DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8426.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

December Skies

Prjónað vesti úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með klauf í hliðum, v-hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð XS - XXL.

DROPS 228-32
DROPS Design: Mynstur ab-121
Garnflokkur C + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300-300-350 g litur 0517, grár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-100-100-100-125 g litur 22, öskugrár

DROPS TALA, Marble NR 630: 3 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 6.
DROPS PRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: Lengd 40 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8426.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 87 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 3,5.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis aðra hverja og 3. hverja og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = byrjið frá réttu og prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
XS: 10, 18 og 26 cm
S: 9, 18 og 27 cm
M: 10, 19 og 28 cm
L: 9, 19 og 29 cm
XL: 10, 20 og 30 cm
XXL: 9, 20 og 31 cm

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Frágangur á stykki er eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur í kringum handveg og kantar eru prjónaðir í stroffprjóni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 87-95-103-111-121-131 lykkjur á prjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið byrji og endið alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 10 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-26-29-31-34-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 63-69-74-80-87-95 lykkjur. Fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja fyrir saum). Snúið stykkinu og skiptið yfir á prjón 6. Prjónið brugðnar lykkjur frá röngu og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja fyrir saum) = 65-71-76-82-89-97 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 59-63-68-72-77-83 lykkjur.
Fellið síðan af 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 3-4-5-6-7-8 sinnum í hvorri hlið = 53-55-58-60-63-67 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 21-21-22-22-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 15-16-17-18-19-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 49-55-59-63-67-71 lykkjur á prjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið byrji og endið alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 10 cm – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 6 lykkjur (= 7 lykkjur fyrir kant að framan), prjónið sléttprjón yfir næstu 41-47-51-55-59-63 lykkjur og fækkið jafnframt um 13-16-17-18-19-19 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 36-39-42-45-48-52 lykkjur.
Fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja fyrir saum).
Skiptið yfir á prjón 6. Prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, haldið áfram með stroff eins og áður yfir næstu 6 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 37-40-43-46-49-53 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan eins og áður við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið.
Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu = 34-36-39-41-43-46 lykkjur. Fellið síðan af 1 lykkju í byrjun á umferð frá röngu í 4. hverri umferð alls 3-4-5-6-7-8 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, byrjið úrtöku fyrir V-hálsmáli. Fækkið lykkjum svona í næstu umferð frá réttu:
Prjónið fyrstu 7 lykkjur í mynstri eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona með 2½ cm millibili alls 9-9-10-10-10-10 sinnum.
Eftir allar úrtökur fyrir handveg og v-hálsmáli eru 22-23-24-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umferð frá röngu, fellið af fyrstu 15-16-17-18-19-21 lykkjur fyrir öxl – munið eftir AFFELLING = 7 lykkjur eftir á prjóni fyrir kant í hálsmáli. Haldið áfram með stroff yfir þessar 7 lykkjur þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 8-8-9-9-10-10 cm frá öxl (athugið mál við hálsmál aftan í hnakka – kantur í hálsi á að strekkjast aðeins þegar saumað er frá axlasaumi mitt aftan í hnakka). Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 49-55-59-63-67-71 lykkjur á prjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið byrji og endið alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 10 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 41-47-51-55-59-63 lykkjur og fækkið jafnframt um 13-16-17-18-19-19 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 6 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 7 lykkjur fyrir kant að framan) = 36-39-42-45-48-52 lykkjur.
Skiptið yfir á prjón 6. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram með stroff eins og áður yfir næstu 6 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur út umferðina og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja fyrir saum) = 37-40-43-46-49-53 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan eins og áður við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið.
Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu = 34-36-39-41-43-46 lykkjur. Fellið síðan af 1 lykkju í byrjun á umferð frá réttu í 4. hverri umferð alls 3-4-5-6-7-8 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, byrjið úrtöku fyrir V-hálsmáli. Fækkið lykkjum svona í næstu umferð frá réttu:
Prjónið eins og áður þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkju slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 6 lykkjur stroff eins og áður og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum svona með 2½ cm millibili alls 9-9-10-10-10-10 sinnum.
Eftir allar úrtökur fyrir handveg og v-hálsmáli eru 22-23-24-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umferð frá röngu, fellið af fyrstu 15-16-17-18-19-21 lykkjur fyrir öxl – munið eftir AFFELLING = 7 lykkjur eftir á prjóni fyrir kant í hálsmáli. Haldið áfram með stroff yfir þessar 7 lykkjur þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 8-8-9-9-10-10 cm frá öxl – stillið mál eftir kanti í hálsmáli á hægra framstykki. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – byrjið yst á öxl og saumið í lykkjur eina og eina inn að hálsi. Saumið kant í hálsi saman mitt að aftan og saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka.
Saumið hliðarsauma frá handveg og niður að stroffi innan við 1 kantlykkju (= 10 cm klauf í hvorri hlið).
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

