DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Nordic Nights

Prjónuð peysa úr DROPS Alaska eða DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og norrænu mynstri á berustykki. Stærð XS - XXL.

DROPS 226-6
DROPS Design: Mynstur x-467
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-650-700-750-800-900 g litur 49, ljós brúnn
150-150-150-200-200-200 g litur 06, svartur

Eða notið:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-700-750-850 g litur 0618, kamel
150-150-150-200-200-200 g litur 8903, svartur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,2.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá skiptingunni á milli vinstri ermi og bakstykkis, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI.
Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón 5,5 með litnum svartur í DROPSA Alaska eða DROPS Nepal.
Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4.
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Skiptið yfir í litinn ljós brúnn í DROPS Alaska eða litinn kamel í DROPS Nepal og haldið áfram með stroff í 5 cm (= alls 11 cm stroff). Síðar á að brjóta kantinn í hálsi saman tvöfaldan og við frágang verður kanturinn ca 5 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-25-26-27-28-29 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 100-105-110-115-120-125 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós brúnn í DROPS Alaska eða litnum kamel í DROPS Nepal í 2-3-3-4-4-5 cm frá prjónamerki við hálsinn.
Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn.
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING:
Ör-1: Aukið út 24-27-28-33-34-35 lykkjur jafnt yfir = 124-132-138-148-154-160 lykkjur.
Ör-2: Aukið út 21-23-27-32-31-35 lykkjur jafnt yfir = 145-155-165-180-185-195 lykkjur (nú er pláss fyrir 29-31-33-36-37-39 mynstureiningar með 5 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 47-49-51-60-55-69 lykkjur jafnt yfir = 192-204-216-240-240-264 lykkjur.

Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 hringinn (= 16-17-18-20-20-22 mynstureiningar með 12 lykkjum). Prjónið A.2 og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir síðustu útaukningu í A.2 eru 224-238-252-280-300-330 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur.
ATH: Ef prjónfestan er rétt á hæðina þá kemur til með að verða eftir ca 5-6-4-4-2-2 cm af A.2 þegar stykkið er síðar skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar – A.2 er prjónað til loka á fram- og bakstykki og ermum eins og útskýrt er síðar.

Prjónið þar til berustykkið mælist 21-21-23-24-26-27 cm frá prjónamerki við hálsinn. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 44-47-48-56-60-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með A.2 yfir næstu 68-72-78-84-90-100 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 44-47-48-56-60-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og haldið áfram með A.2 eins og áður yfir síðustu 68-72-78-84-90-100 lykkjurnar (= framstykki). Klippið þráðinn frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 148-160-172-184-200-220 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir annarri erminni. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.2 hringinn – ATH: Prjónið eins langt og hægt er út að hvorri hlið undir ermum – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum undir ermum. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós brúnn í DROPS Alaska eða litnum kamel í DROPS Nepal þar til stykkið mælist 26-28-28-28-28-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragist saman, aukið nú út lykkjur eins og útskýrt er að neðan:
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-44-48-52-56-60 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 188-204-220-236-256-280 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 44-47-48-56-60-65 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-8-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, með litnum ljós brúnn í DROPS Alaska eða litnum kamel í DROPS Nepal = 50-55-56-64-70-75 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.2 hringinn – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós brúnn í DROPS Alaska eða litnum kamel í DROPS Nepal.
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-4-4-3-2½-2 cm millibili alls 3-3-3-5-6-7 sinnum = 44-49-50-54-58-61 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 34-35-33-33-31-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátaðu e.t.v. peysuna og prjónaðu að óskaðri lengd.
Prjónaðu 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-15-14-18-18-19 lykkjur jafnt yfir = 56-64-64-72-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Ermin mælist ca 41-41-39-39-37-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = ljós brúnn í DROPS Alaska eða kamel í DROPS Nepal
symbols = svartur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt með ljós brúnn í DROPS Alaska eða kamel í DROPS Nepal
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Nordic Nights

Angela, Netherlands

Nordic Nights

Kerstin, Germany

Nordic Nights

Missfelicitysmum, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Linda wrote:

Brei voor het eerst een noorse trui Na A1 en 264 steken ga ik nu beginnen met A2 en lees dat je 66 steken moet meerderen volgens tel patroon( waar en welke toer hoeveel meerderen ) snap het niet Met vriendelijke groet Linda

23.12.2023 - 15:46

country flag Es wrote:

Kan ik ergens vinden hoe ik verkorte toeren toe kan voegen aan dit patroon?

13.10.2023 - 17:32

DROPS Design answered:

Dag Es,

Bedoel je dat je verkorte toeren wilt maken om de hals aan de achterkant hoger te maken? Je zou naar een vergelijkbaar patroon kunnen kijken met dezelfde stekenverhouding, die wel verkorte toeren heeft.

15.10.2023 - 17:00

country flag Heather wrote:

What does it mean when it says the pattern won't fit under the sleeves for A2, what am I supposed to do there? Thank you

12.03.2023 - 01:04

DROPS Design answered:

Dear Heather, it means that when íyou do the pattern, you will have some stitches left over after the last repeat, that are not enough for a whole repeat. Those stitches should be knitted with stocking stitches. I hope this helps! Happy Knitting!

12.03.2023 - 15:26

country flag Gun Persson wrote:

Hej, muddarna blir för vida. Det behövs ingen ökning av maskorna när man övergår till ribbstickning på ärmarna. Istället minskade jag på sista varvet så att maskantalet blev 44 istället för 72 ! Dessutom använder jag ett halvnummer tunnare stickor till resåren än vad som föreslogs. Annars hade muddarna blivit mer som volanger. I nederkanten behöll jag maskantalet när jag övergick till ribbstickning . Tröjan blir snygg efter ändringarna.

11.03.2023 - 19:31

country flag Hannie wrote:

Als ik het patroon van de nordic nights dames trui uit print mis ik steeds 3a 4 woorden heb al van alles geprobeerd maar heb steeds hetzelfde probleem .

23.12.2022 - 14:32

country flag Angela wrote:

Hallo, ich würde den Pullover mit dem Muster Nordic Nights gerne nachstricken. Allerdings soll der Rumpfteil tailliert sein. Haben sie dazu Ab- und Zunahmetipps hinsichtlich der Häüfigkeit der Zu- und Abnhamen?

19.11.2022 - 16:51

DROPS Design answered:

Liebe Angela, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen, aber vielleicht könnnen Sie sich von einem anderen Modellen inspirieren. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

21.11.2022 - 08:47

country flag Lali wrote:

Buona sera, il capo è venuto benissimo, seguendo le vostre spiegazioni! È la prima volta che faccio un modello con sprone tondo e lavorazione jacquard! Vi ringrazio!

05.11.2022 - 22:49

country flag Lelletta wrote:

Scusatemi, avevo contato male, il disegno è perfetto! Scusatemi ancora

15.09.2022 - 12:49

country flag Lelletta wrote:

Buongiorno! Ho avviato le 8 nuove maglie per le maniche, ma ora non combacia più disegno, visto che il diagramma è di 14 maglie! Come devo regolarmi ora? Grazie mille per la vostra attenzione. Buon lavoro

15.09.2022 - 12:40

country flag Phyllis wrote:

Is this pattern available in a cardigan?

22.08.2022 - 12:37

DROPS Design answered:

Dear Phyllis, this pattern is only available as a jumper. Find all our jacket with nordic patterns here. Happy knitting!

22.08.2022 - 12:38