Night Mist#nightmistsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með klauf í hliðum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-22 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. SKIPT UM ÞRÁÐ: Til að litaskiptin í Delight verði falleg þegar skipt er um dokku, er mikilvægt að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem sú fyrri endaði á. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 102 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 44) = 2,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca hverja og aðra hverja lykkju og aðra hverja lykkju og 3. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan hálsmáli þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið út umferðina eins og áður (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir hálsmáli þannig: Prjónið fyrstu 4 lykkjur eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið, framstykki og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumað saman í lokin. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á stuttan hringprjón. Bakstykkið er 6 cm lengra en framstykkið. Fitjaður er upp mismunandi fjöldi lykkja á bakstykki og framstykki til að stroffið dragist ekki meira saman á bakstykki þar sem stroffið er lengra. BAKSTYKKI: Fitjið upp 104-116-132-140-152-164 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 18 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 44-51-61-63-67-72 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 61-66-72-78-86-93 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið síðan brugðið út umferðina, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= 1 kantlykkja) = 62-67-73-79-87-94 lykkjur. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-2-3-4-5-6 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 0-1-2-3-4-5 sinnum = 58-61-63-65-69-72 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið nú af miðju 20-21-23-23-23-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 18-19-19-20-22-23 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 92-100-112-120-132-144 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 12 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 32-35-41-43-47-52 lykkjur jafnt yfir, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 61-66-72-78-86-93 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið síðan brugðið út umferðina, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= 1 kantlykkja) = 62-67-73-79-87-94 lykkjur. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-2-3-4-5-6 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 0-1-2-3-4-5 sinnum = 58-61-63-65-69-72 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm. Setjið nú miðju 12-13-15-15-15-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 5 sinnum = 18-19-19-20-22-23 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 58-62-62-66-66-70 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 18-21-19-21-21-24 lykkjur jafnt yfir = 40-41-43-45-45-46 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 16 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 14-14-9-9-5-3½ cm millibili alls 2-3-4-4-6-7 sinnum = 44-47-51-53-57-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 48-48-47-46-43-42 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Fellið af fyrir smáa ermakúpu í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-2-3-4-5-6 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 0-0-0-1-1-1 lykkja 0-0-0-1-2-3 sinnum og 4-5-3-2-2-2 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum = 32-33-33-35-35-34 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 50-50-51-51-50-50 cm. Prjónið aðra ermi á sama hátt – stillið af að byrjað sé frá sama lit í dokku og í byrjun á fyrri ermi. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í á fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermum. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju garðaprjón frá handveg og niður að strofi (= 12 cm klauf á framstykki og 18 cm á bakstykki). TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju, ca 80-96 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 5. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið A.1 hringinn í 11 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nightmistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.