DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

River Rapids

Prjónað vesti úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum, kúlum og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-7
DROPS Design: Mynstur z-935
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350-350-400-450 g litur 100, natur
Og notið
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 38, krít

DROPS TALA, Marble NR 629: 5-6-6-6-6-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 5, 15, 25, 35 og 45 cm
M: 5, 13, 21, 29, 38 og 47 cm
L: 5, 13, 22, 31, 40 og 49 cm
XL: 5, 14, 23, 32, 41 og 50 cm
XXL: 5, 14, 23, 32, 42 og 52 cm
XXXL: 5, 13, 21, 29, 37, 45 og 54 cm

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 175 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 45) = 3,6.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan upp að handveg. Síðan skiptist stykkið og framstykkin og bakstykki er prjónað til loka hvert fyrir sig. Að lokum er prjónaður kantur í kringum handveg og hálsmál. Vestið er prjónað úr 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 175-191-199-215-239-263 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 45-45-45-53-53-53 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 220-236-244-268-292-316 lykkjur. Haldið svona áfram – frá réttu:
Stærð S-M-L:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, A.1 (= 4 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir næstu 29-37-41 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir næstu 29-37-41 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Stærð XL-XXL-XXXL:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, A.1 (= 4 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir næstu 37-49-61 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir næstu 37-49-61 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Haldið áfram með þetta mynstur, munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af fyrir handveg þannig – frá réttu: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 55-59-61-67-73-79 lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 98-106-110-122-134-146 lykkjur (= bakstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 55-59-61-67-73-79 lykkjur (= vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu og síðustu 55-59-61-67-73-79 lykkjur á þráð fyrir framstykki og prjónið síðan yfir 98-106-110-122-134-146 lykkjur á bakstykki. Klippið þráðinn.

BAKSTYKKI:
= 98-106-110-122-134-146 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 3-3-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-4-5-7 sinnum = 80-88-92-98-104-108 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 22-22-23-25-27-28 lykkjur, prjónið næstu 36-44-46-48-50-52 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur yfir hvert A.1 og 4 lykkjur yfir hvert A.2/A.3 (alls 10-10-14-14-14-14 lykkjur færri yfir kaðla), prjónið síðan síðustu 22-22-23-25-27-28 lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru felldar af miðju 26-30-32-34-36-38 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir A.1 (á við um stærð S, XXL og XXXL) og 4 lykkjur yfir A.2/A.3 (á við um allar stærðir) (6-4-4-4-6-6 lykkjur færri) = 16-18-19-19-21-22 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka fyrstu 55-59-61-67-73-79 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu. 2 lykkjur 3-3-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-5-7 sinnum = 46-50-52-55-58-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-51-53-55 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir 2 fyrstu mynstureiningar af A.1 (við miðju að framan) og 4 lykkjur yfir A.2. Í næstu umferð frá réttu eru fyrstu 14-16-17-18-19-19 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli (prjónið lykkjurnar fyrst). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2-2-2-2-2-3 sinnum = 20-22-23-25-27-28 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir A.1 (í stærð XL, XXL og XXXL) og 4 lykkjur yfir A.3 = 16-18-19-19-21-22 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka síðustu 55-59-61-67-73-79 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu. 2 lykkjur 3-3-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-5-7 sinnum = 46-50-52-55-58-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-51-53-55 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir 2 síðustu mynstureiningar af A.1 (við miðju að framan) og 4 lykkjur yfir A.3. Í næstu umferð frá röngu eru fyrstu 14-16-17-18-19-19 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli (prjónið lykkjurnar fyrst). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2-2-2-2-2-3 sinnum = 20-22-23-25-27-28 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir A.1 (í stærð XL, XXL og XXXL) og 4 lykkjur yfir A.2 = 16-18-19-19-21-22 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið tölur í vinstra framstykki.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt að framan frá réttu. Prjónið upp ca 91 til 101 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum) á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið áfram þar til stroffið mælist 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Byrjið við hliðarsaum undir handveg og frá réttu. Prjónið upp ca 102 til 126 lykkjur í kringum allan handveginn á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Kúla: prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju (= 3 lykkjur), prjónið 5 umferðir sléttprjón yfir þessar lykkjur, í 6. umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt saman = 1 lykkja
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Wil Kerkmeer wrote:

Ik zou deze spencer zo graag in de kleur paardenbloem willen maken en kom dan uit bij Nord ipv Alpaca. Welke kid-silk kleur leent zich goed om te combinere? Zou de limonadekleur er goed bij kleuren of wijkt deze teveel af? En anders in Nepal, hoeveel garen heb ik dan nodig? Vrgr

19.10.2023 - 13:27

DROPS Design answered:

Dag Wil,

Voor het vervangen van het garen kun je de garenvervanger gebruiken, deze vindt je onderaan de lijst met materialen bij ieder patroon. Voor de kleur is het ook een beetje een kwestie van persoonlijke smaak ben ik bang. Wat je zou kunnen doen is extra bollen bestellen en welke je niet gebruikt terug sturen.

