Birgit skrifaði:
Wie kann ich im Perlmuster einzelne Maschen wie oben angegeben zunehmen ohne dass das Muster dauerhaft ab der Zunhamestelle zwei re od. zwei li Maschen nacheinander hat? Vielen Dank für die Hilfe!
22.10.2021 - 19:17DROPS Design svaraði:
Liebe Birgit, Sie müssen die zugenommenen Maschen nach und nach in das Perlmuster einarbeiten, sodass es sich richtig in Richtung der Raglanlinie fortsetzt. Sie nehmen ja in jeder 2. Runde zu und haben dann also nach jeweils 4 Runden genug Maschen für einen neuen Mustersatz A.1 (der ja aus 2 Maschen in der Breite besteht). Gutes Gelingen!
26.10.2021 - 20:13
Michaela skrifaði:
Hallo, ich möchte den Pullover 226-9 stricken, aber nicht in grün. Ich habe mir folgende Farbkombinationen ausgesucht, kann aber am Bildschirm nicht wirklich erkennen, ob die Farben harmonisch zusammenpassen: 1. 39 Sturmblau / 43 Blauer Wind 2. 27 Jeansblau / 06 Blauer Nebel Kann mir das jemand sagen, der die Garne vorliegen hat? Danke sehr!
14.10.2021 - 09:25DROPS Design svaraði:
Liebe Michaela, am besten wenden Sie sich direkt an Ihrem DROPS Laden, auch telefonish oder per E-Mail wird man Ihnen die besten Farben empfehlen. Viel Spaß beim stricken!
14.10.2021 - 09:35
Christel skrifaði:
Det var mig der læste opskriften forkert - så slet I bare mit spørgsmål
01.10.2021 - 21:54
Christel skrifaði:
Jeg mener der er en fejl o opskriften, jeg strikker største størrelse og har 120 masker efter ribkanten. Men de masker der skal strikkes i bærestykket er kun 108 - er det mig der er galt på den??
01.10.2021 - 19:09DROPS Design svaraði:
Hej Christel. Så fint att det löste sig. Mvh DROPS Design
04.10.2021 - 11:57
Sandrine Revuelta skrifaði:
Bonjour, Je suis déçu le col terminé et je ne peux pas continuer car la partie empiècement contient des erreurs ! Très souvent je trouve les explications des modèles peu explicitent, c'est bien dommage.
22.09.2021 - 17:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Revuelta, pouvez-vous nous en dire plus? Quelle taille tricotez-vous? À quel moment êtes-vous coincée et pourquoi? Ainsi, nous pourrons vérifier ensemble. Merci d'avance!
23.09.2021 - 08:55
Silvia skrifaði:
Salve!! Non mi è chiaro dove devo aumentare per il raglan… vediamo se ho capito: I aum. fra corpo e A2, II aum. fra A2 e manica, III aum fra manica e A2, IV aum. fra A2 e corpo. Tutti gli aumenti sono all’interno dello schema A2, giusto?
15.09.2021 - 08:50DROPS Design svaraði:
Buongiorno Silvia, deve aumentare a ogni lato di A.2, quindi prima e dopo il diagramma A.2. Buon lavoro!
17.09.2021 - 10:45
Katarina skrifaði:
När jag stickat halskanten har jag 96 maskor kvar på strl M, men i oket början av beskrivningen får jag det till 84 maskor, när jag stickat som det står har jag maskor kvar. Förstår inte vart det blir fel?
05.09.2021 - 16:31DROPS Design svaraði:
Hej Katarina. Såhär stickar du i början av oket i storlek M: 19+6+7+6+29+6+7+6+10 = 96 m. Mvh DROPS Design
07.09.2021 - 09:27
Tanja Balling Sørensen skrifaði:
“Indispensable” or “autumn not”.
14.08.2021 - 15:55
Juni Rawati skrifaði:
Checked
07.08.2021 - 06:25
Monika Erhardsson skrifaði:
Tallskog
05.08.2021 - 17:04
Hyde Park#hydeparksweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, perluprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 226-9 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 10 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 3,3. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð) þannig. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1 (tvöfalt perluprjón á hæðina). ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (lykkja með prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁSMÁLI: Fitjið upp 72-80-80-88-88-96 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvoru lit í DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn saman tvöfaldur og við frágang þá verður kanturinn ca 4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 10-14-14-18-18-22 lykkjur og aukið jafnframt út um 3-5-5-5-5-7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (= 13-19-19-23-23-29 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 6 lykkjur og aukið út um 1 lykkju jafnt yfir (= 7 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 18-22-22-26-26-30 lykkjur og aukið jafnframt út um 5-7-7-7-9-11 lykkjur jafnt yfir (= 23-29-29-33-35-41 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 6 lykkjur og aukið út um 1 lykkju (= 7 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið sléttar lykkju yfir síðustu 8-8-8-8-8-8 lykkjur og aukið jafnframt út um 2-2-2-2-4-4 lykkjur (= 10-10-10-10-12-12 lykkjur) = 84-96-96-104-108-120 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 13-19-19-23-23-29 lykkjur (= bakstykki), A.2, A.1 yfir næstu 7 lykkjur (= ermi), A.2, A.1 yfir næstu 23-29-29-33-35-41 lykkjur (= framstykki), A.2 yfir næstu 6 lykkjur, A.1 yfir næstu 7 lykkjur (= ermi), A.2 yfir næstu 6 lykkjur, A.1 yfir síðustu 10-10-10-10-12-12 lykkjur (= bakstykki). Haldið svona áfram hringinn. Jafnframt í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 18-20-23-24-25-27 sinnum = 228-256-280-296-308-336 lykkjur. Útaukning á ermum er nú lokið. Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki 2-1-1-1-2-3 sinnum til viðbótar (= 18-20-23-24-25-27 lykkjur fleiri í hvorri hlið á ermi og 20-21-24-25-27-30 lykkjur fleiri í hvorri hlið á framstykki og bakstykki) = 236-260-284-300-316-348 lykkjur. Prjónið A.1 og A.2 þar til stykkið mælist 20-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki á eftir kanti í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 36-43-46-51-53-62 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 49-53-59-61-63-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-11-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 69-77-83-89-95-107 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 49-53-59-61-63-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-11-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 33-34-37-38-42-45 lykkjur (= bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-172-184-200-212-236 lykkjur. Haldið áfram hringinn með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur frá A.2 og prjónið A.1 yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð (meðtaldar nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi). Þegar stykkið mælist 24-26-26-26-26-26 cm frá skiptingu, prjónið A.1 eins og áður að 2 lykkjum brugðið (= A.2). Prjónið síðan þannig: * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt (= A.2), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjur og aukið jafnframt út um 3-3-3-5-5-5 lykkjur jafnt yfir (= 12-12-12-16-16-16 lykkjur), prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið (= A.2), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 63-71-77-83-89-101 lykkjur og aukið jafnframt út um 11-11-13-15-17-17 lykkjur jafnt yfir (= 74-82-90-98-106-118 lykkjur) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 184-200-216-240-254-280 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) hringinn í umferð. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 49-53-59-61-63-67 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9-9-9-11-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 58-62-68-72-74-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju nýju lykkjuna sem fitjuð var upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Haldið áfram hringinn með A.1 – stillið af að mynstrið haldi áfram yfir lykkjur á ermi. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-4-2-2-2-2 cm millibili alls 5-6-8-9-9-10 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-37-36-34-33-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-8-10-8-10 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-64-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hydeparksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.