Weekend Games Jumper |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsi, áferðamynstri og axlarsæti. Stærð 3 til 14 ára.
DROPS Children 40-20 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 4,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkju með prjónamerki eins og áður, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 78-80-82-84-86-88 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-22-24-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 96-100-104-108-108-112 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 32-33-35-37-37-38 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er einnig gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerkið við hálsinn til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki á undan fyrstu lykkju í umferð (= hægri öxl að aftan þegar flíkin er mátuð). Annað prjónamerki: Teljið 15-15-17-19-19-19 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 33-35-35-35-35-37 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 15-15-17-19-19-19 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 33-35-35-35-35-37 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki (= bakstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Prjónið A.1 hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 12-14-16-20-22-26 sinnum = 144-156-168-188-196-216 lykkjur - útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 4-5-6-7-8-9 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Haldið áfram með A.1 hringinn. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 11-11-7-9-10-10 sinnum = 188-200-196-224-236-256 lykkjur. Stykkið mælist ca 12-13-11-13-15-16 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Nú eru 37-37-31-37-39-39 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-2. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-5-7-4-4-3 sinnum = 228-240-252-256-268-280 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 15-16-16-16-18-18 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 15-16-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls – endið síðustu umferð þegar eftir eru 0-1-3-3-3-5 lykkjur í umferð. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 47-49-51-51-53-55 lykkjurnar á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 67-71-75-77-81-85 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 47-49-51-51-53-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 67-71-75-77-81-85 lykkjur (= bakstykki). Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-152-160-168-176-184 lykkjur. Byrjið umferð í annarri hlið á stykki, mitt í 5-5-5-7-7-7 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi og haldið áfram með A.1 hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist 15-18-21-24-25-26 cm frá skiptingu. Nú eru ca 3 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á hringprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm – passið uppá að stroffið haldi fallega áfram yfir A.1 með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 47-49-51-51-53-55 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 5-5-5-7-7-7 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. í miðju af 5-5-5-7-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið A.1 hringinn (passið uppá að mynstrið passi við berustykki). Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-3½-3½-4-4 cm millibili alls 7-8-8-9-9-10 sinnum á hæðina = 38-38-40-40-42-42 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 21-25-30-34-38-42 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm – passið uppá að stroffið passi fallega yfir A.1. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 24-28-33-37-41-45 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsi dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (27)
Barbara wrote:
Ok, ich habe das Diagramm gefunden, Sie haben in einer Frage schon auf französisch geantwortet, habe ich übersehen. ( Direkt neben der Schnittzeichnung) Danke.
12.04.2022 - 12:08Barbara wrote:
Guten Tag, wo finde ich \"A1\" in dieser Anleitung? Danke
12.04.2022 - 12:02Ruth wrote:
Ik maak maat 3/4 jaar, maar het gat voor de nek (78 st met 3 mm) is niet groot genoeg voor een kinderhoofdje. Hoe los ik dat op?
01.01.2022 - 08:15DROPS Design answered:
Dag Ruth,
De steken moeten zeer losjes worden opgezet, zodat het hoofd er door past. Bij het opzetten van steken zou je een dikkere naald of twee naalden kunnen gebruiken. Voordat je begint te breien trek je er 1 naald uit. Zelf zet ik altijd met 2 naalden op.
06.01.2022 - 10:07Sonja Christensen wrote:
Hvordan vil I få trøjen over hovedet på en 14årig med 88 masker . ? 88 m er lig med ca 40 cm , det er vist ikke normalt med et så lille hoved i den alder
30.12.2021 - 11:12DROPS Design answered:
Hei Sonja. Nå strikkes det vrangbord og i garnet DROPS Sky blir det ganske tøyelig. Om du allerede har strikket halskanten, kan du evnt sette maskene på en tråd og prøve. mvh DROPS Design
04.01.2022 - 15:22Bea wrote:
Hoe meerder je bij deze trui voor en na de markeerdraad zodat er 8 st gemeerd worden ?
18.12.2021 - 10:05DROPS Design answered:
Dag Bea,
Bovenaan de beschrijving bij 'Uitleg voor het patroon' staat bij 'TIP VOOR HET MEERDEREN-2' beschreven hoe je voor en na de markeerdraad moet meerderen.
20.12.2021 - 16:48Siri wrote:
Hei! Det ser ut til ar mønsteret ikke er kommet med i oppskriften.
07.10.2021 - 13:58DROPS Design answered:
Hej Siri, jo du finder diagrammet nederst i opskriften til højre for måleskitsen. God fornøjelse!
08.10.2021 - 07:44Christine V wrote:
Bonjour Celui-ci me plaît bien …. Mais où est le diagramme A1 ? Merci ! Et bravo pour votre site.
17.08.2021 - 14:09DROPS Design answered:
Bonjour Christine V et merci! Le diagramme A.1 se trouve juste à droite du schéma des mesures, sous la manche, il se tricote sur 2 mailles et 4 rangs. Bon tricot!
17.08.2021 - 17:32