DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Grey Stone Hill

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með háum kraga, stroffprjóni í köntum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-29
DROPS Design: Mynstur u-921
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-450-500-550-600-700 g litur 21, milligrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina í kanti í hálsmáli – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í prjónanúmeri 3,5.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 119 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim 107 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukningu/úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 5,3.
Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónaðar til skiptis ca 4. og 5. hver lykkja og 5. og 6. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkjum í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 12 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚRTAKA-3:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig:
Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni og 3 lykkjum slétt þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig:
Fækkið um 1 lykkju á undan 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 1 lykkja færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna þar til klaufin hefur verið prjónuð til loka, síðan eru bæði stykkin sett á sama hringprjón og prjónað er í hring á hringprjóna upp að handveg. Stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka. Að lokum er kantur í handvegi og í hálsmáli prjónað í hring á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 119-129-139-151-165-179 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma. Prjónið stroff þannig:
6 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 6 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 9 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið garðaprjón eins og áður yfir fyrstu 6 lykkjurnar, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 107-117-127-139-153-167 lykkjur og fækkið jafnframt um 20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1, prjónið garðaprjón eins og áður yfir síðustu 6 lykkjur = 99-107-115-125-137-149 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið nú sléttprjón og 6 lykkjur garðaprjón í hvorir hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 18 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, geymið stykkið. Prjónið framstykkið.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur frá framstykki og bakstykki á sama hringprjón = 198-214-230-250-274-298 lykkjur. Byrjið umferð á undan 12 lykkjum garðaprjón í annarri hliðinni.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og 12 lykkjur í GARÐAPRJÓN – í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 20 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 12 lykkjur í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm = 190-206-222-242-266-290 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 12-12-14-16-18-20 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 12 lykkjur í garðaprjóni og 0-0-1-2-3-4 lykkjur hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni).
Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 83-91-97-105-115-125 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Jafnframt í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-3.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 1-1-3-7-12-18 sinnum síðan í 4. hverri umferð 7-9-8-6-4-1 sinnum (= 8-10-11-13-16-19 lykkjur færri í hvorri hlið fyrir handveg) = 67-71-75-79-83-87 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm.
Fellið nú af miðju 29-29-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 18-20-21-23-24-26 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 83-91-97-105-115-125 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg alveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 58-60-61-63-64-66 cm, setjið miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur á framstykki á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Vinstri öxl:
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt í næstu umferð frá réttu, fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= við háls), prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum = 18-20-21-23-24-26 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af.
Hægri öxl:
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt í næstu umferð frá réttu, fækkið lykkjum frá hálsi þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum = 18-20-21-23-24-26 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við kanta með affellingu.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið frá réttu þar sem stykkið skiptist fyrir handveg. Notið hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 132 til 154 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2).
Prjónið stroff eftir mynsturteikningu A.1 hringinn í 4½-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið í kringum hinn handveginn.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt uppi við aðra öxlina með hringprjón 3,5 og Karisma og prjónið upp ca 96 til 110 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff hringinn eftir A.1. Þegar stroffið mælist 7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Monique wrote:

Necesito saber si 1 hilera es 1 rango de

04.03.2024 - 17:24

DROPS Design answered:

Hola Monique, 1 hilera = 1 fila.

10.03.2024 - 20:11

country flag Monique wrote:

Cuando dicen 1 diminución cada 2 hileras, significa 1 disminución por el derecho, nada por el revés y otra disminución por el derecho?

04.03.2024 - 17:23

DROPS Design answered:

Hola Monique, sí, hilera = fila. Por lo tanto, si disminuyes cada 2 hileras significa que disminuyes en cada fila por el mismo lado (es decir, en cada fila por el lado derecho).

10.03.2024 - 20:11

country flag Indu wrote:

Love this vest .Got the yarn excited to start.

