Marcus Movitz skrifaði:
Öka till ragglande 14 gånger vartannat varv blir alltså totalt 28 varv? Ökning med omslag varv 1 och sticka omslagen varv 2 etc…
01.03.2024 - 18:47DROPS Design svaraði:
Ja det stemmer :)
05.03.2024 - 14:23
Marcus Movitz skrifaði:
Hej. Ökning från (i mitt fall 56-60 maskor) ger 8 respektive 20 maskor när jag förbereder ok:et. Jag förstår inte hur ni får ihopa 60 maskor till 9 respektive 21 maskor mellan markörerna? Mvh Marcus
01.03.2024 - 18:34DROPS Design svaraði:
Hej Marcus, jo hvis du har 60 masker sætter 1 mærke mellem hver: 21+9+21+9=60m :)
05.03.2024 - 14:22
Caroline skrifaði:
Muss es beim Ärmel nicht heißen „ auf diese Weise 0-0-0….-8 cm …. 4x in der Höhe ABnehmen.“ Dann stimmt es auch, dass man von 51 auf 43 Maschen kommt. In der Anleitung steht zunehmen. Vielen Dank für die ansonsten sehr genauen Anleitungen.
06.05.2022 - 22:56DROPS Design svaraði:
Liebe Caroline, ja genau, es solle 'Ab"nehmen anstatt "Zu"nehmen sein, danke für den Hinweis, die Korrektur erfolgt gleich. Viel Spaß beim stricken!
09.05.2022 - 08:10
Tante M skrifaði:
Hei. Hvorfor skal man øke før bråtet nederst på ermene?
09.10.2021 - 18:32DROPS Design svaraði:
Hei Tante M. For at maskeantallet skal være delelig med 4 (vrangborden) og for at vrangborden ikke skal stramme for mye. Man bytter også til tynnere pinner (=blir strammere enn ermet som er strikket på en pinne str større). Ønsker du en stram vrangbord kan du felle masker (men må være delelig med maskeantallet til vrangborden). mvh DROPS Design
11.10.2021 - 12:46
Tante M skrifaði:
Passer denne genseren til gutter og? Liker godt garnet og strikkemåten.
09.09.2021 - 21:37DROPS Design svaraði:
Hei Tante M, Denne genseren hadde også passet til gutter. God fornøyelse!
10.09.2021 - 08:50
Seveignes skrifaði:
Bonjour, Choisir la laine Air pour les enfants ce n’est pas raisonnable car le lavage à la main est obligatoire. J.ai tenté un lavage en cycle laine 30 ° et le pull est ressorti rétréci et feutré,???? Alors que pas de problème eme avec mérinos et alpaga. Cette laine est trop fragile pour un usage courant pour les enfants
24.08.2021 - 15:29
Lala Jumper#lalajumper |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 40-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 56 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 14. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. í byrjun á umferð er aukið út um 1 uppslátt á eftir fyrstu lykkju og í lok umferðar er aukið út með 1 uppslætti þegar 1 lykkja er eftir. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið hann slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja) og prjónið 2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur færri. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á sokkaprjóna eða hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar . Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 56-56-60-60-64-68 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist 8 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn saman tvöfaldur og við frágang þá verður kanturinn ca 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 60-60-64-68-72-76 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), setjið 1 prjónamerki eftir 21-21-23-25-25-27 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir nýjar 9-9-9-9-11-11 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir nýjar 21-21-23-25-25-27 lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 9-9-9-9-11-11 lykkjur að fyrsta prjónamerki (= ermi). Prjónið nú stykkið áfram í sléttprjóni. Í næstu umferð eru auknar út 2 lykkjur við hvert prjónamerki – sjá LASKALÍNA. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 13-14-15-16-17-18 sinnum. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 164-172-184-196-208-220 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni án útaukningar þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Færið stykkið til þannig að það byrji á 1 lykkju fyrr (á undan 2 lykkjum í sléttprjóni á milli ermi og bakstykkis). Prjónið 49-51-55-59-61-65 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 33-35-37-39-43-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 49-51-55-59-61-65 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 33-35-37-39-43-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 106-110-118-130-134-142 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 12-14-16-19-22-25 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-2-2-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 108-112-120-136-140-148 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-52 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 33-35-37-39-43-45 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 37-39-41-45-49-51 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-6-6 lykkjur og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 0-0-0-10-10-8 cm millibili alls 1-1-1-2-3-4 sinnum = 35-37-39-41-43-43 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist alls 14-19-22-25-29-33 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-3-1-3-1-1 lykkju = 36-40-40-44-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman eða beygist út, þá er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lalajumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.