Swept Away |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, tvöföldum kanti í hálsmáli, köðlum og blöðruermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-12 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3). A.1 og A.2 er prjónað á axlarsæti og ermum. A.3 er prjónað framan og aftan á fram- og bakstykki. A.4 og A.5 er prjónað í hálsmáli að framan þegar Valmöguleiki-2 er prjónaður. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 3,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki): FRÁ RÉTTU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. FRÁ RÖNGU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI. Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (á við um mitt undir ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: ÚTSKÝRING Á PEYSU INNIHELDUR 2 VALMÖGULEIKA Á HÁLSMÁLI: Flíkin á myndinni er prjónuð neðan frá og upp, flíkin í uppskrift er skrifuð ofan frá og niður til að flíkin passi betur við hálsmál/ermar. VALMÖGULEIKI-1: Þessi valmöguleiki er með einfaldari hálsmáli en sem er sýnt á mynd af flíkinni. Byrjað er að prjóna tvöfaldan kant í hálsmáli í hring, síðan er mynstrið prjónað í hring yfir allar lykkjur og aukið er út fyrir axlarsæti (flíkin fær ekkert rúnað hálsmál að framan, heldur kemur til með að verða alveg eins að framan og að aftan). Þegar útaukningar fyrir axlarsæti hafa verið gerðar til loka, eru lykkjur auknar út fyrir ermar, síðan eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. VALMÖGULEIKI-2: Þessi valmöguleiki er með hálsmáli sem er eins og sýnt er á mynd af flíkinni. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka frá miðju að framan, lykkjur eru fitjaðar upp í hvorri hlið við miðju að framan til að forma rúnað hálsmál, jafnframt þar sem mynstrið er prjónað og lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti. Þegar allar útaukningar fyrir axlarsæti hafa verið gerðar til loka, eru lykkjur auknar út fyrir ermar, síðan eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Þegar flíkin hefur verið prjónuð til loka, eru lykkjur prjónaðar upp í hringum hálsmál og prjónaður er tvöfaldur kantur í hálsmáli. ------------------------------------------------------- VALMÖGULEIKI-1 – BYRJIÐ HÉR: TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Lesið PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI að ofan. Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 32-36-40-40-40-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 136-144-152-156-160-160 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI – VALMÖGULEIKI-1: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 49-51-53-54-55-55 lykkjur í umferð (= mitt að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er einnig gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum er sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og verða að hafa annan lit en prjónamerki að framan til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð (= hægri öxl að aftan þegar flíkin er mátuð). Annað prjónamerki: Teljið 30 lykkjur í öllum stærðum frá 1. prjónamerki (= axlarlykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 38-42-46-48-50-50 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 30 lykkjur í öllum stærðum frá 3. prjónamerki (= axlarlykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 38-42-46-48-50-50 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (= bakstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. Í næstu umferð byrjar bæði mynstur og útaukning fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan. Lestu báða kaflana áður en þú prjónar áfram! MYNSTUR – VALMÖGULEIKI-1: Prjónið A.1 yfir 30 axlarlykkjur á milli 1. og 2. prjónamerki og á milli 3. og 4. prjónamerki og prjónið A.3 yfir 38-42-46-48-50-50 lykkjur á framstykki og bakstykki (sjá merkingu í mynsturteikningu fyrir þína stærð). ATH: Jafnóðum sem lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan, eru útauknar lykkjur prjónaðar á framstykki/bakstykki jafnóðum inn í A.3 þar til pláss er fyrir heila mynstureiningu á breiddina, síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni (Í XXL og XXXL eru allar útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni þar sem A.3 byrjar með heilli mynsturteikningu). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! A.1 er endurtekið á hæðina þar til útaukning fyrir axlarsæti hefur verið gerð til loka. A.3 er endurtekið á hæðina að loknu máli. