Ugette Bedard skrifaði:
Bonjour, sur la photo, l’encolure avant ne semble pas bien tomber.. Est ce que le patron a été corrigé?
20.02.2025 - 05:22
Andrine skrifaði:
Når jeg strikker genseren i XL følger ikke vrangborden i halsen videre ned armen, men bytter. Det blir ikke like fint som på bildet. Er det meningen eller er det feil i oppskriften?
17.09.2024 - 19:10DROPS Design svaraði:
Hei Andrine, Det som følger videre nedover ermene er mønster A.1, som er strikket på bærestykke (skuldermaskene) og må fortsettes nedover ermene. Du øker ikke over A.1 på bærestykke, men følger instruksene om å øke før/etter merketrådene (bare på for- og bakstykket). A.1 er en del av masken som settes på tråden når bærestykket deles for bol og ermer. Håper dette hjelper og god fornøyelse!
18.09.2024 - 06:43
Cynthia skrifaði:
Can i work this patter from the bottom up--224 mens crewneck
07.08.2023 - 02:16DROPS Design svaraði:
Dear Cynthia, probably but it might be much easier to follow another pattern which is worked bottom up - find some here. Happy knitting!
07.08.2023 - 11:08
Catherine skrifaði:
I used the recommended Drops Wish for this jumper and I am very pleased with it. \r\nShould I block it now it is finished?
21.02.2022 - 11:07
Frost Light#frostlightsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og kanti í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 224-22 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 5,4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti og ermi): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti og ermum. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 56-56-56-64-64-64 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 lykkju brugðið. Haldið svona áfram með stroff í 6-6-6-7-7-7 cm. Í næstu umferð eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Prjónamerkin eru sett í stykkið jafnframt því sem er prjónað og öll 4 prjónamerkin eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsætum og ermum. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 9 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 1-1-1-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar 9 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið A.1 yfir næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 18 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 2-2-2-4-4-4 lykkjur jafnt yfir þessar 18 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið A.1 yfir næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið síðustu 9 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 1-1-1-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar 9 lykkjur = 60-60-60-72-72-72 lykkjur. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt að þessum prjónamerkjum. Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI MEÐ ÚTAUKNINGU FYRIR AXLARSÆTI: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan) – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með A.1 yfir 10-10-10-14-14-14 lykkjur á hvorri öxl. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Athugið að einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram hringinn og aukið út alveg eins í hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 22-26-28-29-31-36 sinnum = 148-164-172-188-196-216 lykkjur. Prjónið 1 umferð án útaukningar, aukið út eins og áður í næstu umferð, prjónið 3 umferðir án útaukningar, aukið út eins og áður í næstu umferð, prjónið 5 umferðir án útaukningar, aukið út eins og áður í næstu umferð. Eftir síðustu útaukningu eru 160-176-184-200-208-228 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23-25-27-27-29-32 cm frá prjónamerki við hálsmál. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður, en án útaukninga að réttu máli. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 24-26-27-30-32-36 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 32-36-38-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 48-52-54-60-64-72 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 32-36-38-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 24-26-27-30-32-36 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-116-124-136-148-164 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur í annarri hlið á fram- og bakstykki. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist 27-27-28-28-28-27 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 20-20-24-24-28-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 128-136-148-160-176-196 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Setjið 32-36-38-40-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 með DROPS Wish - og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 38-42-46-48-50-52 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón, en A.1 heldur áfram yfir miðju 10-10-10-14-14-14 lykkjur á ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6½-4½-3½-3½-3-2½ cm millibili alls 6-8-9-9-10-10 sinnum = 26-26-28-30-30-32 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-38-37-37-36-34 cm frá skiptingu. Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar aukið er út þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8-8-9-8-8-9 lykkjur og aukið jafnframt út um 1-1-2-1-3-2 lykkjur jafnt yfir, haldið áfram með A.1 yfir næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur eins og áður og prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 8-8-9-8-8-9 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 1-1-2-1-3-2 lykkjur jafnt yfir = 28-28-32-32-36-36 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7. Prjónið síðan stroff þannig: STÆRÐ S, M og XL: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið. STÆRÐ L, XXL og XXXL: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 49-48-48-47-46-44 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostlightsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.