KANTUR Á ERMI:
Byrjið frá réttu neðst í öðrum handveginum og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 92 til 110 lykkjur í kringum handveg á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 og kanturinn má ekki vera of stífur.
Prjónið A.1 hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

Mynstur

symbols = snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Jantine wrote:

Ik begrijp dat bij het patroon December Skies, Spencer 228/32 twee soorten garen worden gebruikt. In het patroon kan ik niet vinden waar de Alpaca Bouclé en waar de Drops Kid Silk worden gebruikt. Is het laatste soms voor de boorden? En hoeveel heb ik nodig als ik alles van bouclé brei? Ik hoop op een spoedig antwoord, hartelijk dank alvast. Gr. Jantine

25.02.2024 - 12:33

DROPS Design answered:

Dag Jantine,

Het hele werkstuk wordt met 2 draden gebreid, 1 draad Kid-Silk en 1 draad Alpaca bouclé. (Van Kid-Silk heb je veel minder nodig omdat het een laag gewicht heeft en een lange looplengte.)

28.02.2024 - 20:30

country flag CATH N wrote:

I do not understand A.1. What does it mean "twisted" as in "KNIT TWISTED FROM RIGHT SIDE , PURL TWISTED FROM WRONG SIDE"?? And how does the little A1 diagram relate to the instruction/big diagram: the PATTERN says "shows all rows in the pattern from the right side". It doesn't show all rows in the pattern I printed , only an outline of the garment with stitches for different sizes. Please help.

10.02.2024 - 11:36

DROPS Design answered:

Dear Cath, twisted = work in the back loop, you can see an example of knitting twisted in the following video:https://www.garnstudio.com/video.php?id=32&lang=en. A.1 is the 2-stitch pattern that is worked the whole round, as explained in the written instructions. You can see how to read this chart here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. When it says that the PATTERN shows all rows in the pattern from the right side it means that all rows in chart A.1 are shown as seen from the right side; you will find more information in the lesson above. The outline is the size chart, explained here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=19. Happy knitting!

11.02.2024 - 23:01

country flag Noemi Mizrahi wrote:

Do I DECREASE stitches after the rib? usually one adds stitches after the rib ( in other patterns )

08.11.2023 - 04:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mizrahi, for same width you need more stitches to work rib with smaller needles than to knit stocking stitch with larger needles, reason why you decrease after rib. Happy knitting!

08.11.2023 - 08:35

country flag Jette wrote:

Jeg kan ikke se om ribkanten skal strikkes med 1ret og vrang eller om det er 2 ret og vrang. med venlig hilsen jette.

19.12.2022 - 13:54

country flag Vittoria wrote:

Vorrei sapere per cortesia che taglia indossa la modella Grazie

27.02.2022 - 19:42

DROPS Design answered:

Buonasera Vittoria, solitamente le modelle indossano la taglia M. Buon lavoro!

27.02.2022 - 21:14

country flag Gitte wrote:

Hvad er Drops parpinde? Er det almindelige strikkepinde?

30.09.2021 - 21:10

DROPS Design answered:

Hej Gitte. Ja det är det. Mvh DROPS Design

01.10.2021 - 09:56

country flag Taina wrote:

Is the diagram with the measurements going to be added to the pattern later?

30.09.2021 - 14:36

DROPS Design answered:

Dear Taina, you can see the diagram with the measurements just below the pattern instructions. Happy Stitching!

30.09.2021 - 15:59

country flag Lija wrote:

Childhood teddy bear

12.09.2021 - 13:22

country flag Carina Degner Steffen wrote:

The new old school 😊

05.08.2021 - 09:19