í 8-8-8-9-9-9 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjóni, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 26-30-34-36-36-38 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 9 – prjónið að aukið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 32-36-40-42-44-46 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-8-8 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Þegar ermin mælist 6 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki. Endurtakið úrtöku á undan prjónamerki þegar ermin mælist 9 cm frá skiptingu og á eftir prjónamerki þegar ermin mælist 12 cm frá skiptingu = 28-32-36-38-40-42 lykkjur. Þegar ermin mælist 16 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Þegar ermin mælist 18 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki. Aukið út til skiptis á undan og á eftir prjónamerki í öðrum hverjum cm alls 10-8-6-6-6-6 sinnum (5-4-3-3-3-3 sinnum hvoru megin við prjónamerki) = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-39-38-37-35-34 cm frá skiptingu (það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 5-5-5-6-6-6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 26-28-30-32-32-34 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-5-5-6-6-6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 46-44-43-43-41-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Ann-Britt wrote:
När det står (inklusive 5 kantmaskor) betyder det att de är inräknade i maskantalet? Tex om jag stickar st L och det står lägg upp 59 maskor. Ska jag då lägga upp 59 totalt eller 59+10? /Ann-Britt
25.03.2024 - 01:29DROPS Design answered:
Hej Ann-Britt. Ja de är inräknade, så du lägger upp totalt 59 maskor. Mvh DROPS Design
27.03.2024 - 14:15Phyllis M Gulliver wrote:
Im ready to start the crisp cranberries cardigan but only have a size 8mm needle. could i use an 8 needle and go to the next size in the pattern ..cant get a needle where i live and im not near the city is there any options i could use
06.11.2023 - 20:16DROPS Design answered:
Hi Phyllis, Yes, you will have to increase the number of stitches if you use a smaller size needle. Whether just going up a size will be correct can only be measured by working a swatch. You might need to do some maths and adjust both stitch number and row number to get the correct size. Good luck and happy knitting!
07.11.2023 - 06:55Phyllis M Gulliver wrote:
I am wanting to order the wool for the Crisp Cranberries Cardigan 226-38 i wanted to use the Drops Andes. i am doing a medium and calculated the amount of yarn and got 9 balls, just wanted to make sure if i have the right amount before i order
03.10.2023 - 06:01DROPS Design answered:
Hi Phyllis, As Drops Wish and Andes are in the same yarn group, the pattern can be used with both types of yarn. You need 750g yarn for size M, which will be 8 balls of Andes as it comes in 100g balls (with a little to spare). Work a swatch to check your knitting tension but you should be able to use stitch counts and rows as specified in the pattern. Happy knitting!
03.10.2023 - 06:46Barbara wrote:
To get buttonhole in the middle of the band should be: “knit two together, yarn over, knit two”.
23.05.2023 - 13:00Angela wrote:
Please correct the stitches number in the yoke division. Size M: I have 71 sts, i place the markers after 15,8,21,8 and the last stitches are 19, cause 15+8+21+8+15= 67.
02.02.2022 - 12:58DROPS Design answered:
Dear Angela, the markers should be inserted each in one stitch, so that you will get in M: 15+1+8+1+21+1+8+1+15=71 sts. Happy knitting!
02.02.2022 - 14:32Beatrice Mikha wrote:
How can I adapt this to straight needles?
14.01.2022 - 11:54DROPS Design answered:
Dear Mrs Mikha, please read more how to adapt a pattern onto straight needles here. Happy knitting!
14.01.2022 - 16:46