Pnel skrifaði:
Bij de afstand voor het minderen voor de mouwen staat voormaat xxl een zeer afwijkend aantal cm. Graag zou ik, en wellicht anderen, willen weten wat het juiste aantal is. Met vriendelijke groet.
30.01.2022 - 10:02
Au Fil De Lau skrifaði:
Pour obtenir 24 m sur 10 cm je dois passer à des aiguilles n°4 mais je trouve que le rendu est trop ajouré pour un pull homme Pour 24 m tricotées j'obtiens 8cm soit 4/5. Il faudrait donc que j'ajoute 20% de mailles en plus ?? Est-ce que je tiens le bon raisonnement ? Qu'en est-il pour les augmentations et les diminutions ? Est-ce pareil ? Comment taille ce modèle ?
20.01.2022 - 12:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Au Fil de Lau, essayez de bloquer votre échantillon pour vérifier si vous obtenez les bonnes mesures en largeur et en hauteur, si tel n'est pas le cas, il vous faudra alors tout recalculer, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; votre magasin pourra éventuellement vous aider. Merci pour votre compréhension, bon tricot!
20.01.2022 - 17:08
Gabriella skrifaði:
On the yoke increases: On 18/09 the english answer to Stefana´s question says to only increase EVERY OTHER round. But the italian answers on 20/11 both say to increase in EVERY round. I did the increases on every round as it states in the description, but I only have about 13 cm or so, very far from the 32 cm the yoke should measure in total. Which one is it? Do I need to restart and only increas every second row? It´s very confusing. Thank you!
11.01.2022 - 08:59DROPS Design svaraði:
Dear Gabriella, English pattern was wrong, you have to increase for raglan on every other round, correction will be made, thanks for your feedback. Happy knitting!
11.01.2022 - 09:22
Maria skrifaði:
Ik wil deze trui breien in een structuurpatroon. Moet ik dan meer steken opzetten? en hoeveel?
13.12.2021 - 15:00DROPS Design svaraði:
Dag Maria,
Je zou dan een proeflapje kunnen breien met het structuurpatroon en op basis van het aantal steken dat in 10 cm zit uit kunnen rekenen hoeveel steken je op moet zetten.
14.12.2021 - 10:26
Dea skrifaði:
Potreste cortesemente confermare che gli aumenti scritti per il raglan " Aumentare in questo modo su ogni giro per un totale di 28-33-36-39-43-48 volte" sono corretti? Se li faccio così non mi trovo con le misure. Grazie
19.11.2021 - 23:24DROPS Design svaraði:
Buongiorno Dea, le indicazioni sono corrette: gli aumenti sono su tutti i giri, alla fine degli aumenti prosegue a maglia rasata fino alla lunghezza indicata. Buon lavoro!
20.11.2021 - 12:16
Patricia skrifaði:
I have had to use a larger needle size from 3mm to 4mm. I take it that all needs must be increased by a size up e.g. 2.5mm becomes 3.5mm. Is this correct?
18.11.2021 - 17:01DROPS Design svaraði:
Dear Patricia, correct :) Happy knitting!
19.11.2021 - 07:04
Dea skrifaði:
Buongiorno, nelle istruzioni dice di aumentare nello sprone su ogni giro per un totale di 28-33-36-39-43- volte ma se faccio così mi avendo una resa di 10 cm ogni 32 giri poi alla fine non arrivo alla lunghezza di 23-25-26-28-30-32 cm dal segnapunti sul collo. Le indicazioni sono corrette o bisogna aumentare ogni 2 giri? Grazie
09.11.2021 - 11:02DROPS Design svaraði:
Buongiorno Dea, le indicazioni sono corrette: gli aumenti sono su tutti i giri, alla fine degli aumenti prosegue a maglia rasata fino alla lunghezza indicata. Buon lavoro!
20.11.2021 - 12:15
Stefana skrifaði:
The yoke increase says to increase each round, but that would give a flaring raglan. I suppose the increases are on every other round.
18.09.2021 - 15:07DROPS Design svaraði:
Dear Stefana, please see the description for the raglan increases before the starting of the pattern. It tells you to Increase 1 stitch on each side of the marker threads in the transitions between body and sleeves..... On the next round knit the yarn overs twisted to avoid holes. " So you only have to increase in ever other row. Happy Stitching!
19.09.2021 - 00:47
Flaming Mountain#flamingmountainsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 224-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 136 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 6,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 6. og 7. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hin prjónamerkin (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki og ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Aukið er út fyrir laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 136-136-144-152-152-160 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Alpaca. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 til 9 cm (kantur í hálsmáli er síðar brotinn saman tvöfaldur og á að vera ca 4 cm). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 20-16-20-20-16-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 116-120-124-132-136-144 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Byrjið á umferð = mitt að aftan. Teljið 22-23-24-26-27-29 lykkjur (= hálft bakstykki) og setjið 1. prjónamerki hér. Teljið 14 lykkjur (= ermi) og setjið 2. prjónamerki hér. Teljið 44-46-48-52-54-58 lykkjur (= framstykki) og setjið 3. prjónamerki hér. Teljið 14 lykkjur (= ermi) og setjið 4. prjónamerki hér. Það eru 22-23-24-26-27-29 lykkjur (= hálft bakstykki) fram að byrjun á umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 28-33-36-39-43-48 sinnum = 340-384-412-444-480-528 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 23-25-26-28-30-32 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 52-57-61-67-73-82 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 66-78-84-88-94-100 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 104-114-122-134-146-164 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-78-84-88-94-100 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 52-57-61-67-73-82 lykkjur (= hálft bakstykki). Þær ystu 2-1-1-2-3-5 lykkjur í hvorri hlið á ermum hafa nú verið prjónaðar inn á framstykki/bakstykki. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. Takið frá prjónamerkin í stykkinu. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 228-248-268-292-316-352 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið á stykki. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki í hliðum – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-7-5-5-8-5 cm millibili alls 3-6-5-5-3-5 sinnum = 216-224-248-272-304-332 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT eru auknar út 18-18-20-22-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 234-242-268-294-330-360 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 66-78-84-88-94-100 lykkjur frá þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 10-10-12-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 76-88-96-100-106-112 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem prjónaðar voru upp. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-3-2-4-2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir - ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4½-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 9-13-17-18-20-21 sinnum á hæðina = 58-62-62-64-66-70 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-41-40-38-37-35 cm frá skiptingu (það eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 62-66-66-68-70-74 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #flamingmountainsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.