Stadnyk skrifaði:
Est il possible de réaliser cet ouvrage avec des aiguilles normales. Si oui comment obtenir les explications ?
30.09.2021 - 19:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Stadnyk, cette leçon vous donne quelques astuces pour adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
01.10.2021 - 07:37
Grey Stone Hill#greystonehill |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með háum kraga, stroffprjóni í köntum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-29 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 119 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim 107 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukningu/úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 5,3. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónaðar til skiptis ca 4. og 5. hver lykkja og 5. og 6. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkjum í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 12 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-3: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni og 3 lykkjum slétt þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Fækkið um 1 lykkju á undan 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 1 lykkja færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna þar til klaufin hefur verið prjónuð til loka, síðan eru bæði stykkin sett á sama hringprjón og prjónað er í hring á hringprjóna upp að handveg. Stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka. Að lokum er kantur í handvegi og í hálsmáli prjónað í hring á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 119-129-139-151-165-179 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma. Prjónið stroff þannig: 6 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 6 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 9 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón eins og áður yfir fyrstu 6 lykkjurnar, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 107-117-127-139-153-167 lykkjur og fækkið jafnframt um 20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1, prjónið garðaprjón eins og áður yfir síðustu 6 lykkjur = 99-107-115-125-137-149 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú sléttprjón og 6 lykkjur garðaprjón í hvorir hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, geymið stykkið. Prjónið framstykkið. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið lykkjur frá framstykki og bakstykki á sama hringprjón = 198-214-230-250-274-298 lykkjur. Byrjið umferð á undan 12 lykkjum garðaprjón í annarri hliðinni. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og 12 lykkjur í GARÐAPRJÓN – í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 20 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 12 lykkjur í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm = 190-206-222-242-266-290 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 12-12-14-16-18-20 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 12 lykkjur í garðaprjóni og 0-0-1-2-3-4 lykkjur hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni). Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 83-91-97-105-115-125 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Jafnframt í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 1-1-3-7-12-18 sinnum síðan í 4. hverri umferð 7-9-8-6-4-1 sinnum (= 8-10-11-13-16-19 lykkjur færri í hvorri hlið fyrir handveg) = 67-71-75-79-83-87 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið nú af miðju 29-29-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 18-20-21-23-24-26 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 83-91-97-105-115-125 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg alveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 58-60-61-63-64-66 cm, setjið miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur á framstykki á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Vinstri öxl: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt í næstu umferð frá réttu, fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= við háls), prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum = 18-20-21-23-24-26 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af. Hægri öxl: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt í næstu umferð frá réttu, fækkið lykkjum frá hálsi þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum = 18-20-21-23-24-26 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við kanta með affellingu. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu þar sem stykkið skiptist fyrir handveg. Notið hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 132 til 154 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff eftir mynsturteikningu A.1 hringinn í 4½-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið í kringum hinn handveginn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt uppi við aðra öxlina með hringprjón 3,5 og Karisma og prjónið upp ca 96 til 110 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff hringinn eftir A.1. Þegar stroffið mælist 7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greystonehill eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.