Ninne skrifaði:
Hej! Är det ok att göra om stl till m/l istället? Mvh Ninne
01.02.2022 - 19:34DROPS Design svaraði:
Hej Ninne. Om du ska göra om i storlekarna så måste du se till att mönster/diagram passar med maskantalet, så det enklaste är att följa de storlekar som finns. Mvh DROPS Design
04.02.2022 - 12:05
Nelly ROMANO skrifaði:
Bonjour Il n'est précisé nullepart comment on doit tricoter les rangs sur l'envers. Merci d'avance pour votre réponse.
03.01.2022 - 18:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Romano, les diagrammes montrent tous les rangs, ceux sur l'endroit et ceux sur l'envers; lisez les diagrammes de bas en haut et de droite à gauche sur l'endroit puis de gauche à droite sur l'envers. Autrement dit, 1 croix = 1 m jersey envers; 1 case blanche = 1 m jersey endroit. Encore plus d'infos ici. Bon tricot!
04.01.2022 - 07:04
Jo skrifaði:
Name suggestion: Arctic Cloud
26.08.2021 - 09:12
Lynn skrifaði:
An extra layer that looks soo comfy & warm!
03.08.2021 - 19:48
Cinzia skrifaði:
Snowball
03.08.2021 - 14:39
Snow Town#snowtownvest |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Polaris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, með köðlum, garðaprjóni og háum kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-28 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Að lokum er prjónaður hár kragi í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 52-60-68 lykkjur á hringprjón 12 með DROPS Polaris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 4 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12 lykkjur, 1 lykkja slétt, A.1 (= 34 lykkjur), 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12 lykkjur, 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, 5-9-13 lykkjur brugðið, A.2 (= 34 lykkjur), 5-9-13 lykkjur brugðið, 4 kantlykkjur í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 41 cm í öllum stærðum. Prjónið nú garðaprjón yfir ystu 6-7-8 lykkjur í hvorri hlið, þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður. Prjónið 4 umferð svona (= 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-7-8 lykkjur í hvorri hlið). Nú eru felldar af lykkjur fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 2-3-4 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 2-3-4 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina = 48-54-60 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, 3-6-9 lykkjur brugðið, A.2 (= 34 lykkjur), 3-6-9 lykkjur brugðið, 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 61-63-65 cm, fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.2. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um miðju 19-21-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 11-13-15 lykkjur eftir á öxl. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.2 þegar lykkjum er fækkað halda áfram slétt eða brugðið eins og í A.2. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 52-60-68 lykkjur á hringprjón 12 með DROPS Polaris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12 lykkjur, 1 lykkja slétt, A.1 (= 34 lykkjur), 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12 lykkjur, 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, 5-9-13 lykkjur brugðið, A.2 (= 34 lykkjur), 5-9-13 lykkjur brugðið, 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 41 cm í öllum stærðum. Prjónið nú garðaprjón yfir ystu 6-7-8 lykkjur í hvorri hlið, þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður. Prjónið 4 umferð svona (= 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-7-8 lykkjur í hvorri hlið). Nú eru felldar af lykkjur fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 2-3-4 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 2-3-4 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina = 48-54-60 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, 3-6-9 lykkjur brugðið, A.2 (= 34 lykkjur), 3-6-9 lykkjur brugðið, 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 57-59-61 cm, fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.2. Í næstu umferð frá réttu eru miðju 13-15-17 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 15-17-19 lykkjur eftir á öxl. Lykkjur eru síðan felldar af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 11-13-15 lykkjur eftir á öxl. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.2 þegar lykkjum er fækkað halda áfram slétt eða brugðið eins og í A.2. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana, þannig að ekki myndist þykkur saumur, frá handvegi og niður þar til 20 cm eru eftir í hvorri hlið (= klauf). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn, prjónið upp frá réttu ca 44 til 56 lykkjur með hringprjón 12 í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan og stillið af að heildar fjöldi lykkja sé deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Prjónið stroff svona í 12 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowtownvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.