Arlette Dufour skrifaði:
Je comprend pas j'ai acheter la laine drops Sky pour faire le modele 224-1 j'ai fait l'echantillon avec des aigs 4 1/2 avec du 5 je n'ai pas mes 10 cm pour 20 mailles vous dite sivous n'avais pas assez de mailles pour 10 cm esssayez avec des aiguilles plus fine ce que j'ai fait je n'ai toujours pas mes 10cm comment je doit faire /tricoter la taille au dessus pour arriver aux cm que vous preconisé merci pour le renseignement Arlette
18.02.2023 - 08:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dufour, en fonction du nombre de mailles que vous avez (en plus ou en moins des 20 mailles de l'échantillon) vous devrez prendre soit des aiguilles plus fines (si vous avez moins de 20 mailles) soit des aiguilles plus grosses (si vous avez plus de 20 mailles) - vous pouvez également laver/bloquer votre échantillon (attention à bien suivre les indications de l'étiquette et + d'infos sur son nuancier), pour vérifier si cela peut vous aider. Retrouvez plus d'infos sur l'échantillon ici. Bon tricot!
20.02.2023 - 09:19
Ulla Salzmann skrifaði:
Hallo, wo finde ich das Diagramm A1 und A 2??? Herzliche Grüße
11.02.2023 - 12:42DROPS Design svaraði:
Hallo Ulla, beide Diagramme finden Sie rechts unter dem Ärmel. Viel Spaß beim Stricken!
11.02.2023 - 15:28
Gita Poulsen skrifaði:
Som jeg læser diagram 1, er der 1 ret, 1vr, 1 r, 1vr, 1 r. Det medfører 2 ret efter hinanden. Er det korrekt? Det er ikke nemt at se strukturen på de små fotos. Tak for svar!
05.02.2023 - 18:28DROPS Design svaraði:
Hei Gita. Diagram A.1 = 1r - 1 vr - 1 r - 1 vr - 1 r = 5 masker. Du strikker A.1 4 steder pr omgang ( over raglan), det strikkes ikke A.1 rett etter hverandre. Det økes til raglan ved å lage 1 kast på hver side av mønster A.1. Når kastene strikkes er du på en omgang der det kun strikkes rettmasker, og deretter inn i mønster A.2 ved neste omgang. mvh DROPS Design
06.02.2023 - 12:13
Loredana skrifaði:
Ciao, non mi sono spiegata, volevo sapere se le maglie che si devono diminuire vanno prese sempre al dritto.
05.12.2022 - 19:23DROPS Design svaraði:
Buonasera Loredana, deve diminuire le maglie come indicato nei suggerimenti per le diminuzioni per le maniche. Buon lavoro!
05.12.2022 - 21:45
Loredana skrifaði:
Ciao, le diminuzioni x le maniche vanno lavorate sempre al dritto o anche al rovescio ? Grazie
05.12.2022 - 11:24DROPS Design svaraði:
Buonasera Loredana, le maniche si lavorano in tondo, quindi sempre sul diritto del lavoro. Buon lavoro!
05.12.2022 - 19:17
Manon skrifaði:
Bonjour, pour la taille S en bas du dos/devant il est écrit de faire 45 augmentations sur les 176 mailles ce qui nous ferait au total 221 mailles or il est écrit qu'il en faut 212 après augmentations, dois-je faire 45 augmentait pour arriver à 221 mailles ou moins d'augmentations pour arriver à 212 ? Merci d'avance
02.11.2022 - 23:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Manon et merci pour votre retour, on va diminuer 36 mailles en taille S, ainsi, on a bien 212 mailles, la correction a été faite. Bon tricot!
08.11.2022 - 16:43
Johanne Kaas Laursen skrifaði:
Efter raglan udtagninger i str S, har jeg kun 18 cm , selvom strikkefastheden passer. Kan det passe at jeg skal strikke 4 cm uden udtagninger, før der sættes masker fra til ærmer?
28.08.2022 - 19:14DROPS Design svaraði:
Hei Johanne. Ja, det stemmer. Når du har økt til raglan 24 ganger (= 280 masker) fortsetter du med striper og mønster uten økninger til arbeidet måler 22 cm fra merket på begynnelsen av bærestykket. mvh DROPS Design
29.08.2022 - 13:05
Carole skrifaði:
Bonjour, pour le raglan c'est possible de m'éclairer concernant le tour suivant en A2. DROPS Design: Modèle n° sk-154 Actuellement, je tricote toutes les jetés torses à l'endroit par le brin arrière pour éviter les trous. A mon avis,cela ne semble pas correcte. Merci de votre aide.
09.06.2022 - 02:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Carole, vous devez tricotez les augmentations en suivant les diagrammes A.2, autrement dit, si la 1ère maille suivante de A.2 est la 1ère maille de A.2, tricotez cette nouvelle maille comme la 2ème maille de A.2 (torse à l'envers sur un rang 1 ou torse à l'endroit sur un rang 2), si la 1ère maille suivante de A.2 est la 2ème maille de A.2, tricotez cette nouvelle maille comme la 1ère de A.2(= torse à l'endroit), de même à la fin de A.2, avant A.1, ainsi le motif s'élargit sur les côtés et vos côtes continuent comme avant: 1 m jersey, 1 m point mousse. Bon tricot!
