Cecilia Muñoz skrifaði:
Como cambiar el color de la lana en tejido circular cuando hay un aumento...se agradece
09.06.2025 - 17:26
Françoise BASTIAN skrifaði:
Peut-on transformer ce modèle pull en gilet ?
27.05.2025 - 11:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bastian, probablement, retrouvez ici tous les modèles de gilets & vestes avec ce groupe de tension tricotés de haut en bas avec empiècement arrondi, pour vous inspirer. Bon tricot!
27.05.2025 - 14:29
Ana Isabel Rodriguez Sío skrifaði:
Cuando se cambia para trabajar con agujas de 80 cm?
22.01.2025 - 13:12DROPS Design svaraði:
Hola Ana Isabel, cuando estés trabajando el canesú, una vez el número de puntos sea incómodo para trabajar con la aguja corta puedes cambiar a las agujas de 80cm. No hay una vuelta concreta, depende de cada tejedor.
25.01.2025 - 17:14
Sette Ivana skrifaði:
Buongiorno, sono Ivana non capisco bene il diagramma quando dice 16 ripetizioni ok capisco ...ma di 6 maglie non capisco grazie
10.01.2025 - 19:01DROPS Design svaraði:
Buonasera Ivana, il diagramma A.1 inizia con 6 maglie e si lavorano 16 ripetizioni sul giro. Buon lavoro!
10.01.2025 - 20:11
Sarah skrifaði:
Ich habe drei Dinge anders gemacht als in der Anleitung: 1) Für Größe m habe ich 350g blau statt 300g benötigt. 2) Die Zunahmen habe ich aus dem Querfaden genommen, ansonsten bekam ich Löcher. 3) Die Ärmel habe ich gut 6 cm länger gemacht. Der Pulli ist schnell und einfach zu stricken und sieht toll aus. Das Garn Drops Air ist wirklich sehr schön leicht und warm.
09.01.2025 - 22:03
Helen Hewlett skrifaði:
I have noticed there are no short rows for the neck shaping. Will this cause a problem with the fit ? If I wanted to add them where would be the best place ?
09.01.2025 - 00:52DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hewlett, that's right there is no short rows on this jumper, this means neckline will be as high on back piece as on front piece. If you want to add some,you can add them before starting diagram. Happy knitting!
09.01.2025 - 17:47
Cam skrifaði:
Hi, I’m a little confused about the yoke section - the pattern says to do repetitions of 6 stitches for the snowflakes, but the chart starts with a row of 7 stitches (which means I have the wrong number of stitches to begin the snowflakes). Am I misreading? Thanks.
06.01.2025 - 21:22DROPS Design svaraði:
Dear Cam, on first row in diagram you repeat the 6 stitches, and you will increase as shown in diagram, ie on 2nd row you will have 7 sts in each A.1 all the round - increase as shown in diagram, when all increases are done, there will be 16 sts in each A.1. Happy knitting!
07.01.2025 - 09:39
Antonella skrifaði:
Come faccio a capire la taglia S a che misure corrisponde
06.01.2025 - 13:43DROPS Design svaraði:
Buonasera Antonella, scorrendo in fondo alla pagina trova lo schema con le misure per le diverse taglie. Buon lavoro!
07.01.2025 - 19:33
Marylene skrifaði:
Je voudrai un pull top down facile à faire je suis débutante pour faire se pull
05.01.2025 - 17:26
Evs skrifaði:
Leider sitzt die Passe sehr weit oben (Größe M). (Kann man gut an den geposteten nachgestrickten Pullovern in der Galerie sehen, haben wenig Ähnlichkeit mit dem Original. ) Es hätte gut noch eine dritte Sternenreihe mit entsprechendern Zunahmen gepasst. Insgesamt sind die Maße zu klein/eng gehalten.
04.12.2024 - 09:12
Merry Stars#merrystarssweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa / jólapeysa úr DROPS Air. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með hringlaga berustykki og snjókristallamynstri. Stærð XS - XXL. Þema: Jól.
DROPS 228-49 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 95-100-105-110-115-120 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með litnum gallabuxnablár í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fækkið nú um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist alls 12 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-16-18-26-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 84-96-102-114-120-126 lykkjur. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.1 (= 14-16-17-19-20-21 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og lestu LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 224-256-272-304-320-336 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með litnum gallabuxnablár, þar sem aukið er út um 8-0-0-0-4-8 lykkjur jafnt yfir = 232-256-272-304-324-344 lykkjur. Haldið áfram með litnum gallabuxnablár og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 34-38-40-44-49-53 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-76-80-88-98-106 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-38-40-44-49-53 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 148-164-176-192-216-236 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum gallabuxnablár. Prjónið þar til stykkið mælist 27-27-27-27-27-27 cm frá skiptingu (eða óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum gallabuxnablár. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-6-4-3-2½-2½ cm millibili alls 5-6-8-11-11-12 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 38-36-36-35-34-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 4-2-4-2-4-2 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Hægt er að brjóta uppá kantinn í hálsmáli þannig að hann verði tvöfaldur, eða það er líka hægt að nota hann sem háan kraga. Ef stykkið á að vera með tvöföldum kanti í hálsmáli þá er það gert þannig: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #merrystarssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-49
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.