Sam skrifaði:
Bonjour, je tricote t 7/8 ans. je commence avec les augmentation épaule. je dois augmenter 7x tous les 2 rgs. du coup le patron n'est plus juste. pour la 2ème augmentation j'aurai 2 mailles endroit l' une à côté de l'autre.merci
10.01.2024 - 15:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Sam, pour les augmentations des épaules/manches marteau, vous devez augmenter 16 fois tous les 2 tours (pas 7 x tous les 2 rangs), les augmentations se tricotent progressivement au point fantaisie, autrement dit, le nombre de mailles du devant/du dos va augmenter, quand la 1ère / la dernière de ces mailles est la 1ère maille de A.1, l'augmentation sera tricotée comme la 2ème maille de A.1 et quand la 1ère/dernière de ces mailles est la 2ème maille de A.1, l'augmentation sera tricotée comme la 1ère maille de A.1, ainsi le motif continue en s'élargissant. Bon tricot!
10.01.2024 - 16:25
Sam skrifaði:
Bonjour, je n'ai pas très bien compris où faut-il mettre le 1er marquer
08.01.2024 - 14:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Sam, le 1er marqueur se met après les 32-33-35-37-37-38 premières mailles du tour, il sert de repère au milieu du devant. On va ensuite placer 4 autres marqueurs pour délimiter les épaules. Bon tricot!
09.01.2024 - 07:03
Nicole Jank skrifaði:
Hallo, ich kann das Strukturmuster nicht finden. Wo ist die Strickschrift abgedruckt? Herzliche Grüße
06.01.2024 - 21:48DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Jank, das Diagram finden Sie neben der Maßskizze, unter dem Ärmel. Viel Spaß beim stricken!
08.01.2024 - 10:24
Marcela skrifaði:
Encuentro que las instrucciones que aparecen en este patrón para aumentar en las mangas, no coinciden con las que están en el video guía. Cuál de las dos es la correcta? He tenido que desbaratar el tejido 3 veces!
30.11.2023 - 18:25
Bitten skrifaði:
Hej. Jeg strikker str 122/128. Efter at have taget ud til bærestykket har jeg nu det korrekte antal masker 252 og skal strikke videre uden yderligere udtagninger. Problemet er, at efter at have markeret sidste maske på for- og bagstykke (en retmaske med vrang på hver side iflg. A1) har jeg efterfølgende taget ud 7 gange (et ulige antal). Nu har jeg derfor tre retmasker efter hinanden, hvilket ikke er i overensstemmelse med mønsteret. Hvad er det, jeg ikke forstår? :)
22.09.2023 - 22:10DROPS Design svaraði:
Hej Bitten, det er lidt svært at forestille sig, men skal du ikke bare strikke den midterste af de 3 ind i mønsteret så den bliver vrang?
05.10.2023 - 08:34
LISA R CUSHMAN skrifaði:
I can't see what stitch pattern you are using in this pattern. Where is the explanation in the pattern. Is it a fisherman's rib or a broken rib? Lisa
11.08.2023 - 17:11DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Cushman, the pattern used in that jumper is worked following diagram A.1 (over 2 sts and 4 rows). Read more about diagrams here. Happy knitting!
14.08.2023 - 08:24
Xenia skrifaði:
Jeg kan ikke se strikkediagrammet A1
17.05.2023 - 08:06DROPS Design svaraði:
Hej Xenia, jo det er nederst i opskriften til højre for måleskitsen :)
17.05.2023 - 09:24
Maija Nieminen skrifaði:
Missä mallineuleen ohje?
14.02.2023 - 14:33DROPS Design svaraði:
Piirros A.1 löytyy mittapiirroksen oikealta puolelta.
20.02.2023 - 17:26
Paternotte skrifaði:
Bonjour Si après les augmentations manches et avant de commencer l’empiètement, je n ai pas le nbre de cms indiqué, puis je continuer à tricoter sans augmenter jusqu’au moment où j’ai le nbre de cms indiqué? Et commencer alors seulement la partie “empiècement” Merci à vous
23.01.2023 - 10:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Paternotte, oui, vous pouvez effectivement continuer à tricoter - sans augmenter - jusqu'à la hauteur indiquée avant de passer aux augmentations suivantes - notez bien qu'une tension en hauteur différente peut aussi entraîner une quantité de laine différente - cf ici. Bon tricot!
23.01.2023 - 14:51
Dorine skrifaði:
Waar vind ik de uitleg over de fantasiesteek die ik moet gebruiken?
27.12.2022 - 18:48DROPS Design svaraði:
Dag Dorine,
Onderaan het patroon, rechts onder de maattekening vindt je het telpatroon A.1
27.12.2022 - 20:46
Weekend Games Jumper#weekendgamesjumper |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, áferðamynstri og axlarsæti. Stærð 3 til 14 ára.
DROPS Children 40-20 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 4,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkju með prjónamerki eins og áður, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-80-82-84-86-88 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-22-24-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 96-100-104-108-108-112 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 32-33-35-37-37-38 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er einnig gert án þess að prjóna lykkjur og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerkið við hálsmál til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki á undan fyrstu lykkju í umferð (= hægri öxl að aftan þegar flíkin er mátuð). Annað prjónamerki: Teljið 15-15-17-19-19-19 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 33-35-35-35-35-37 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 15-15-17-19-19-19 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 33-35-35-35-35-37 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki (= bakstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Prjónið A.1 hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 12-14-16-20-22-26 sinnum = 144-156-168-188-196-216 lykkjur - útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 4-5-6-7-8-9 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Haldið áfram með A.1 hringinn. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 11-11-7-9-10-10 sinnum = 188-200-196-224-236-256 lykkjur. Stykkið mælist ca 12-13-11-13-15-16 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Nú eru 37-37-31-37-39-39 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-5-7-4-4-3 sinnum = 228-240-252-256-268-280 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð, mælist stykkið ca 15-16-16-16-18-18 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 15-16-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við hálsmál – endið síðustu umferð þegar eftir eru 0-1-3-3-3-5 lykkjur í umferð. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 47-49-51-51-53-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 67-71-75-77-81-85 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 47-49-51-51-53-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 67-71-75-77-81-85 lykkjur (= bakstykki). Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-152-160-168-176-184 lykkjur. Byrjið umferð í annarri hlið á stykki, mitt í 5-5-5-7-7-7 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi og haldið áfram með A.1 hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist 15-18-21-24-25-26 cm frá skiptingu. Nú eru ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á hringprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm – passið uppá að stroffið haldi fallega áfram yfir A.1 með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 47-49-51-51-53-55 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-5-7-7-7 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. í miðju af 5-5-5-7-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið A.1 hringinn (passið uppá að mynstrið passi við berustykki). Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-3½-3½-4-4 cm millibili alls 7-8-8-9-9-10 sinnum á hæðina = 38-38-40-40-42-42 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 21-25-30-34-38-42 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm – passið uppá að stroffið passi fallega yfir A.1. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 24-28-33-37-41-45 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #weekendgamesjumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.