Louise skrifaði:
Jeg tror i har lavet en tastefejl. For når man skal starte på halskanten står der at det er på en pind 6 men jeg er ret sikker på at I mener en pind 5 for længere nede når man er færdig med halskanten skriver I at man skal skifte til pind 6
21.02.2025 - 08:36
Ann Marit Pedersen skrifaði:
Etter siste økning til raglan er det 142-152-160-170-184-194 masker på pinnen. Kopiert fra oppskrift. Skal det ikke strikkes uten økninger? Arbeidet måler ca 13-14-16-17-18-19 cm fra merket. Strikk glattstrikk uten økninger til arbeidet måler 14-15-16-17-18-19 cm fra merket.
16.10.2024 - 11:15DROPS Design svaraði:
Hei Ann Mari. Strikker du str. 2 eller 3/4 år skal det strikkes 1 cm uten økninger, i de andre str. er målet nådd, og på neste omgang deles arbeidet til bol og ermer. mvh DROPS Design
23.10.2024 - 07:33
Lydia Charlotte Utvik skrifaði:
Hei, prøvelappen min får 16 masker i bredden per 10 cm. Strikket da med pinne 6 mm. Hvor mye forskjell vil det utgjøre på størrelsen? Jeg skal strikke den i 134/140 hvis den infoen er relevant. Hun som skal bruke den liker at det er litt oversized, så det skal vel gå bra så lenge den ikke blir for stor?
31.07.2024 - 15:48
Lydia Charlotte Utvik skrifaði:
Strikkes denne med enkel eller dobbel tråd?
20.05.2024 - 20:29DROPS Design svaraði:
Hei Lydia Charlotte, Genseren strikkes med enkel tråd. God fornøyelse!
21.05.2024 - 06:39
Pia Gunilla Malmberg skrifaði:
Har köpt Wish men hittar inget basmönster till en barntröja! Kan jag konvertera mönstret från ovanstående Melody till Wish? Tacksam för hjälp!
13.10.2022 - 15:56DROPS Design svaraði:
Hei Pia. DROPS Wish tilhører garngruppe E, mens DROPS Melody tilhører garngruppe D (noe tynnere enn garn i garngruppe E). Bruk vår søkemotor og søk på barnegenser og velg Garngruppe E under Filter, du vil da få opp et en del oppskrifter du kan strikke DROPS Wish med. Bare husk å sjekke din strikkefasthet med det som står i oppskriften. mvh DROPS Design
24.10.2022 - 08:36
Susanna Straat skrifaði:
Hej, jag skulle vilja sticka denna, men vill gärna byta garn mot ett ej ull-baserat garn da min dotter är väldigt känslig. Detta garn är dock ensamt i sin garn-grupp D - har ni nagot förslag pa ett icke ull-baserat garn jag skulle kunna byta till? Hälsningar Susanna
14.11.2021 - 23:27DROPS Design svaraði:
Hej Susanna. Du kan sticka den i dubbel tråd från ett garn i garngrupp B, tex DROPS Muskat eller DROPS Belle. Se bara till att få den stickfasthet som uppges i mönstret och att beräkna rätt garnåtgång. Mvh DROPS Design
16.11.2021 - 08:35
Autumn Glitz#autumnglitzsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 40-5 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 48 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. í byrjun á umferð er aukið út um 1 uppslátt á eftir fyrstu lykkju og í lok umferðar er aukið út með 1 uppslætti þegar 1 lykkja er eftir. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja) og prjónið 2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur færri. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á sokkaprjóna eða hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar . Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 48-52-52-56-56-60 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 6 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist 8 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn saman tvöfaldur og við frágang þá verður kanturinn ca 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-4-2-8-6 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 54-56-56-58-64-66 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), setjið 1 prjónamerki eftir 19-20-20-21-22-23 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir nýjar 8-8-8-8-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir nýjar 19-20-20-21-22-23 lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 8-8-8-8-10-10 lykkjur að fyrsta prjónamerki (= ermi). Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 2 lykkjur við hvert prjónamerki – sjá LASKALÍNA. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 11-12-13-14-15-16 sinnum. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 142-152-160-170-184-194 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 13-14-16-17-18-19 cm frá prjónamerki. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 41-44-46-49-52-55 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 30-32-34-36-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 41-44-46-49-52-55 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 30-32-34-36-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 90-96-100-106-112-118 lykkjur í umferð. Setjið stykkið saman og haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 12-14-17-19-22-25 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-8-10-12-14 lykkjur jafnt yfir = 100-104-108-116-124-132 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Stykkið mælist ca 33-36-40-44-48-52 cm frá öxl og niður. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. ERMI: Setjið 30-32-34-36-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 34-36-38-40-44-46 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4 lykkjur og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3½-6-6-6½-6 cm millibili alls 3-4-3-4-4-5 sinnum = 28-28-32-32-36-36 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist alls 14-19-23-26-30-34 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING. Ermin mælist ca 18-23-27-30-34-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman eða beygist út, þá er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnglitzsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.