Rensche skrifaði:
I have a problem with Row 10 of diagram A-1. It appears to be an increase row, but there are no increases marked in the pattern? Please assist as I can’t work out where to increase.
24.10.2022 - 18:40DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Rensche, on row 9 in A.1 (S,M, L) / row 11 (XL, XXL, XXXL), you will increase 2 sts in each repeat making 2 yarn overs but no decreases as before = you now work A.1 over 12-14 sts. Happy knitting!
25.10.2022 - 08:54
Joske skrifaði:
Ik begrijp het verschil tussen open () en dicht (x) niet. Is het zoals Tamara zegt? Dus om bij het zwarte () geen gaatje te krijgen?
06.09.2022 - 14:08DROPS Design svaraði:
Dag Joske,
Bij de dichte ovalen brei je de steek op de volgende naald gedraaid recht om ervoor te zorgen dat er geen gaatje ontstaat. Bij de open ovalen brei je de steek op de volgende naald gewoon recht, zodat er wel een gaatje ontstaat. 08.09.2022 - 17:05
Lauren skrifaði:
There doesn't appear to be any size measurements included in the pattern. How do I know what size to knit?
19.04.2022 - 08:21DROPS Design svaraði:
Hi Lauren, You will find a size chart at the bottom of the pattern. Happy crafting!
19.04.2022 - 10:15
Mal skrifaði:
Skończyłam robić "body" swetra, dodałam oczka przed ściągaczem jak wskazano w instrukcji. zgodnie z instrukcją, następny rząd będzie pierwszym rzędem ściągacza (robionym na lewej stronie). i tu mam pytanie - tam gdzie dodałam oczka w poprzednim powstaną dziury - nie powinnam najpierw przerobić ich jako przekręconych, a dopiero w następnym rzędzie zacząć ściągacz?
30.03.2022 - 15:27DROPS Design svaraði:
Witaj Mal, już teraz zaczynasz ściągacz, a gdzie były narzuty przerabiasz oczka przekręcone. Pozdrawiamy!
31.03.2022 - 09:22
Elisabeth Cra skrifaði:
Peut-on tricoter ce pull avec la laine Karisma Merci
10.03.2022 - 15:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Cra, tout à fait, ce pull peut se tricoter soit en Lima, soit en Karisma (cf fournitures pour la quantité nécessaire pour la taille), soit dans un autre fil du groupe B, utilisez alors le convertisseur. Bon tricot!
10.03.2022 - 18:25
Shirley Nash skrifaði:
Que veut dire augmenter dans une section de mailles envers 2? Je ne comprends pas. Merci.
01.03.2022 - 02:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Nash, vous tricotez en côtes 1 m torse à l'endroit, 1 m envers - 1 section envers = 1 m envers dans les côtes, autrement dit, après avoir augmenté dans 1 section env sur 2, vous aurez: *1 m torse à l'end, 1 m env, 1 m torse à l'end,2 m env* - puis vous augmenterez les 1 m env à 2 pour avoir tout le tour *1 m torse à l'end, 2 m env*, et vous augmenterez ensuite 1 fois sur les 2 les 2 m env à 3 m env (= 1 m torse à l'end, 2 m env, 1 m torse à l'end, 3 m env). Bon tricot!
01.03.2022 - 10:06
Theresa Kane skrifaði:
Are the sizing numbers on the diagram in inches or another unit of measure?
28.01.2022 - 02:49DROPS Design svaraði:
Hi Theresa, If you are on the US English page you have both inch and cm measurements. Happy knitting!
28.01.2022 - 06:54
Carina Jansson skrifaði:
Hej. Är stickfastighet/provlappen stickad med stickor 3,5 mm eller stickor 4 mm?
27.01.2022 - 15:27DROPS Design svaraði:
Hej Carina, vi har strikket det glatstrikkede på pind nr 4 :)
27.01.2022 - 15:39
Wendy-Lynne MacKinnon skrifaði:
The full pattern is not loading. I cannot get the Diagram - A.1 or any of the symbols to load. Please help!
24.01.2022 - 17:12
Iveta Jonesová skrifaði:
Potřebuji poradit na kolik ok rukáv záda mám na 92ok, silnější prize na jehlice číslo 4\r\nJedna se mi o začátek a kdy přidávat děkuji
19.12.2021 - 08:34
December Bloom#decemberbloomsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri á berustykki, köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-46 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir annarri hverri brugðinni einingu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 175 lykkjur) og deilið með lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 11,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-104-108-116-120-124 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Lima eða DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4 cm, aukið út aðra hverja 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 125-130-135-145-150-155 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-8-8 cm, aukið út þær 1 lykkja brugðið sem eftir eru til 2 lykkjur brugðið = 150-156-162-174-180-186 lykkjur. Þegar stroffið mælist 9-9-9-11-12-12 cm, aukið út aðra hverja 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 175-182-189-203-210-217 lykkjur. Prjónið þar til stroffið mælist 10-10-10-12-13-13 cm. Prjónið nú berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir sléttprjón JAFNFRAMT í 3. umferð eru auknar út 15-18-21-25-30-35 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 190-200-210-228-240-252 lykkjur. Eftir þessar 4 umferðir í sléttprjóni, prjónið A.1 hringinn (= 19-20-21-19-20-21 mynstureiningar með 10-10-10-12-12-12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 285-300-315-342-360-378 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-19-19-23-24-24 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 18-24-30-32-34-40 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 303-324-345-374-394-418 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-21-21-25-26-26 cm, aukið út um 13-16-19-22-25-28 lykkjur jafnt yfir = 316-340-364-396-419-446 lykkjur. Útaukning hefur nú verið gerð til loka í stærð S, M og L – farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið áfram þar til stykkið mælist 27-28-29 cm. Í næstu umferð er aukið út um 8-9-14 lykkjur jafnt yfir = 404-428-460 lykkjur. Útaukning hefur nú verið gerð til loka í stærð XL, XXL og XXXL – farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 316-340-364-404-428-460 lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-50-53-59-64-70 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 66-70-76-84-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 92-100-106-118-128-140 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 66-70-76-84-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 46-50-53-59-64-70 (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 196-212-228-252-276-300 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Byrjið umferð við prjónamerki í hægri hlið á stykki (þegar stykkið er mátað) og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 17 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 98-106-114-126-138-150 lykkjum á prjóni og setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð eða hjálparprjón. Prjónið síðan stroff eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 29-31-35-37-41-45 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 127-137-149-163-179-195 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Setjið þær 98-106-114-126-138-150 lykkjur af þræði/hjálparprjóni á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 29-31-35-37-41-45 lykkjur jafnt yfir = 127-137-149-163-179-195 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! ERMI: Setjið 66-70-76-84-86-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-76-84-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 11-12-14-18-19-20 sinnum = 50-52-56-56-58-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 39-37-36-34-32-31 cm frá skiptingu (það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-2-4-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 52-56-58-60-62-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-43-42-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #decemberbloomsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-46
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.