Alena Jonáková skrifaði:
Dobrý den, chtěla bych vědět jestli můžu nahradit při pletení svetru Evening Fires vlnu Alpaka Silk vlnou Alaska? U té první vlny se plete dvojitě a také vzor je copánkový, myslim si, že by se to špatně pletlo. Je správná spotřeba 30 klubíček 50 gramové Alasky? Děkuji. Alena
24.03.2022 - 12:55DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Aleno, ano, přízi nahradit můžete, ale počítejte s tím, že výsledný vzhled bude trochu jiný - svetr bude hutnější a bude působit rustikálnějším dojmem.
21.04.2022 - 12:34
Alena skrifaði:
Dobrý den ještě bych chtěla vědět, jestli mi opravdu stačí na svetr Evening Fires pro velikost XXL příze DROPS ALPAKA SILK 15, barvy sv. tyrkysové - příze C, 375 g i když ji použiji dvojitou? Děkuji. Alena
21.03.2022 - 16:03DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Aleno, ano, tato spotřeba by měla být dostačující. Příze DROPS Brushed Alpaca Silk je lehoučká a dodáváme ji v klubíčkách po 25 g s návinem 140 m - 15 klubíček by vám tedy mělo stačit i při pletení dvojitou přízí. Hodně zdaru! Hana
23.03.2022 - 18:19
Alena skrifaði:
Dobrý den, u návodu na svetr Evening Fires mi není jasné ujimání 5 ok prostřední sekvence vzoru A2? Mohla bych k tomu dostat nějaké podrobnější vysvětlení. Děkuji. Alena
21.03.2022 - 15:40DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Aleno, při tvarování průkrčníku potřebujeme ujmout uprostřed dílu 5 ok. Uprostřed dílu ale leží silný copánek a kdybychom ujmuli všech 5 ok vedle sebe, vznikla by nevzhledná "kapsa", proto je lepší ujímání rozložit nad celou sekvenci, např. takto: 1 oko upleteme, 2 oka spleteme, 1 upleteme, 2 spleteme, atd. Hodně zdaru! Hana
23.03.2022 - 18:42
Erin skrifaði:
What size knitting needles are used for the gauge?
08.03.2022 - 01:44DROPS Design svaraði:
Hei Erin, The size 8 mm needles are used for the guage. Happy knitting!
08.03.2022 - 06:58
Marta skrifaði:
Come mai del filato DROPS WISH ne serve il doppio rispetto all'altro che va messo doppio come filo? mi sarei aspettata il contrario, sbaglio? grazie mille
09.12.2021 - 19:31DROPS Design svaraði:
Buonasera Marta, la quantità di filato necessaria per un modello si calcola sul metraggio, non sul peso di un filato. Ogni gomitolo di Brushed Alpaca Silk è lungo 140 m e ogni gomitolo di Wish è 70 m: ecco spiegata la differenza. Buon lavoro!
10.12.2021 - 13:19
Annette skrifaði:
Hallo, gilt die Maschenprobe bei Brushed Alpaca Silk für Nadel Nr. 6 oder für Nadel Nr. 8 ?
07.12.2021 - 17:50DROPS Design svaraði:
Liebe Annette, die Maschenprobe stricken Sie glatt rechts mit 2 Fäden Brushed Alpaca Silk und der Rundnadel Nr 8. Viel Spaß beim stricken!
08.12.2021 - 07:43
Ria skrifaði:
Hi, Are the diagrams missing? Would like to have some idea about the size. The Sweater design is beautiful!
06.10.2021 - 10:01DROPS Design svaraði:
Dear Ria, chart and diagrams should be now back :) Read more here about sizing if you need help choosing the size. Happy knitting!
06.10.2021 - 16:15
María Timmermann skrifaði:
Nombre: lazos de otoño
05.08.2021 - 07:48
Marina Caroni skrifaði:
Di grande moda il gilet. Bellissimo.
03.08.2021 - 20:50
Evening Fires Sweater#eveningfiressweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað með köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-40 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo að ekki myndist gat = 2 lykkjur fleiri. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 112-120-128-136-144-152 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff þannig: STÆRÐ S-L-XXL: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja slétt. STÆRÐ M- XL-XXXL: 1 lykkja brugðið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 8. Haldið áfram þannig: Prjónið brugðnar lykkjur yfir fyrstu 7-9-11-13-15-17 lykkjur, jafnframt er fækkað um 1 lykkju yfir þessar lykkjur, A.1 (= 10 lykkjur sem auknar eru út til 15 lykkjur), 6 lykkjur brugðið, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, prjónið brugðnar lykkjur yfir næstu 14-18-22-26-30-34 lykkjur, jafnframt er fækkað um 2 lykkjur yfir þessar lykkjur, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, prjónið brugðnar lykkjur yfir síðustu 7-9-11-13-15-17 lykkjur, jafnframt er fækkað um 1 lykkju yfir þessar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 138-146-154-162-170-178 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 (= 15 lykkjur) yfir hvert A.1, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki. Prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 2 fyrstu lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 65-69-73-77-81-85 lykkjur (= framstykki), fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, prjónið 65-69-73-77-81-85 lykkjur, fellið af 2 síðustu lykkjur í umferð fyrir handveg. Klippið þráðinn frá. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu 65-69-73-77-81-85 lykkjur á þráð og prjónið síðan yfir 65-69-73-77-81-85 lykkjur á bakstykki. BAKSTYKKI: = 65-69-73-77-81-85 lykkjur. Prjónið þannig – frá réttu: 4-6-8-10-12-14 lykkjur brugðið, A.2, 6 lykkjur brugðið, A.2, 6 lykkjur brugðið, A.2, 4-6-8-10-12-14 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fækkið um 5 lykkjur yfir miðju mynstureiningu af A.2, í næstu umferð eru felldar af miðju 14-16-18-20-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 22-23-24-25-26-27 lykkjur. Lykkjur í A.2 eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 17-18-19-20-21-22 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá þar sem stykkið skiptist fyrir handveg). Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 65-69-73-77-81-85 lykkjur. Prjónið þannig – frá réttu: 4-6-8-10-12-14 lykkjur brugðið, A.2, 6 lykkjur brugðið, A.2, 6 lykkjur brugðið, A.2, 4-6-8-10-12-14 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, fækkið um 5 lykkjur yfir miðju mynstureiningu af A.2, í næstu umferð eru miðju 8-10-12-14-16-18 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 22-23-24-25-26-27 lykkjur. Lykkjur í A.2 eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá þar sem stykkið skiptist fyrir handveg). Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjóna 6 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff þannig: STÆRÐ S-M-XXL-XXXL: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 30-30-38-38 lykkjur, endið með 1 lykkju slétt. STÆRÐ L-XL: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 34-34 lykkjur, endið með 1 lykkju brugðið. Prjónið stroff í 6 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið brugðnar lykkjur yfir fyrstu 11-11-13-13-15-15 lykkjur, jafnframt eru auknar út 3-4-3-4-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.1, brugðnar lykkjur yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur, jafnframt eru auknar út 3-4-3-4-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina og lykkjur hafa verið auknar út jafnt yfir, eru 43-45-47-49-51-53 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 yfir lykkjur í A.1 og brugðnar lykkjur eins og áður. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið út með 9-9-9-8-8-8 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-48-47-46-45-44 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loka máli. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-45 cm, fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.2. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-50-49-48-47-46 cm, þ.e.a.s. það er 2 cm klauf efst á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 44-60 lykkjur í kringum hálsmál, meðtaldar lykkjur af þræði að framan (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) á stuttan hringprjón 6 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #eveningfiressweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.