Gitte skrifaði:
Strikker str L, og har lige sat masker til hvile. Der er så 2 masker mere på det ene ærme jf. jeres opskrift. Hvad plejer I at gøre? Tage 2 masker ekstra op på det ene ærme, når jeg strikker ærmer?
24.02.2023 - 23:54DROPS Design svaraði:
Hej Gitte, det skal være 44 masker på begge ærmer, tak for info - vi retter :)
28.02.2023 - 15:10
Gitte skrifaði:
Strikker en str L. Har lige sat ærmer til hvile. Der er 2 masker mere på det ene. Er det meningen?
24.02.2023 - 23:52
Annette Christensen skrifaði:
Hej jeg ville høre hvilken str modellen på billedet er strikket i, da det ville være en stor hjælp jeg strikker trøjen i Snow garn\r\nMvh Annette Christensen
16.11.2022 - 16:27
Emma skrifaði:
Hi, there's an error in this piece for size L. The stitch count on setting up the yoke is 56, but the instructions for placing markers give 18 (back) + 8 (sleeve) + 18 (front) + 8 (sleeve) = 52 stitches. Either the decrease count is wrong or the number of stitches in the front and back is incorrect. I chose to use 20 stitches in the front and back.
24.04.2022 - 22:33DROPS Design svaraði:
Dear Emma, you should insert a marker in each of the raglan stitches between body and sleeves, so that you will have: 1 stitch with a marker, 18 sts for back piece, 1 stitch with a marker, 8 sts for 1st sleeve, 1 stitch with a marker, 18 sts for front piece, 1 stitch with a marker, 8 sts for 2nd sleeve = 1+18+1+8+1+18+1+8=56 sts. Happy knitting!
25.04.2022 - 08:40
Janina Vik skrifaði:
Hei, hvilke mål har ferdig genser?
16.01.2022 - 13:16DROPS Design svaraði:
Hei Janina, Du finner en målskisse for alle størrelsene på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!
17.01.2022 - 07:17
Agnieszka skrifaði:
Please help me swap the yarns for this dot pattern. I would like to use Drops Karisma - 2 threads. How many skeins of threads do I have to buy?
11.12.2021 - 17:00DROPS Design svaraði:
Dear Agnieszka, DROPS Wish is an airy yarn and Karisma has a different structure, so the sweater will have a very different feel. You would need at least 14 balls of Karisma for the smallest size. Happy knitting!
11.12.2021 - 21:01
Agnieszka skrifaði:
Dzień dobry, Proszę o pomoc w zamianie włóczki. Chce zamienić włóczkę na 2 nitki Drops Karisma, Ile będę potrzebować Karismy?
11.12.2021 - 16:44DROPS Design svaraði:
Witaj Agnieszko, łącząc 2 nitki z grupy B, otrzymasz grupę włóczek D. We wzorze jest grubsza włóczka (Grupa E). Musiałabyś wykonać próbkę, ale obawiam się, że druty podane we wzorze będą za duże. Dla mniejszych próbka będzie mniejsza, a to spowoduje wiele zmian. Możesz połączyć 2 nitki z grupy C (jak we wzorze), np. 2 nitki włóczki Air, czy 2 nitki Alaska lub Nepal (w tym drugim przypadku sweter będzie jednak znacznie cięższy). Ja proponuję Air. Ile włóczki potrzeba możesz sprawdzić TUTAJ. Pozdrawiamy!
12.12.2021 - 21:12
Alexandra skrifaði:
Bonjour Il y a une faute de frappe : 560 g de fil en taille L (dans le patron original aussi) Bonne journée
26.09.2021 - 09:10
Almond Breeze#almondbreezesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 224-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki þannig: Prjónið að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. í byrjun á umferð er aukið út með 1 uppslætti á eftir fyrstu lykkju og í lok umferðar er aukið út með 1 uppslætti á eftir síðustu lykkju í umferð. Þ.e.a.s. lykkja með 1. prjónamerki stendur eftir sem fyrsta lykkjan í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 87-90-96-102-108-114 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, fækkið öllum 2 lykkjum brugðið til 1 lykkja brugðið = 58-60-64-68-72-76 lykkjur. Haldið áfram með stroff með 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið þar til kanturinn í hálsi mælist 21 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn niður tvöfaldur og við frágang þá mælist hann ca 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-6-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 52-54-56-60-62-66 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, stykkið er nú mælt héðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 4 prjónamerki í næstu umferð (án þess að prjóna lykkjur) þannig: Setjið 1 prjónamerki í 1. lykkju í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), teljið 16-17-18-20-21-23 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 8 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 16-17-18-20-21-23 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, nú eru 8 lykkjur í umferð (= ermi). Stykkið er prjónað í sléttprjóni og aukið er út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-16-17-18-20-21 sinnum = 172-182-192-204-222-234 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 20-21-23-24-27-28 cm frá prjónamerki. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 22-24-25-27-28-30 cm frá prjónamerki – í stærð XXL og XXXL verður að stilla af þannig að umferðin endar á 1 lykkju á undan síðustu lykkju í umferð (þ.e.a.s. 1 lykkja á undan lykkju með prjónamerki í). Þetta er mikilvægt til að stykkið verði samhverft þegar prjónað er áfram. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 48-51-54-58-65-69 lykkjur slétt, setjið næstu 38-40-42-44-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-4-6-6-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 48-51-54-58-65-69 lykkjur, setjið næstu 38-40-42-44-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-4-6-6-8 nýjar lykkjur undir ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 104-110-116-128-142-154 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 33-33-34-34-35-35 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 5 cm til loka máls). Prjónið nú 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 124-132-140-152-170-182 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl. ERMI: Setjið 38-40-42-44-46-48 lykkjur frá þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 42-44-46-50-52-56 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 4-4-4-6-6-8 lykkjur og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6½-5-5-4-3½- 3 cm millibili alls 6-7-7-8-9-10 sinnum = 30-30-32-34-34-36 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 43-41-41-39-39-37 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru ca 7 cm að loka máli). Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Ermin mælist ca 50-48-48-46-46-44 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #almondbreezesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.