09.06.2022 - 08:36
Lynne Zafiropoulos skrifaði:
Is it possible to use two different yarns in the same project? For example could I use Lima for one set of stripes and Soft Tweed for the other stripes?
20.02.2022 - 13:51DROPS Design svaraði:
Hi Lynne, As long as the yarns are from the same yarn group, they can replace each other. With 2 different types of yarn you will add texture to the stripes which would be nice. Happy knitting!
21.02.2022 - 07:15
Santos skrifaði:
Hola, los aumentos , son solo antes del marcador . Aumentando 8 puntos cada 2 vueltas , gracias
13.02.2022 - 08:51DROPS Design svaraði:
Hola Santos, se aumentan un total de 8 puntos 4 veces antes y después de la línea del raglán. Entonces, se aumenta 1 punto a cada lado de la línea del raglán, es decir, antes de 1 marcapuntos, trabajar los puntos de la línea del raglán (5) y aumentar después del siguiente marcapuntos.
13.02.2022 - 18:55
Sjøbris#sjoebrissweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, röndum og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 224-1 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 12. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við mynstur A.1, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð og síðan inn í mynstur A.2. RENDUR: Kantur í hálsmáli og fyrstu 2 cm á berustykki er prjónað með litnum hvítur áður en rendur byrja. Síðan er prjónað til skiptist 3½-3½-3½-3-3-3½ cm með litnum gallabuxnablár og 5 cm með litnum hvítur þar til prjónaðar hafa verið alls 6-6-6-7-7-7 rendur í litnum gallabuxnablár á berustykki/fram- og bakstykki og 7-7-7-7-7-7 rendur í litnum gallabuxnablár á berustykki/ermum. Prjónið síðan afgang af stykki til loka með litnum hvítur. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður, síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-112-120-124 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum hvítur í DROPS Sky. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist ca 12 cm (brjóta á uppá kant í hálsmáli að röngu síðar þannig að hann verði tvöfaldur). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING í útskýringu að ofan = 88-92-96-100-108-112 lykkjur. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Lestu RENDUR áður en þú prjónar áfram. Setjið 1 prjónamerki í stykkið sem á að nota síðar til að mæla frá. Að auki eru sett 8 prjónamerki í stykkið áður en prjónað er áfram, prjónamerkin eru sett á undan þannig að auðveldara sé að fylgjast með hvar auka á út fyrir laskalínu: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= á milli bakstykkis og fyrstu ermi), teljið 5 lykkjur og setjið 1 prjónamerki hér, teljið 7-7-9-9-11-11 lykkjur og setjið 1 prjónamerki hér (= ermi), teljið 5 lykkjur og setjið 1 prjónamerki hér, teljið 27-29-29-31-33-35 lykkjur og setjið 1 prjónamerki hér (= framstykki), teljið 5 lykkjur og setjið 1 prjónamerki hér, teljið 7-7-9-9-11-11 lykkjur og setjið 1 prjónamerki hér (= ermi), teljið 5 lykkjur og setjið 1 prjónamerki hér. Nú eru 27-29-29-31-33-35 lykkjur eftir frá síðasta prjónamerki og fram að fyrsta prjónamerki (= bakstykki). Nú á að prjóna mynstur og auka út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan þannig: Prjónið mynstur A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.2 yfir næstu 7-7-9-9-11-11 lykkjur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.1 yfir næstu 5 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.2 yfir næstu 27-29-29-31-33-35 lykkjur (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.1 yfir næstu 5 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.2 yfir næstu 7-7-9-9-11-11 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.1 yfir næstu 5 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.2 yfir næstu 27-29-29-31-33-35 lykkjur (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur, rendur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 24-28-30-32-34-40 sinnum = 280-316-336-356-380-432 lykkjur. Haldið áfram með rendur og mynstur án útaukninga þar til stykkið mælist 22-23-25-26-28-31 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki. Nú á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Byrjið með að prjóna fyrstu 3-2-3-5-6-6 lykkjur í umferð eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 59-69-73-73-77-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið yfir næstu 81-89-95-105-113-127 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 59-69-73-73-77-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið yfir síðustu 78-87-92-100-107-121 lykkjur (= afgangur af bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-208-228-248-276 lykkjur. Prjónið mynstur og rendur eins og áður yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-31-32-32-31 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-36-40-44-48-56 lykkjur jafnt yfir = 212-228-248-272-300-332 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Sjá AFFELLING og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 59-69-73-72-77-89 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 7-7-9-9-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-76-82-82-88-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju undir ermi og byrjið umferð hér. Haldið áfram með rendur og mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-2½-2-2½-2-1 cm millibili, þar til fækkað hefur verið alls 9-13-15-14-16-21 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-39-37-37-35-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-4-2-4-2 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Munið eftir AFFELLING og fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá kant í hálsmáli inn að röngu. Saumið uppfitjunarkantinn niður með löngu lausu spori frá röngu á peysu (passið uppá að saumurinn sjáist ekki frá réttu og að saumurinn verði ekki stífur). |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sjoebrissweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.