DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10890.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rain Sky

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 224-11
DROPS Design: Mynstur st-010
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-450-500-550-600-650 g litur 06, smásteinn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10890.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 4,5.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri í umferð) þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (= prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hin prjónamerkin. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 135-140-145-150-155-165 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Soft Tweed.
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, fækkið öllum 3 lykkjum brugðið til 2 lykkjur brugðið = 108-112-116-120-124-132 lykkjur. Haldið áfram með stroff þar til kanturinn í hálsmáli mælist 13 cm. Síðar er kanturinn í hálsi brotinn niður tvöfaldur og við frágang þá mælist hann ca 6 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-28-24-36-40-56 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 132-140-140-156-164-188 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Setjið 4 prjónamerki í stykkið (án þess að prjóna lykkjurnar) þannig: Hoppið yfir fyrstu 23-25-25-29-31-37 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptingu á milli bakstykkis og ermi), hoppið yfir næstu 20 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptingu á milli ermi og framstykkis), hoppið yfir næstu 46-50-50-58-62-74 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptingu á milli framstykkis og ermi), hoppið yfir næstu 20 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptingu á milli ermi og bakstykkis), nú eru 23-25-25-29-31-37 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 23-26-30-30-33-35 sinnum = 316-348-380-396-428-468 lykkjur.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsmáli.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 46-51-55-59-64-72 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 66-72-80-80-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 92-102-110-118-128-144 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-72-80-80-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 46-51-55-59-64-72 lykkjur (= hálft bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 200-220-236-256-276-308 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist ca 5 cm frá skiptingu fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 9 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 184-204-220-240-260-292 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-20-24-24-24 lykkjur jafnt yfir = 200-220-240-264-284-316 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 66-72-80-80-86-90 lykkjur frá þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 74-80-88-90-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 5 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið - ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2-2-2-1½ cm millibili alls 10-12-15-15-16-17 sinnum = 54-56-58-60-64-66 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-42-41-39-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-6-8-8-6 lykkjur jafnt yfir = 60-64-64-68-72-72 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 49-47-46-44-43-41 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Rain Sky

Cora, Germany

Rain Sky

Sylwia, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Michel wrote:

Guten Tag Meine Maschenprobe hat vier Maschen weniger auf 10 cm, ich möchte aber nicht die Nadelnstärke wechseln. Muss ich dann die grössere Grösse anstricken? Danke für ihre Antwort

13.11.2023 - 11:01

DROPS Design answered:

Lieber Michel, wenn Sie die richtige Maschenprobe nicht haben, dann sollen Sie die ganze Anleitung nach Ihrer eigenen Maschenprobe umrechnen, damit alle fertigen Maßen stimmen - am besten versuchen Sie Ihre Maschenprobe zu waschen/spannen oder mit grösseren Nadeln, so stimmen am besten die Breite sowie die Höhe. Viel Spaß beim stricken!

13.11.2023 - 16:10

country flag Jitske wrote:

Hallo, ik ben deze trui aan 't breien. Voor het lijf moet er om de 9 cm 4maal geminderderd worden en daarna doorbreien tot 33 cm vanaf het armsgat. Bij 4x9 cm is het bij mij toch echt al 36 cm. Is dit een vergissing of reken ik vanaf het verkeerde punt? Bij voorbaat dank!

03.11.2023 - 21:20

DROPS Design answered:

Dag Jitske,

Als je aan het begin en aan het eind mindert en daar 2 keer tussenin, dan heb je 3 stukjes van 9 cm en kom je op 27 cm in totaal.

05.11.2023 - 18:54

country flag Maria Cristina wrote:

Scusate, non avevo inserito gli aumenti sotto la manica 10 + 10 . 236+20=256 Grazie

29.10.2023 - 17:55

country flag Maria Cristina wrote:

Scusate, non avevo inserito gli aumenti sotto la manica 10 + 10 . 236+20=256 Grazie

29.10.2023 - 17:54

country flag Maria Cristina wrote:

Buonasera, sto lavorando la taglia XL e ho riscontrato che nel CORPO non si parte da 256 maglie, bensì 236, che scaturiscono dalla somma di 118(davanti)+118(dietro). È corretto?

28.10.2023 - 23:26

country flag Tahlia wrote:

Hi, I am knitting this sweater and I have completed the neck and the yoke, am currently knitting the body of the sweater and was wondering when and how do I connect the back of the sweater up, so it isn't open??

10.08.2023 - 06:38

DROPS Design answered:

Dear Tahlia, in this lesson we show how to work a jumper top down, from picture 9) we show how to divide yoke for sleeves and body and then on picture 16) we continue body in the round. Hope it can help. Happy knitting!

10.08.2023 - 09:39

country flag Maja wrote:

Jeg vil gerne spørge om rullekraven, som skal sys, så den brede del (2 r, 3 vr) kommer inderst. Er det ikke den yderste del som plejer at være bredere for at skabe volumen?

30.03.2023 - 10:18

DROPS Design answered:

Hej Maja, det er for at den ikke skal blive for stram når du syr. Du må gerne sy den på ydersiden hvis du hellere vil det :)

13.04.2023 - 10:03

country flag Ulla Nieminen wrote:

Oletteko varmoja lankajuoksusta? Minulla on normaali käsiala ja se antaa 18 silmukkaa kymmeneen senttiin.

14.03.2023 - 11:38

DROPS Design answered:

Hei, ohjeessa annettu neuletiheys on sama kuin DROPS Soft Tweed -langan vyötteessä annettu neuletiheys. Eli sinun kannattaa vaihtaa ohuempiin puikkoihin.

20.03.2023 - 16:51

country flag Lopez wrote:

Bonjour, Est-ce normal d'avoir des fronces après avoir tricoté les augmentations du yok ? Merci pour votre réponse.

26.01.2023 - 21:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lopez, vous n'êtes à priori pas censée avoir de fronces lorsque vous augmentez pour le raglan - cette vidéo montre comment faire ce type d'augmentations, elle pourra peut-être vous aider à identifier la raison des fronces. Bon tricot!

27.01.2023 - 08:41

country flag Julita wrote:

Dzień dobry, czy sweter wydziergany z samej Soft Tweed, bez dodania nici lub Kid silk, nie będzie się rwał? Włóczka sama w sobie bardzo łatwo się rwie? Jaki to będzie miało wpływ na gotową dzianinę i jej wytrzymałość?

24.10.2022 - 10:55

DROPS Design answered:

Witaj Julito, Soft Tweed jest bardzo mocną włóczką. Dodatek Kid-Silka wpływa na na jego puszystość. I bez Kid-Silka dzianina będzie trzymała kształt. Jeśli planujesz wykonać sweter tylko z Soft Tweed, koniecznie zrób próbkę, dobierając druty tak, aby twoja próbka była zgodna z tą we wzorze, a jeśli jest mniejsza, wybierz większy rozmiar swetra. Pozdrawiamy!

24.10.2022 - 15:28