Sailor Blues Jacket |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og háum kraga. Stærð XS - XXL.
DROPS 228-33 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3 í stærð M, L, XL og XXL). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 64 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 13) = 4,1. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki og ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð á eftir stroffi í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8½-8½-9-8-8½-8½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hár kragi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. HÁR KRAGI: Fitjið upp 64-68-72-76-76-80 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram þar til stroffið mælist 16 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 15-16-17-18-28-29 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 79-84-89-94-104-109 lykkjur. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir eins og áður). Setjið 1 prjónamerki á eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki aukið út þannig: FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur sléttprjón, A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir (= 13-14-15-16-18-19 mynstureiningar með 5 lykkjum), 2 lykkjur sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 26-28-30-32-36-38 lykkjur = 105-112-119-126-140-147 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið þar til stykkið mælist 9-10-10-11-12-13 cm frá prjónamerki. ÖNNUR ÚTAUKNING: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 3-3-4-4-5-3 lykkjur sléttprjón, A.2 þar til eftir eru 6-7-7-8-10-6 lykkjur (= 15-16-17-18-20-22 mynstureiningar með 6 lykkjum), 2-3-3-4-5-2 lykkjur sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 30-32-34-36-40-44 lykkjur = 135-144-153-162-180-191 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið þar til stykkið mælist 14-16-17-19-20-22 cm frá prjónamerki. Nú er prjónað áfram mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ XS og S: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 3-4 lykkjur sléttprjón, A.2 þar til 7-9 lykkjur eru eftir (= 20-21 mynstureiningar með 6-6 lykkjum), 2-4 lykkjur sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 40-42 lykkjur = 175-186 lykkjur. STÆRÐ M og L: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2-3 lykkjur sléttprjón, A.3 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, þar til 6-7 lykkjur eru eftir (= 20-21 mynstureiningar með 7-7 lykkjur á breidd), 1-2 lykkjur sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 40-42 lykkjur = 193-204 lykkjur. STÆRÐ XL og XXL: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 5-3 lykkjur sléttprjón, A.3 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, þar til 10-7 lykkjur eru eftir (= 20-22 mynstureiningar með 8-8 lykkjur á breidd), 5-2 lykkjur sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 40-44 lykkjur = 220-235 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 175-186-193-204-220-235 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 29-30-32-33-37-40 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 35-37-38-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 47-52-53-58-66-71 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 35-37-38-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 29-30-32-33-37-40 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 113-124-133-140-160-171 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 4-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hliðum undir ermum (= 2-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Úrtöku í XS er nú lokið. Endurtakið úrtöku í stærð S, M, L, XL og XXL þegar stykkið mælist 15 cm frá skiptingu = 109-116-125-132-152-163 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 31 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd – nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman er nú aukið út um 23-24-27-28-32-33 lykkjur jafnt yfir = 132-140-152-160-184-196 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 35-37-38-40-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 39-43-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6-5-4-3-3-3 cm millibili alls 6-7-8-9-9-10 sinnum = 27-29-30-30-32-32 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 41-40-38-36-35-33 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd – nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Aukið nú út 5-7-6-10-8-8 lykkjur jafnt yfir = 32-36-36-40-40-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið strofff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 46-45-43-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (32)
Lisbeth Sigvartsen wrote:
Jeg lurer på hvilken str modellen har? Den jeg skal strikke til er ganske rund.
09.02.2024 - 18:20DROPS Design answered:
Hei Lisbeth, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften, med målene til alle størrelsene. Hvis du velger riktige mål får du den fasongen på jakka som er vist i bildet. God fornøyelse!
12.02.2024 - 08:21Line Normandeau wrote:
La boutonnière est du mauvais côté sur la photo?
08.11.2023 - 19:59Lina wrote:
Hello, so how do I join this yarn? Any tips? I usually join with two pull up knots. But I find it way too chunky. Please, help!
04.10.2023 - 17:40DROPS Design answered:
Dear Lina, there are different way to join a yarn, you can use the russian join technique for example. Happy knitting!
05.10.2023 - 08:28Claudia wrote:
Eine Strickjacke die man von unten nach oben strickt und einfach nur eine normale Armkugel strickt
26.09.2023 - 22:57Claudia wrote:
Hallo Sehr schöne Strickjacke aber warum immer so .Kann man nicht eine Strickjacke mit Armkugel mal machen.Oder was mich auch etwas ärgert immer Raglanärmel.Wo man von unten nach oben strickt.
26.09.2023 - 22:54Klaudia wrote:
Laat maar ik ben eruit!
13.09.2023 - 20:27Klaudia wrote:
Ik heb hulp nodig! Maat M: 72st opgezet, hals gebreid en 17st gemeerderd: 89st. Tricot gebreid voor 4 cm. Dan kom ik bij meerdering1: 5st bies 2 tricot A1 tot 7st over zijn 2st tricot en 5st bies. Dat betekend dat ik A1 over 75st (89-14=75) brei maar dan kom ik op 28 meerderingen ipv 30 wat doe ik verkeerd?
13.09.2023 - 19:52DROPS Design answered:
Dag Klaudia,
Je breit 15 herhalingen van A.1. In A.1 zitten 2 meerderingen in de vorm van omslagen, dus dan kom je op 30 meerderingen.
20.09.2023 - 19:21Tonna Zieske wrote:
As you begin the neck, the instructions are to knit two stitches next to both bands. The bands are made of five knit stitches. So doesn’t that actually make the band seven stitches wide?? I’m a beginner knitter but I’m looking at my work and I don’t see any ribs developing. Please explain.
23.08.2023 - 06:45DROPS Design answered:
Dear Mrs Zieske, the front band stitches are 5 sts in garter stitch, then you will work rib K2, P2, so that the 2 sts inside (after/before) the 5 sts will be knitted from the right side but purled from the wrong side. Happy knitting!
23.08.2023 - 09:54Ann Dellicour wrote:
Je ne pense pas pouvoir tricoter ce pull car je ne comprends pas assez l’anglais.Que puis je faire ? Pouvez-vous m’aider ? Merci beaucoup.
04.08.2023 - 21:32DROPS Design answered:
Bonjour Mme Dellicour, cliquez simplement sur le menu déroulant sous la photo pour pouvoir changer la langue et ainsi accéder aux explications de ce modèle en français mais également à notre site entier en français. Bon tricot!
07.08.2023 - 09:31Marlis Sill wrote:
Guten Tag, Bei dem Drops-Modell 228-33 gibt es in der Anleitung einen Korrekturhinweis: die Jacke wird von oben nach unten mit Blenden und Taschen gestrickt. Eine Anleitung für die Taschen habe ich aber nicht gefunden. Können Sie mir weiterhelfen? Mit freundlichen Grüssen Marlis Sill
04.07.2023 - 16:07DROPS Design answered:
Liebe Frau Sill, es sieht wie einen Fehler von uns aus, es gibt für diese Jacke keine Tasche - das wird so bald wie möglich korrigiert, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!
05.07.2023 - 07:40