DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rosé Bubbles Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Snow eða DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-23
DROPS Design: Mynstur ee-729
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
650-750-800-900-950-1050 g litur 13, púður

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
450-550-600-650-700-750 g litur 15, malva

DROPS TALA, Marble NR 630: 5-5-6-6-6-6 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 1 lykkju sléttprjón (laskalína) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Uppslátturinn er prjónaður þannig – frá röngu:
Á UNDAN LASKALÍNU:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR LASKALÍNU:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið aftur til baka á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan í þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni á ermum og í mynstri á framstykki/bakstykki.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 111 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 9,4.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 9 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu með ca 9-9-8-8½-8½-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 74-74-78-78-82-82 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 7 með DROPS Snow eða DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 12 cm. Munið eftir affellingu fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan!
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 3 lykkjur jafnt yfir, lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan = 71-71-75-75-79-79 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Setjið 1 prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8-8-10-10-12-12 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8-8-10-10-12-12 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fyrstu útaukningu fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið.
Haldið svona áfram með mynstur og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 11-14-16-19-21-23 sinnum hvoru megin við laskalínu (sjá ör í þinni stærð í A.1, A.2 og A.3) – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Eftir síðustu útaukningu eru 159-183-203-227-247-263 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-31 cm frá prjónamerki.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 27-30-32-35-37-39 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-36-42-48-54-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 45-51-55-61-65-69 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 30-36-42-48-54-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 27-30-32-35-37-39 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 111-123-131-147-155-167 lykkjur. Byrjið í þeirri umferð í A.4 til A.6 sem gerir að mynstrið passi yfir lykkjur frá A.1 til A.3. Prjónið þannig – frá réttu: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.4, A.5 er prjónað 1-1-1-1-2-2 sinnum, A.6, 2-8-12-20-0-6 lykkjur sléttprjón, A.4, A.5 er prjónað 3-3-3-3-5-5 sinnum, A.6, 2-8-12-20-0-6 lykkjur sléttprjón, A.4, A.5 er prjónað 1-1-1-1-2-2 sinnum, A.6, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 23-23-24-24-23-22 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú á að auka út lykkjur til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á neðst niðri dragi stykkið saman.
Prjónið 1 umferð brugðið frá réttu þar sem aukið er út um 11-15-15-15-15-15 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 122-138-146-162-170-182 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 6 lykkjur í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 30-36-42-48-54-58 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 36-42-48-56-62-68 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 15-8-8-4-3½- 3 cm millibili alls 2-3-4-6-7-8 sinnum = 32-36-40-44-48-52 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 30-29-29-27-27-26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm.
Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 38-37-37-35-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki:

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það á að myndast gat

symbols = Kúla: prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, í sömu lykkju (= 3 lykkjur), prjónið 5 umferðir sléttprjón yfir þessar lykkjur, í 6. umferð eru allar 3 lykkjurnar prjónaðar slétt saman = 1 lykkja
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Dominika wrote:

Witam! Nie rozumiem kiedy dokładnie mam przejść z wzorów A1-A3 do wzorów A4-A6. Robię sweter w rozmiarze S po dodaniu 11 razy oczek na reglan utknęłam w miejscu długość mojej robótki to 18 cm więc muszę jeszcze 3 cm dorobić żeby wykonać podział na przód , tył i rękawy. Nie mam pojęcia jakie schematy mam dalej przerabiać ,schematy A1-A3 są z oczkami dodawanymi a A4 A6 są schematami z liczbą dodanych oczek po podziale robótki . Pierwszy raz mam problem z waszym wzorem

10.02.2024 - 13:48

DROPS Design answered:

Witaj Dominiko, dalej przerabiasz jak wcześniej, jeszcze przez 3 cm, ale już nie dodajesz oczka na reglany. Trzymaj się dalej schematów A1-A.3, a pozostałe oczka przerabiaj dżersejem. Następnie przejdź do części TYŁ & PRZODY i do rzędu schematów A.4 - A.6 będącego kontynuacją schematów A.1 - A.3 i dalej przerabiaj zgodnie z opisem. Pozdrawiamy!

13.02.2024 - 09:58

country flag Eleonora wrote:

Buongiorno, dopo lo sprone con la taglia M ottengo 183 maglie, arrivo a 23 cm e mi presto a fare il ferro a rovescio...domanda: 30 maglie davanti dx, 36 maglie in sospeso, avvio 6 maglie...ma le 6 maglie le avvio attaccate alle 36 maglie sospese della manica o le avvio all'inizio delle 51 del dietro? e le successive 6 maglie le attacco alle 36 maglie della manica sospese o all'inizio delle 30 maglie davanti sx?

13.12.2023 - 15:44

DROPS Design answered:

Buongiorno Eleonora, deve lavorare le 30 maglie del davanti, mettere in sospeso 36 maglie (manica) senza lavorarle, avviare le 6 maglie che si congiungono alle 51 maglie del dietro. Le 6 maglie avviate a ogni lato costituiscono il sottomanica, le 36 maglie in sospeso saranno le maniche che verranno lavorate in seguito. Buon lavoro!

