DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Snow yarn
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Crisp Cranberry

Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, blöðruermum og breiðum köntum í stroffprjóni. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 226-37

#crispcranberrysweater

DROPS Design: Mynstur ee-723
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
550-650-700-750-850-900 g litur 91, vínber

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 60 - 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 60 - 80 cm fyrir kanta.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING-1 (á við um stroff í hálsi):
Aukið út 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 2 lykkjur brugðið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.
ATH: Í stærð S, M, XL og XXL stendur fjöldi mynstureininga í stroffi á oddatölu – í þessum stærðum verður þess vegna að auka út í 2 mynstureiningum á eftir hvorri annarri í lok umferðar í fyrsta skipti þegar aukið er út.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkju sléttprjón (laskalína), í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í útaukningsumferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING-2 (á við um mitt undir ermum):
Aukið út á undan prjónamerki þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= 1 lykkja fleiri).
Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 42-45-45-48-51-51 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið).
Þegar stroffið mælist 3 cm, setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan) – stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Þegar stroffið mælist 4 cm, aukið út um 7-8-8-8-9-9 lykkjur með því að auka út aðra hverja 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 49-53-53-56-60-60 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 7-7-7-7-8-8 cm, aukið út þær 2 lykkjur brugðið sem eftir eru til 3 lykkjur brugðið = 56-60-60-64-68-68 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 8-8-8-8-9-9 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 58-66-66-70-74-74 lykkjur.
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 9. Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu – ATH: Lykkjurnar eru ekki prjónaðar þegar prjónamerkin eru sett.
Teljið 10-12-12-12-13-13 lykkjur (= ca ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínulykkja), teljið 8-8-8-10-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínulykkja), teljið 19-23-23-23-25-25 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínulykkja), teljið 8-8-8-10-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínulykkja). Nú eru 9-11-11-11-12-12 lykkjur eftir í umferð á eftir síðustu laskalínulykkju (= ca ½ bakstykki).
Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalínulykkjurnar – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 10-11-13-14-14-16 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 138-154-170-182-186-202 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki í kanti í hálsmáli.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 22-24-26-28-29-32 lykkjur eins og áður (= ca ½ bakstykki), setjið næstu 26-30-34-36-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 43-47-51-55-57-63 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 26-30-34-36-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 21-23-25-27-28-31 lykkjur (= ca ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 98-106-114-122-130-142 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 17-17-17-16-16-16 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8-8-8-9-9-9 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8-8-8-9-9-9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 26-30-34-36-36-38 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 9 – prjónið að aukið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 32-36-40-42-44-46 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-8-8 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Þegar ermin mælist 6 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki. Endurtakið úrtöku á undan prjónamerki þegar ermin mælist 9 cm frá skiptingu og á eftir prjónamerki þegar ermin mælist 12 cm frá skiptingu = 28-32-36-38-40-42 lykkjur.
Þegar ermin mælist 16 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Þegar ermin mælist 18 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki. Aukið út til skiptis á undan og á eftir prjónamerki í öðrum hverjum cm alls 10-8-6-6-6-6 sinnum (5-4-3-3-3-3 sinnum hvoru megin við prjónamerki) = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-39-38-37-35-34 cm frá skiptingu (það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Nú eru eftir ca 5-5-5-6-6-6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 26-28-30-32-32-34 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-5-5-6-6-6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 46-44-43-43-41-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.12.2021
LASKALÍNA:... Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 226-37

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crispcranberrysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Cynthia skrifaði:

I don't understand how this finished piece ends up measuring 54 centimeters (for S) from the shoulder to the hem if the pattern says to continue for 17 cm in stockinette and then 8 cm ribbing. I'm almost positive I didn't mess up before splitting for sleeves and yet I end up about 10 centimeters short. I added 2 additional centimeters also. I'm in the middle of the ribbing and will have to frog it to lengthen the body.

06.02.2025 - 00:21

country flag Philippine Cochet skrifaði:

Bonjour, J'aimerais réaliser ce modèle cependant j'aimerais faire une taille un peu oversize. Normalement je porte du S (je fais 1m62). Le modèle est-il déjà oversize ou vaut-il mieux que je prévois de le faire en M ? Je vous remercie, Bonne journée

31.01.2025 - 14:19

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Cochet, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la taille et comparez ces mesures à celles du schéma du bas de page pour choisir la taille correspondante ou faire les ajustements nécessaires. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

31.01.2025 - 16:06

country flag Juliana skrifaði:

Another question, I began the cast on using 8mm drops needles, and drops snow yarn for size S. I made the gauge swatch, it was perfect. So I did continental cast on 45 stitches (I tried on both 60 cm and 40 cm cable), and it was too tight to be able to knit in the round on my needles. I can't figure out what I'm doing wrong to begin the sweater. Any tips appreciated!

