Rosebud Parade#rosebudparadesweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat eða DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri, hnútum og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-34 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 27,5. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 26. og 27. hverja lykkju og 27. og 28. hverja lykkju slétt saman, lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan. Ef auka á út þá er í þessu dæmi slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 27. og 28. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykki og erma = 8 lykkjur fleiri í umferð (það eru 2 lykkjur á milli útaukninga á framstykki/bakstykki og prjónamerki og 1 lykkja á milli útaukningar á ermi og prjónamerki). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur á ermum slétt. Á framstykki og bakstykki eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1 (þ.e.a.s. prjónaðar eru sléttar lykkjur þar til nægilega margar lykkjur eru komnar til að byrja á nýrri mynstureiningu með gatamynstri/hnút = A.1). Setjið e.t.v. eitt prjónamerki á undan/á eftir hverja mynstureiningu A.1 svo auðveldara sé að sjá hvar ný mynstureining byrjar. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu 3 lykkjur slétt (miðjulykkjan af þessum lykkjum er lykkja með prjónamerki í), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 105-110-115-120-130-130 lykkjur á hringprjón 3 með Muskat eða Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 106-106-114-114-134-134 lykkjur með því að fækka eða fjölga lykkjum jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur og setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 9-9-18-18-18-18 lykkjur (= 1-1-2-2-2-2 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið fyrstu 7-7-0-0-5-5 lykkjur í A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 15 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðustu 7-7-0-0-5-5 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 18-18-36-36-36-36 lykkjur (= 2-2-4-4-4-4 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið fyrstu 7-7-0-0-5-5 lykkjur í A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 15 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og hálft bakstykki), 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðustu 7-7-0-0-5-5 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir síðustu 9-9-18-18-18-18 lykkjur (= 1-1-2-2-2-2 mynstureiningar með 9 lykkjum. Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 24-26-29-32-35-38 sinnum = 298-314-346-370-414-438 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allar útaukningar fyrir laskalína hefur verið gerð, mælist stykkið ca 17-19-21-23-25-27 cm frá prjónamerki. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón þar til berustykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 42-45-49-54-61-66 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 65-67-75-77-85-87 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7-9-11-11-11-11 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi, prjónið næstu 84-90-98-108-122-132 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 65-67-75-77-85-87 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7-9-11-11-11-11 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 42-45-49-54-61-66 lykkjur. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 182-198-218-238-266-286 lykkjur. Haldið áfram hringinn með eins margar einingar A.1 og pláss er fyrir að hliðum. Þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar slétt. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 17 cm frá skiptingu – endið eftir 8. eða 16. umferð í mynstri og prjónið e.t.v. nokkrar umferðir í sléttprjóni til að ná réttu máli. Nú eru auknar út 23-27-32-37-39-44 lykkjur jafnt yfir = 205-225-250-275-305-330 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 42-44-46-48-50-52 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 65-67-75-77-85-87 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-9-11-11-11-11 lykkjum undir ermi = 72-76-86-88-96-98 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4-4-3-3-3-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 11-12-16-15-19-19 sinnum = 50-52-54-58-58-60 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 30-28-27-25-23-22 cm. Aukið út um 5-8-6-7-7-10 lykkjur jafnt yfir = 55-60-60-65-65-70 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 32-30-29-27-25-24 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosebudparadesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.