Liliane Dänzer skrifaði:
Merci pour tous ces beaux modèles. J'ai fait celui ci aussi )))
20.01.2022 - 15:40
Stephanie HERMOSO skrifaði:
Bonjour comment faire ce model mais avec des aig droite? Cordialement
19.12.2021 - 15:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Hermoso, cette vidéo explique comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
20.12.2021 - 07:53
Ragna skrifaði:
Der står i opskriften, at der tages ind 2 m over hver A2 og 4 m over hver A4/A3 det gir ialt 14 men det skal kun b Gi 10???? Hvordan tages der ind over snoningerne? Hilsen Ragna
03.11.2021 - 10:22DROPS Design svaraði:
Hej Ragna, første gang du tager ind, er det kun over de 3 midterste snoninger du tager ind over, først 4 masker, så 2 over A2, og sidst 4 masker. God fornøjelse!
03.11.2021 - 10:39
Ans skrifaði:
Waarom laad het telpatroon niet van spencer Early Frost Drops 227-8?
14.10.2021 - 16:33
Mieke skrifaði:
Kan ik deze trui ook breien met enkel Alpaca? Geen kid-silk dus?
10.10.2021 - 13:11DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Ja dat kan. Je breit hem dan met 2 draden DROPS Alpaca, in plaats van 1 draad DROPS Alpaca en 1 draad DROPS Kid-Silk. Je kunt dan de dubbele hoeveelheid alpaca nemen.
p.s.: We hebben ook een artikel op de site staan waarin uitgelegd is hoe je garen kunt vervangen met een ander garen en hoe je dit uitrekent. Zie hier.
13.10.2021 - 08:49
Gerrie Vuurboom skrifaði:
Goedenavond ik kan geen van de patronen van drops openen .. hebben jullie een storing ?
25.09.2021 - 21:19
Hannele LLehtinen skrifaði:
Mikä ongelma kun en saa resorin jälkeen tehtyä oikein noita silmukka ohjeita
08.09.2021 - 12:03
Hannele Lehtinen skrifaði:
Missä vika kun en resorin jälkeen saa jatkoa oikein A1 ja niin edelleen
08.09.2021 - 12:00DROPS Design svaraði:
Joustinneuleen jälkeen neulotaan 1 kerros oikein, jossa lisätään silmukoita. Lisäysten jälkeen oikeat ja nurjat raidat eivät jatku rikkoutumattomina.
09.09.2021 - 17:09
Mille skrifaði:
Cable knot slipover
17.08.2021 - 02:02
Véronique skrifaði:
Flocons de neige
13.08.2021 - 15:14
Early Frost#earlyfrostslipover |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum, kúlum og tvöföldum kanti í hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-8 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 166 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 21) = 7,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykki og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig, fram og til baka á hringprjóna. Að lokum er prjónaður kantur í kringum handvegi og hálsmál. Vestið er prjónað úr 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 166-182-190-208-230-254 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 21-21-21-25-25-25 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 187-203-211-233-255-279 lykkjur. Haldið svona áfram þannig: Stærð S-M-L: Prjónið A.1 yfir fyrstu 16-20-22 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2 (4 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.4 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.4, 2 lykkjur brugðið, A.5 yfir síðustu 99-111-117 lykkjur. Stærð XL-XXL-XXXL: Prjónið A.1 yfir fyrstu 20-26-32 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, A.2 (= 4 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.4 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.4, 4 lykkjur brugðið, A.2, 2 lykkjur brugðið, A.5 yfir síðustu 125-141-159 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af fyrir handveg – stillið af að þessi umferð sé oddatala í A.2/A.3/A.4 (þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að kaðlarnir séu prjónaðir frá röngu þegar bakstykkið og framstykkið er prjónað áfram): Fellið af fyrstu 3 lykkjur í umferð, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 98-106-110-122-134-146 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 77-85-89-99-109-121 lykkjur (= bakstykki) og fellið af síðustu 3 lykkjur í umferð. Hvort stykki er núna prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka í umferð. Setjið síðustu 77-85-89-99-109-121 lykkjur á þráð (= bakstykki) og prjónið áfram yfir fyrstu 98-106-110-122-134-146 lykkjur (= framstykki). FRAMSTYKKI: = 98-106-110-122-134-146 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og haldið áfram að fella af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 2-3-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 2-2-3-4-5-7 sinnum = 86-90-92-98-104-108 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 25-23-23-25-27-28 lykkjur, prjónið næstu 36-44-46-48-50-52 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur yfir hvert A.2 og 4 lykkjur yfir hvert A.3/A.4, prjónið síðan síðustu 25-23-23-25-27-28 lykkjur (fækkað er um alls 10-14-14-14-14-14 lykkjur jafnt yfir kaðla). Í næstu umferð eru miðju 18-22-24-26-28-30 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli = 29-27-27-29-31-32 lykkjur á hvorri öxl. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað frá hálsi í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 25-23-23-25-27-28 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjum yfir A.2 og 4 lykkjur yfir A.3/A.4 = 19-19-19-19-21-22 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: = 77-85-89-99-109-121 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-3-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 2-2-3-4-5-7 sinnum = 65-69-71-75-79-83 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fellið af miðju 25-29-31-35-35-37 fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 19-19-19-19-21-22 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn. Prjónið upp ca 80 til 90 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði og lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2) á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram þar til stroffið mælist 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu við hliðarsaum undir handveg. Notið stuttan hringprjón 4 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir) og prjónið upp ca 102 til 126 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #earlyfrostslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.