Lissy skrifaði:
Hvordan skal udtagning forstås : “ Strik 1 pind ret fra retsiden hvor der tages 3-1-2-13-14-15 jævnt fordelt” I mine ører giver det slet ingen mening
10.01.2024 - 11:52DROPS Design svaraði:
Hej Lissy, det kommer an på hvilken størrelse du strikker. I den mindste størrelse tager du 3 masker ud jævnt fordelt, i str M tager du 1 m ud osv :)
11.01.2024 - 14:07
Susanne skrifaði:
Kunne man strikke flæse direkte på Blusen? F.eks ved at sætte en wire i maskerne istedet for en snor - og tage ind til Sidst Snor
13.12.2023 - 19:03DROPS Design svaraði:
Hej Susanne, prøv på en lille prøve først, så du ser om det bliver fint :)
14.12.2023 - 08:26
Jenny Strick skrifaði:
So ein schönes feminines Design! Mal was ganz anderes. Bin verliebt in meinen neuen Sweater!
08.12.2023 - 10:52
Zsuzsa skrifaði:
Ususally the S size of the Drops Design patterns fit perfectly, but this time it was too tight and had to re-knit it in size M. So just a hint: double-check the size and measurement before start knitting.
13.05.2023 - 18:10
Diletta skrifaði:
Buongiorno. Il diagramma A1 devo leggerlo considerando che devo partire prima dalla riga sotto o da quella sopra? Grazie per l'aiuto
05.03.2023 - 19:10DROPS Design svaraði:
Buonasera Diletta, i diagrammi si leggono dal basso verso l'alto, da destra verso sinistra per la lavorazione in tondo. Buon lavoro!
06.03.2023 - 20:05
Beatrice skrifaði:
Buongiorno. Non ho capito come si realizza A1. Il quadratino nero cosa istruisce a fare nello specifico?
05.03.2023 - 19:08DROPS Design svaraði:
Buonasera Beatrice, per il quadratino nero deve lavorare 1 maglia diritto, 1 gettato e 1 maglia diritto ritorto nella stessa maglia. Buon lavoro!
06.03.2023 - 20:07
Karin skrifaði:
Hvordan syer jeg flæsen fast til sidst? Jeg kan ikke finde en video som viser det. Mvh. Karin
08.06.2022 - 23:24DROPS Design svaraði:
Hej Karin, vi har mange monteringsvideoer, jeg tror du kan bruge denne: Montering (Lomme)
10.06.2022 - 08:45
JJ skrifaði:
Hello. I have made this nice model and decided to go with the flounce all around the sweater. However, the flounce is not heavy enough and it curls up on itself. How should I keep it down to make it look tidy like in your pictures? Thank you.
23.01.2022 - 12:17DROPS Design svaraði:
Dear JJ, you can block it, wash it and let it dry as flat as possible. Happy knitting!
24.01.2022 - 09:32
Els skrifaði:
Bij de ruche af zetten krolt mijn afgezet stuk naar binnen. Hoe los ik dat op? Bedankt
01.12.2021 - 21:34
Tara skrifaði:
Thank you for the beautiful pattern! I was wondering if i can pick up the 164 (82*2) stitches for the flounce directly from the row that i put the marker thread in, and knit the flounce directly in the round? would that mess up the folds? Also, would the neck band stick out if I knit it to a fold, stitch for stitch right at end of the 9 cm? (considering it's supposed to be a "loose" sew in) I'm not an experienced knitter and i would appreciate guidance :)
11.11.2021 - 10:01DROPS Design svaraði:
Dear Tara, yes it is possible to pick up stitches and knit the flounce directly on the jumper. You can also knit the neck band together instead of sewing it (see for ex. this video showing how to knit a folded edge). Happy knitting!
18.11.2021 - 10:10
Winter Frill#winterfrillsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og pífu. Stærð S – XXXL.
DROPS 227-12 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 13) = 7,1. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út á berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjóna, ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónuð pífa sem er saumuð niður á berustykkið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-84-88-92-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist 9 cm. Síðar er kanturinn í hálsmáli brotinn tvöfaldur saman og við frágang þá verður kanturinn ca 4 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 3-1-2-13-14-15 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 75-85-90-105-110-115 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 3 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð er A.1 prjónað yfir allar lykkjur (= 15-17-18-21-22-23 mynstureiningar með 5 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 30-34-36-42-44-46 lykkjur = 105-119-126-147-154-161 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 9-9-10-10-11-11 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-2-1-1-2-1 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 105-115-125-145-150-160 lykkjur (= 21-23-25-29-30-32 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 0-2-0-1-2-0 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 42-46-50-58-60-64 lykkjur = 147-165-176-205-214-225 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm frá prjónamerki, þræðið merkiþráð í gegnum allar lykkjurnar á prjóninum. Þessi þráður er notaður síðar þegar pífan er saumuð niður á peysuna. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 1-0-1-0-2-0 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 145-165-175-205-210-225 lykkjur (= 29-33-35-41-42-45 mynstureiningar með 5 lykkjum), 1-0-0-0-2-0 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 58-66-70-82-84-90 lykkjur = 205-231-246-287-298-315 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm, aukið nú um 27-29-26-17-26-29 lykkjur jafnt yfir = 232-260-272-304-324-344 lykkjur. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 34-39-40-44-49-53 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-78-80-88-98-106 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-39-40-44-49-53 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 148-168-176-192-216-236 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 18-18-19-19-19-19 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru lykkjur auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykki saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 32-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir = 180-200-212-232-260-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Prjónið stroff í 10 cm. Fellið laust af með sléttum lykjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-5-3-2½-2-2 cm millibili alls 4-5-7-10-10-11 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 32-30-30-29-28-26 cm frá skiptingu (það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. PÍFA: Pífan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna og saumuð niður á framhlið á peysunni, frá annarri öxlinni að hinni öxlinni. Ef pífan á að fara allan hringinn á peysunni, þá er hægt að tvöfalda lykkjufjöldann. Fitjið upp 74-82-86-102-106-114 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú sléttprjón og aukið út lykkjur þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 2 lykkjur slétt. Nú hafa verið auknar út 36-40-42-50-52-56 lykkjur og það eru 110-122-128-152-158-170 lykkjur í umferð. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið, uppslátturinn er prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt). UMFERÐ 3 (= rétta): * Prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og endið á 2 lykkjur slétt. Nú hafa verið auknar út 36-40-42-50-52-56 lykkjur og það eru 146-162-170-202-208-226 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið, uppslátturinn er prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt). Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 8-9-9-9-10-10 cm og stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina. Fellið laust af í næstu umferð, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Pífan er saumið niður á framhlið á peysu, frá öxl að öxl. Saumið pífuna meðfram merkiþræði sem var settur í á berustykki, með smáu spori. Dragið merkiþráðinn úr stykkinu. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterfrillsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.