19.12.2023 - 09:02

country flag Patrizia wrote:

DROPS Design answered: Buonasera Patrizia, deve procedere lavorando i diagrammi dove indicato e a diritto le maglie tra i diagrammi, mantenendo i bordi a maglia legaccio. Buon lavoro! 04.12.2023 - 17:16 ok...il problema è che andando avanti con il diagramma dalla taglia M in poi io ho sempre 25 maglie e sul diagramma sono di più...non facendo più aumenti dove le prendo quelle maglie? grazie

04.12.2023 - 17:24

DROPS Design answered:

Buongiorno Patrizia, deve continuare a lavorare il motivo sulle maglie rimaste fino alla lunghezza richiesta. Buon lavoro!

30.12.2023 - 11:31

country flag Patrizia wrote:

Buongiorno, sto facendo la taglia M e quando arrivo alla fine degli aumenti dello sprone (14 aumenti) ottengo 183 m. totali...come continuo con gli schemi A1 A2 e A3...non mi ritrovo con il nr di maglie che ho sui ferri e quelle invece che dovrei fare come da schemi...dove sbaglio? come devo procedere? Grazie.

02.12.2023 - 14:47

DROPS Design answered:

Buonasera Patrizia, deve procedere lavorando i diagrammi dove indicato e a diritto le maglie tra i diagrammi, mantenendo i bordi a maglia legaccio. Buon lavoro!

04.12.2023 - 17:16

country flag Patrizia wrote:

Buonasera questa la vostra risposta alla mia richiesta: "Buonasera Patrizia, le noccioline sono lavorate in ferri separati, dove non ci sono altre diminuzioni. Buon lavoro!" grazieeee...ma non c'è scritto da nessuna parte che le noccioline sono da fare su ferri a parte...non so come procedere...faccio a parte...da dove parto con altri ferri e poi dove le collego? giratemi link con video per favore...

27.11.2023 - 20:15

DROPS Design answered:

Buonasera Patrizia, la nocciolina è lavorata nello stesso momento sui ferri indicati. Provi a vedere se questo video può esserle di aiuto. Buon lavoro!

30.11.2023 - 22:54

country flag Patrizia wrote:

Buongiorno, ho un problema...sullo schema A2, come anche su quello A1 e A3, all'altezza della linea "L" c'è sia la chiusura alla 6° riga della nocciolina sia le 2 maglie insieme a dritto...sullo stesso punto...come si procede? Grazie

24.11.2023 - 11:09

DROPS Design answered:

Buonasera Patrizia, le noccioline sono lavorate in ferri separati, dove non ci sono altre diminuzioni. Buon lavoro!

26.11.2023 - 23:25

country flag Bianca Irina wrote:

Hello! I have an unclarity regarding the yoke after I finish with the raglan increase. I need to continue working until my yoke is longer, but I don’t know what pattern to follow. If I knit for measure S, should I continue with A.1, A.2 and A.3, but ignoring the extra stitches that are for higher measures? Thank you!

20.10.2023 - 21:11

DROPS Design answered:

Dear Bianca, if you have the correct number of stitches after the raglan increases and you need to reach the length for the yoke you continue working A.1, A.2 and A.3 but don't make the increases outside of the charts; these stitches that are outside of the charts will be worked in stocking stitch. Happy knitting!

23.10.2023 - 00:04

country flag Rebecca wrote:

Hi on the rows with the black triangle = slip 1 stitch as if to knit, knit 2 together and pass the slipped stitch over the knitted together stitches. Do you the increase the two stitches back on the purl row? Thank you

29.05.2023 - 19:46

DROPS Design answered:

Hi Rebecca, The increases are on the same row - the yarn overs before and after the black triangle, so the stitch count remains the same. Happy knitting!

30.05.2023 - 06:54

country flag Patrizia wrote:

Grazie per la risposta...quindi dove ci sono le 8 maglie (per la taglia M) per le maniche con gettato prima e dopo le maglie, ogni 2 giri aumento di 2....8/10/12/14/16...etc etc? se però è così sulla spiegazione non c'è scritto...o sbaglio?

02.01.2023 - 10:26

DROPS Design answered:

Buonasera Patrizia, nella spiegazione viene riportato il giro di setup, poi si prosegue con la lavorazione. Buon lavoro!

02.01.2023 - 21:22

country flag Patrizia wrote:

Buongiorno...RAGLAN...prima della linea del raglan...(si intende prima della linea del raglan dal dritto o dal rovescio?)...lavorare a rovescio semplicemente vuol dire creare un buco...perché dice nessun buco?

30.12.2022 - 10:13

DROPS Design answered:

Buonasera Patrizia, in quel punto viene indicato come lavorare i gettati sul rovescio del lavoro, e viene spiegato che prima della linea del raglan i gettati vanno lavorati a rovescio ritorto, cioè nel filo dietro della maglia invece di quello davanti, in modo che non si creino buchi. Buon lavoro!

01.01.2023 - 21:30