Lisanne English skrifaði:
Could you please send me the pdf of this pattern? i want to print it and it is not working well ... thanks
18.07.2022 - 22:30DROPS Design svaraði:
Dear Lisanne, our patterns can only be printed, but using a virtual printer you will be able to download them as a .pdf. You can download our pattern choosing to print them and then selecting a virtual printer. Happy knitting!
20.07.2022 - 16:44
Rising Creek#risingcreeksweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti. Stærð XS - XXL.
DROPS 226-21 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 5,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna ofan frá og niður. HÁR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 48-56-56-56-64-64 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 13 cm. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= ca mitt að aftan). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT. Skiptið yfir á hringprjón 8. BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8-8-8-8-8-8 lykkjur á meðan aukið er út um 0-1-1-2-2-2 lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki hér. Prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 10-10-10-10-14-14 lykkjur (= axlalykkjur, setjið 2. prjónamerki hér. Prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 14-18-18-18-18-18 lykkjur á meðan aukið er út um 0-2-2-4-4-4 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki hér. Prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 10-10-10-10-14-14 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki hér. Prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 6-10-10-10-10-10 lykkjur á meðan aukið er út um 0-1-1-2-2-2 lykkjur jafnt yfir (= ca hált bakstykki) = 48-60-60-64-72-72 lykkjur. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið sléttar lykkjur JAFNFRAMT eru auknar út 4 lykkjur í umferð þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Aukið svona út í hverri umferð alls 16-17-18-19-21-23 sinnum = 112-128-132-140-156-164 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 11-11-12-13-14-15 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í umferð þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Aukið svona út í hverri umferð alls 3-3-4-6-6-6 sinnum og í annarri hverri umferð 8-8-8-8-8-9 sinnum = 156-172-180-196-212-224 lykkjur. Stykkið á nú að mælast ca 24-24-25-28-29-31 cm frá prjónamerki og niður mitt að aftan. Ef stykkið er styttra en þetta er prjónað áfram í sléttprjóni að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið yfir fyrstu 25-26-27-29-31-33 lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 30-32-34-38-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið yfir næstu 48-54-56-60-64-68 lykkjur, setjið næstu 30-32-34-38-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 23-28-29-31-33-35 lykkjur. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-120-128-136-144-152 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 19-21-22-22-21-21 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú á að auka út lykkjur til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar er út 16-20-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 124-140-148-156-168-176 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMI: Setjið 30-32-34-38-42-44 lykkjur frá þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-8 nýju lykkjum undir ermi = 36-38-42-46-50-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 3-3-4-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Þetta er byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5½-6½-4-3-2½-2½ cm millibili alls 2-2-4-5-6-6 sinnum = 32-34-34-36-38-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-37-37-35-35-34 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-10-8-10-12 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-44-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn út umferð. Þegar stroffið mælist 7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist alls 45-44-44-42-42-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #risingcreeksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.