29.11.2023 - 02:17

country flag Sharon Hunt-Edwards wrote:

Hello, have bought the yarn suggested her to make this vest. I would like, however, to use drops matching kid silk. Will this change the gauge in anyway and how much kid silk should i purchase?\r\nSharon

18.11.2023 - 11:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hunt-Edwards, if you use Kid-Silk and Karisma together, this will automatically affect the tension; see an example here so that you might rather find a pattern matching this tension. Happy knitting!

20.11.2023 - 09:55

country flag Åsa wrote:

Hej, jag har kommit till delen på framstycket där det står "När arbetet mäter 58-60-61-63-64-66 cm, sätts de mittersta 15-15-17-17-19-19 maskorna på framstycket på en tråd, och varje axel stickas färdig för sig." Men jag hittar ingenstans i återstoden av mönstret vad jag ska göra med dessa maskor sedan. Har försökt läsa både i norska, svenska och engelska mönstret men förstår inte. Tacksam för hjälp.

15.11.2023 - 13:33

DROPS Design answered:

Hej Åsa, det er en del af halskanten :)

16.11.2023 - 14:46

country flag Helga Eitel wrote:

Ich möchte diesen Pullunder gerne ohne die Seitenschlitze und dafür mit einem Bündchen in Rippenmuster stricken. Wie kann ich das machen? Für einen Tipp bin ich sehr dankbar.

08.01.2023 - 21:24

DROPS Design answered:

Liebe Frau Eitel, dann können Sie wahrscheinlich vom Anfang an mit A.1 und 1 Randmasche (anstatt 6 Maschen kraus rechts) beidseitig stricken. Viel Spaß beim stricken!

09.01.2023 - 10:28

country flag Marianne wrote:

Hej kan du förklara Ribbstickning A1 Stickas den räta maskan alltid vriden på räta varvet och vanlig avg från aviga sidan ? Mvh Marianne

28.10.2022 - 18:37

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Slik står det under Diagramforklaringen til den blanke firkanten: = vriden rätmaska från rätsidan, vriden avigmaska från avigsidan. mvh DROPS Design

31.10.2022 - 10:21

country flag Anna wrote:

Hello, \r\nWith the decreasing in this pattern at the top of the 9cms ribbing, your Decrease Tip 1 says the following:\r\n\"If decreasing knit in this example approx. every 4th and 5th stitch and every 5th and 6th stitch together.\"\r\nPlease can you explain if you mean that I decrease evenly on every 4th stitch and again on every 6th stitch? I am afraid I dont understand your instructions.and doing this will not be even?\r\n\r\nMany thanks,\r\nAnna

16.06.2022 - 12:18

DROPS Design answered:

Dear Anna, maybe this lesson will help you to understand how to decrease evenly depending on the number of sts - but in the example you should: *k3, K2 tog, K4, K2 tog* and repeat from *-*, adjusting so that you will have the correct number of sts decreased. Happy knitting!

16.06.2022 - 16:14

country flag FRANCINE RIOUX wrote:

Modèle Drops 228-29 Pour le col, il est inscrit de relever environ 96 à 110 mailles est-ce que cela inclus les mailles centrales glissées en attente sur l'arrêt de mailles ??? Je suppose que non mais ce n'est pas clair dans le patron

15.06.2022 - 18:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rioux, en fait si, ces mailles mises en attente lors de l'encolure devant sont bien incluses dans ces 96 à 110 mailles. Bon tricot!

16.06.2022 - 09:18

country flag FRANCINE RIOUX wrote:

Quelle est la légende du diagramme A1? Je pense qu\'il y a erreur ???

29.04.2022 - 22:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rioux, A.1 correspond à des côtes 1 maille torse à l'endroit, 1 maille envers; sur l'envers, la maille torse à l'endroit va se tricoter torse à l'envers et la maille envers se tricotera à l'endroit. cette vidéo montre comment tricoter ce type de côtes et pourra probablement vous aider. Bon tricot!

02.05.2022 - 08:01