Gisela Hohn skrifaði:
Hallo DROPSER, ich möchte dieses Modell für den Neffen stricken, er trägt normalerweise Größe L. Welche Größe in Damen nehme ich da? Danke im voraus!
15.02.2022 - 14:16
Doreen skrifaði:
How can I download your free pattern
16.01.2022 - 18:49DROPS Design svaraði:
Dear Doreen, you can download them by clicking on the print button and then, on the printer options, selecting Save as PDF. Happy knitting!
16.01.2022 - 20:37
Sílvia skrifaði:
Hola, Cuando estará el patrón en español? Gracias
07.11.2021 - 10:24DROPS Design svaraði:
Hola Silvia, estos patrones son de la nueva colección y estamos trabajando para traducirlos al español lo antes posible.
07.11.2021 - 13:52
Isabelle skrifaði:
Hallo liebes Drops-Team, ich gehe davon aus, dass hier ein Übersetzungsfehler vorliegt: "Dann 10 cm im Rippenmuster stricken (= 2 vridd Masche rechts / 2 Maschen links). " Soll das heißen = 2 rechts verschränkte Maschen? Vielen Dank für die Antwort!
03.11.2021 - 09:42DROPS Design svaraði:
Liebe Isabelle, Sie sind ja rechts :) danke für den Hinweis, Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!
03.11.2021 - 12:15
Egle skrifaði:
Name: Frost
10.08.2021 - 11:30
Inessa Bickmeyer skrifaði:
Ich würde!!!
10.08.2021 - 00:22
Ashley Scott skrifaði:
Snow Drops!
09.08.2021 - 11:53
Johanne Kaas Laursen skrifaði:
Name: The blue hour (Blå time)
04.08.2021 - 19:12
Patricia Thibert skrifaði:
On part à la montagne
03.08.2021 - 17:17
North Gate Sweater#northgatesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, marglitu mynstri og háum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-14 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 13. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 13. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 12. og 13. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 52-56-56-60-60-64 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með litnum gallabuxnablár í DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 48-52-56-60-68-72 lykkjur – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 12-13-14-15-17-18 mynstureiningar með 4 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 144-156-168-180-204-216 lykkjur í umferð. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með litnum gallabuxnablár. Í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 144-156-176-184-204-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-25-25-27-29-31 cm, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 21-23-26-27-31-34 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 30-32-36-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 42-46-52-54-62-68 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-32-36-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 21-23-26-27-31-34 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 96-104-116-124-140-152 lykkjur. Haldið áfram með litnum gallabuxnablár, prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist 15-17-19-19-19-19 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið JAFNFRAMT út 12-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir = 108-116-128-136-156-168 lykkjur. Lykkjur eru auknar út til að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMI: Setjið 30-32-36-38-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi með litnum gallabuxnablár = 36-38-42-46-48-50 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 11-10-7-6-4-4 cm millibili alls 3-3-4-4-5-5 sinnum = 30-32-34-38-38-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 27-26-28-26-25-23 cm frá skiptingu – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 10 cm að loka máli). Nú eru auknar út 10-8-10-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 37-36-38-36-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northgatesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.