24.01.2025 - 23:13

DROPS Design svaraði:

Dear Juliana, sometimes the cast on edge may be a little too tight. To avoid this you can use a larger needle to cast on and then change to your main needle so that you can work the stitches more easily. Remember that the gauge swatch is for stocking stitch with 9mm needles (since the 8mm needles are used for the rib edges only, so the gauge won't fully match the one calculated) Happy knitting!

25.01.2025 - 23:05

country flag Ariana skrifaði:

Novice question here, I love this pattern, but my yarn belongs in category D (120m/100g) or 7 ish wpi. Would I still be able to make this pattern work? Or should I make some adjustments?

14.01.2025 - 17:14

DROPS Design svaraði:

Dear Ariana, if you don't get the correct tension, ie 10 sts x 14 rows stocking stitch = 10 x 10 cm, you might have to make a new search for a jumper matching your tension - find for ex. all jumpers yarn group D here - but note that you can also check with your own tension. Happy knitting!

15.01.2025 - 08:12

country flag Juliana skrifaði:

Hello! - first regarding the following section " When the rib measures 4 cm = 1½", increase 7-8-8-8-9-9 stitches by increasing every other purl-2 section to purl-3 – read INCREASE TIP-1 = 49-53-53-56-60-60 stitches. Increase 1 stitch at the end of a purled section by making 1 yarn over. " Do we make 1 yarn over after the third purl stitch or before we make the third purl stitch ? Second, "On the next round purl the yarn overs twisted" is this referring to the twisted purl? Thanks!

14.01.2025 - 16:13

DROPS Design svaraði:

Dear Juliana, for increasing, you can do it either way, it will not influence the look of the final sweater much. I would increase before the last purl stitch though. As for the yarnovers, you should purl them in a way that the "legs" of the stitch corsses each other, tus filling out the whole created by the yarnover. Happy Knitting!

14.01.2025 - 16:30

country flag Micha skrifaði:

Size XS "After the last increase to raglan there are 138 sts on needle. Cont. working w/out further inc. until piece measures 20cm = 8" from marker." How do I continue making decorative holes w/out increasing? The sample image shows holes all the way to the base of the sleeve. If I continue knitting now, the holes will stop early.

29.12.2024 - 22:56

DROPS Design svaraði:

Dear Micha, usually the increases should practically end right at the 20 cm / 8 " mark; you might need to work just a few extra rows without holes, which won't be too noticeable. However, if you have many rows left or you want to work holes in these few last rows as well you can continue the increases, but adjusting the number of stitches. For example, work as follows starting right before each raglan line: knit 2 together, 1 yarn over, raglan-line, 1 yarn over, slip 1 stitch knitwise, knit 1, pass slipped stitch over knitted stitch. This way you will continue with the holes while keeping the same number of stitches in the row. Happy knitting!

30.12.2024 - 23:52

country flag Friedl skrifaði:

Het werk telt 66 steken voor maat S wanneer de markeringen voor de raglan worden ingevoegd. Er staat na 12, 8, 23, 8 en 11 steken over. Als je dit optelt kom je aan 62 steken, maar je moet er 66 hebben?

26.11.2024 - 15:56

DROPS Design svaraði:

Dag Friedl,

Je voegt de markeerdraden in de steken en niet tussen de steken, vandaar het verschil van 4 steken.

28.11.2024 - 20:01

country flag Perly Ekman skrifaði:

Hej, får inte riktigt ihop matematikeni oket och dess höjd, beräkningar utifrån stl. M: 10cm ska motsvara 14varv = ca 0.7cm per varv Så vid slutet av halskanten har vi 8cm + 0.7cm för sista varvet räta, 13 upprepningar av slätstickning vv/ ökningar vv blir 26 varv = strax över 18cm, så totalt ca 27cm men i nästa steg ska vi sticka rätstickning tills arbetet mäter 24cm?

13.11.2024 - 15:26

country flag Roni Axelrod skrifaði:

I haven’t knitted top down yet. Are the instructions easy to follow?

22.10.2024 - 00:25

DROPS Design svaraði:

Hi Roni, As a first knit-top-down pattern, working raglan is perhaps not the easiest (maybe a round yoke with even increases would be easier). But if you are an experienced knitter, then you should be able to follow the pattern. Happy crafting!

22.10.2024 - 06:31

country flag Francesca skrifaði:

DROPS Design answered: Buongiorno Francesca, ha seguito le istruzioni di lavaggio riportate sull'etichetta? Può provare a lavorare con Wish o Andes. Buon lavoro! Buongiorno Garnstudio, ma sulla vostra etichetta non ci sono le istruzioni di lavaggio….dove si trovano?

07.04.2024 - 08:13

DROPS Design svaraði:

Buonasera Francesca, a questo link può trovare le istruzioni per la cura dei filati. Buon lavoro!

01.05.2024 - 21:56