DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Winds

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, axlarsæti og áferðamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 224-7
DROPS Design: Mynstur ne-358
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
700-750-800-900-1000-1100 g litur 8907, þoka

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

LEIÐBEININGAR FYRIR MYNSTUR:
Þegar aukið er út fyrir ermi, prjónið fyrstu og síðustu lykkju á ermi í sléttprjóni þar til auknar hafa verið út 2 lykkjur í hvorir hlið – þetta er gert til að fá falleg skil á milli útaukningu og mynsturs. Þ.e.a.s. það eru alltaf prjónaðar minnst 2 lykkjur slétt hvoru megin við ermi. Prjónið síðan útauknar lykkjur jafnóðum inn í mynstur í hvert skipti sem auknar hefur verið út um 2 lykkjur.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 3,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, prjónið í þessu dæmi til skiptis ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Prjónað er sléttprjón á fram- og bakstykki og áferðamynstur á ermum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-105-110-115-125-130 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Nepal. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, fækkið öllum 3 lykkjur brugðið til 2 lykkjur brugðið = 80-84-88-92-100-104 lykkjur.
Haldið áfram með stroff þar til kanturinn í hálsi mælist 16½ cm. Síðar á brjóta kantinn í hálsi saman tvöfaldan og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 8 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-32-32-32-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 100-104-120-124-132-140 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5.

BERUSTYKKI:
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan) – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja.
Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti.
Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 17-18-20-21-21-23 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Annað prjónamerki: Teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Teljið 34-36-40-42-42-46 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Nú eru 17-18-20-21-21-23 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki.
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Prjónið mynstur A.1 yfir lykkjur á ermi og sléttprjón yfir lykkjur á fram- og bakstykki.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Aukið svona út í hverri umferð alls 14-16-16-18-20-22 sinnum = 156-168-184-196-212-228 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 6-7-7-8-9-10 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Haldið áfram með mynstur A.1 á ermum og sléttprjón á fram- og bakstykki – sjá LEIÐBEININGAR FYRIR MYNSTUR. Í næstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING.
Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1 jafnóðum.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 11-13-13-15-12-12 sinnum = 200-220-236-256-260-276 lykkjur.
Stykkið mælist nú 16-19-19-22-20-21 cm frá prjónamerki við háls. Í stærð S er prjónað áfram þar til stykkið mælist 17 cm. Ef stykkið mælist minna en þetta í stærð M, L, XL, XXL og XXXL, prjónið e.t.v. áfram að réttu máli án þess að auka út lykkjur.
Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 36-40-44-48-46-46 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi.
Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING.
Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-4-6-6-8-10 sinnum = 232-252-284-304-324-356 lykkjur.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka mælist stykkið ca 21-23-25-27-27-30 cm.
Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað áfram þar til stykkið mælist 21-23-25-27-27-30 cm án útaukninga.

Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið yfir fyrstu 35-38-42-45-49-55 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 46-50-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-14-14-14 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 70-76-84-90-98-110 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-50-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-14-14-14 lykkjur (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 35-38-42-45-49-55 lykkjur (= ½ bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 164-176-192-208-224-248 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist ca 29-29-28-28-29-28 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-20-20-20-20-24 lykkjur jafnt yfir = 180-196-212-228-244-272 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 46-50-58-62-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 12-12-12-14-14-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 58-62-70-76-78-82 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 6-6-6-7-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram að prjóna mynstur A.1 hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með ca 11-6-3½-3-3-2½ cm millibili alls 4-6-9-11-11-13 sinnum = 50-50-52-54-56-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-39-37-35-36-34 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-6-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-48-48-48 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 46-44-43-40-41-39 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning á ermum
symbols = útaukning á berustykki
symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Ursula Schwarz wrote:

Ich stricke das Modell in L als Jacke, ich habe nach Ärmelzunahme 236 M:1/2 VT je 36, Sattel je 46 , RT 72 . Versetzen Markierer jetzt so, dass Ärmel 44 M. Verstehe Zunahmeschema für Passe nicht und bitte um Erläuterung. Vielen Dank!

05.01.2023 - 22:17

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schwarz, es waren 20 Maschen für jede Schulter/Ärmel, dann nehmen Sie 1 Masche beidseitig 13 Mal zu = es sind 46 Maschen für jede Ärmel - die Markierungen setzen Sie jetzt in die 1. und in die letzte dieser 46 Maschen so haben Sie: 1 Masche mit Markierer, 44 Maschen (Ärmel), 1 Maschen mit Markierer (46 M). Viel Spaß beim stricken!

06.01.2023 - 08:59

country flag Jens wrote:

Die Ärmelzunahmen sind zwischen der Vorletzten und letzten Masche vor der Markierung , und zwischen der beiden folgenden, oder nehme ich den Querfaden an der Markierung und den dann zweimal? Vielen Dank

22.08.2022 - 19:34

DROPS Design answered:

Lieber Jens, Im Video unten wird es gezeigt, wie man für die Ärmel zunimmt. Viel Spaß beim stricken!

23.08.2022 - 07:59

country flag Uschi wrote:

Die 4 Markierer der Ärmelzunahmen so versetzen, dass jeder dieser Markierer in der äußersten Masche an beiden Seiten des Ärmels sitzt Hallo, ich habe jetzt insgesamt 50 Ärmel Maschen. Ich soll also den markierer nach der 1. und vor der letzten Masche setzen? Vielen Dank im Voraus liebe Grüße

09.03.2022 - 12:04

DROPS Design answered:

Lieber Uschi, stricken Sie die 4. Größe? dann haben Sie ja 50 Masche für jede Ärmel und so setzen Sie die Markierungen ein: 1 M mit Markierung (= die erste Masche der Ärmel), 48 Maschen, 1 M mit Markierung (= die letzte Masche der Ärmel). Viel Spaß beim stricken!

09.03.2022 - 18:40

country flag Uschi wrote:

Ich habe meinen Denkfehler selbst erkannt 🙈 liebe Grüße

06.03.2022 - 18:37

country flag Uschi wrote:

SATTELSCHULTER-ZUNAHMEN: Ich soll 16 Maschen zunehmen. Soll ich in JEDER Runde zunehmen oder nur in jeder 2. ? LG Uschi

06.03.2022 - 16:55

DROPS Design answered:

Lieber Uschi, Sie sollen jeweils nur 4 Maschen zunehmen und diese Zunahmen in jeder Runde insgesamt 16 Mal stricken (= nach diesen 16 Runden haben Sie 2 Maschen je auf Vorder- und Rückenteil zugenommen, und so haben Sie 168-184 M auf der Nadel. Viel Spaß beim stricken!

07.03.2022 - 09:15

country flag Jana Ratnasabapathy wrote:

Dear Sir I have noted that in your patterns for men the sizes given are: SIZES: S - M - L - XL - XXL – XXXL Could you please give these chest sizes in centimetres for each of the above? I would be very grateful to hear from you soon Kind regards Jana Ratnasabapathy

06.01.2022 - 07:10

DROPS Design answered:

Dear Jana, You will find a measurements chart for all sizes at the bottom of the pattern. Kind regards, Drops Team

06.01.2022 - 07:48

country flag Bettina wrote:

Halsudskæringen ser helt forfærdeligt dårligt tilpasset ud. Den laver en tydelig fold foran, fordi der ikke er lavet dyb nok udskæring. Det har jeg bemærket på flere af jeres herremodeller, desværre.

03.01.2022 - 00:38

country flag Maria wrote:

Come posso fare il collo più basso e più scavato davanti? Grazie.

12.10.2021 - 19:02

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

13.10.2021 - 18:16