19.10.2023 - 19:52

country flag Helen MCLEAN wrote:

Where can I find the finished measurements for all the different sizes?

06.07.2023 - 03:47

DROPS Design answered:

Dear Helen, for the finished measurements please see the sketch below the instructions (measurements are given in the same order as the sizes). Happy knitting!

06.07.2023 - 04:39

country flag Rinat wrote:

Hello I have big holes around the bobble, Is that normal?

18.11.2022 - 14:35

DROPS Design answered:

Dear Rinat, there might be holes when working bobbles, but when working next row, the holes should be smaller/almost hidden - but to be sure, you can show your work to your store (even sending a picture by mail), or ask other knitters in our DROPS Workshop. Happy knitting!

18.11.2022 - 15:45

country flag Janne T wrote:

Ryg og forstykke. Der skulle være 220 masker i smalle, men mønsteret giver 224 masker. Og de 29 masker er et ulige antal, men mønster A4 er beregnet til et lige antal, (deleligt med 2 masker). Har talt sammen flere gange og kan ikke få 220. Hvad gør jeg, hvor er fejlen?

11.06.2022 - 20:59

DROPS Design answered:

Hei Janne. Husk at det står at A.4 skal strikkes over 29 masker. Så du strikker ikke en hel rapport av A.4, men over det maskeantallet det står i oppskriften (da starter og slutter det med 1 maske rett). Når du da strikker slik det står, stemmer maskeantallet med 220 masker i str. S. 5+2+4+4+8+4+4+4+8+2+29+2+8+4+4+4+8+4+4+4+8+4+4+4+8+2+29+2+8+4+ 4+4+8+4+4+2+5=220 masker. mvh DROPS Design

13.06.2022 - 10:40

country flag Kjersti Swang Unnerud wrote:

Vedr flettemønster. Står kun flette mot venstre på diagrammet. Og diagram A.2 står det ikke som det ser ut på bildet av vesten at det skal være flettemønster før boblene. Vanskelig for å forstå oppskriften her.

06.02.2022 - 21:39

DROPS Design answered:

Hej Kjersti, mønstrene strikkes lidt forskelligt i de forskellige størrelser. Hvilken størrelse strikker du? og hvilket diagram mangler du?

09.02.2022 - 10:00

country flag Solbjörg Thoresson wrote:

Hej, Om jag vill sticka denna i bara Alpacka i str L, hur mycket garn skall jag köpa då?

25.01.2022 - 09:26

DROPS Design answered:

Hei Solbjørg. Om du ønsker å strikke denne med 2 tråder Alpaca må du nesten doble garnmengden i Alpaca for å være sikker. I str. L = ca 650-700 gram. mvh DROPS Design

25.01.2022 - 14:37

country flag Lisette wrote:

Encore moi et bien après avoir débuté mon tricot je constate qu il y a des erreurs côté droit et gauche des torsades on devrait plutôt lire : A1, A3 et non A2,A1, A3, A1, A4 au dessus des 37 mailles, A1, A3 et non A2,A1, A3, A1,A3 et non A2, A1,A3, A1,A4 au dessus des 37 m, A1,A3 au lieu de A2, A1, A3 là les deux devants sont pareils …merci

27.11.2021 - 18:26

DROPS Design answered:

Bonjour Lisette, les diagrammes sont corrects ainsi, les deux devants ne sont pas identiques, comme vous pourrez le constater sur la photo, les nopes ne sont pas au même niveau sur la 1ère grande torsade (A.2 et A.3) de part et d'autre de A.1 (ou encore sur le zoom, dernière photo). Bon tricot!

29.11.2021 - 08:43

country flag Lisette wrote:

Merci votre explication est très claire.

24.11.2021 - 20:56

country flag Lisette wrote:

Y a t il erreur, lorsque je débute le patron grandeur xl le patron débute par 5 m bordure 2 m envers A1 (4 M) = 11 m la fin du rang se termine par 4 m enversA1 ,(4 m) 2 m envers 5 m de bordure cela donne 15 mailles il n y a donc pas symétrie lorsque je débute sur l envers du tricot qu est ce ce que ne comprends pas. je devrais avoir le même nombre de mailles à gauche et à droite…. merci

23.11.2021 - 17:58

DROPS Design answered:

Bonjour Lisette, j'ai peur de ne pas bien comprendre votre question: dans toutes les tailles, vous avez 5 m de bordure devant, 2 m env, A.1 et 4 m env = 15 m pour le devant droit et 4 m env, A.1, 2 m env, 5 m de bordure devant = 15 m pour le devant gauche en fin de rang, vous avez bien ces mêmes 15 mailles. Aurais-je mal compris?

24.11.2021 - 07:32

country flag Lisa wrote:

Gehört auch definitiv zu meinen Favoriten ❤🧡💛

15.09.2021 - 18:15