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI – VALMÖGULEIKI-1: JAFNFRAMT í sömu umferð og mynstrið byrjar, aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 3. og 1. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlarlykkja verður sá sami. Haldið svona áfram hringinn og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 18 sinnum í öllum stærðum = 208-216-224-228-232-232 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 7 cm í öllum stærðum – mælt frá prjónamerki framan í hálsmáli. Farðu áfram í ÚTAUKNING FYRIR ERMAR í útskýringu að neðan. ------------------------------------------------------- VALMÖGULEIKI-2 – BYRJIÐ HÉR: BERUSTYKKI: Lesið PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI að ofan. Fitjið upp 100-104-108-110-112-112 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Merino Extra Fine. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að ofan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki eftir fyrstu lykkju í umferð (= vinstri hlið í hálsmáli að framan þegar flíkin er mátuð). Annað prjónamerki: Teljið 30 lykkjur í öllum stærðum frá 1. prjónamerki (= axlarlykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 38-42-46-48-50-50 lykkjur frá prjónamerki (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 30 lykkjur í öllum stærðum frá 3. prjónamerki (= axlarlykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Það er 1 lykkja eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (= hægri hlið í hálsmáli að framan þegar flíkin er mátuð). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. Í fyrstu umferð byrjar bæði mynstur og útaukning fyrir axlarsæti, að auki eru lykkjur fitjaðar upp í hvorri hlið til að forma hálsmálið! Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR – VALMÖGULEIKI-2: Prjónið A.4 yfir fyrstu lykkju í umferð (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð), A.1 yfir 30 axlarlykkjur á milli 1. og 2. prjónamerki, prjónið A.3 yfir 38-42-46-48-50-50 lykkjur á bakstykki á milli 2. og 3. prjónamerki (sjá merkingu í mynsturteikningu fyrir þína stærð), prjónið A.1 yfir 30 axlarlykkjur á milli 3. og 4. prjónamerki og prjónið A.5 yfir síðustu lykkju í umferð (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð). ATH: Jafnóðum sem lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan, eru útauknar lykkjur prjónaðar á framstykki eins og útskýrt er í A.4 og A.5. Á bakstykki eru útauknar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í A.3 þar til pláss er fyrir heila mynstureiningu á breiddina, síðan eru næstu útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni (í XXL og XXXL eru allar útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni þar sem A.3 byrjar með heila mynstureiningu). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! A.1 er endurtekið á hæðina þar til útaukning fyrir axlarsæti hefur verið prjónuð til loka, A.3 er endurtekið á hæðina að loknu máli. Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 yfir 50 mynsturlykkjur (mynsturlykkjur í A.4/A.5 og lykkjur sem fitjaðar voru upp mitt að framan) að loknu máli. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI – VALMÖGULEIKI-2: Jafnframt í fyrstu umferð (rétta) er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 3. og 1. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og á bakstykki og fjöldi axlarlykkja verður sá sami. Frá röngu er aukið út á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og á EFTIR 3. og 1. prjónamerki. Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 18 sinnum í öllum stærðum. HÁLSMÁL – VALMÖGULEIKI-2: Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir í mynstri, eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir hálsmál (í fyrsta skipti sem lykkjur eru fitjaðar upp er í lok þriðju umferðar með mynstri = rétta). Fitjið upp 1 lykkju í lok hverrar umferðar alls 4 sinnum í hvorri hlið, síðan eru fitjaðar upp 2 lykkjur í lok hverrar umferðar alls 3 sinnum í hvorri hlið. Í lok 17. umferðar (rétta) eru fitjaðar upp 16-20-24-26-28-28 lykkjur (mitt framan í hálsmáli). Ekki snúa stykkinu, heldur prjónið síðustu umferð í A./A.5 (= síðasta útaukning fyrir axlarsæti) hringinn yfir allar lykkjur þannig: Prjónið síðustu umferð í A.4, aukið út fyrir axlarsæti á undan 1. prjónamerki, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 30 lykkjur, aukið út fyrir axlarsæti á eftir 2. prjónamerki, prjónið sléttprjón og A.3 eins og áður yfir lykkjur á bakstykki á milli 2. og 3. prjónamerki, aukið út fyrir axlarsæti á undan 3. prjónamerki, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 30 lykkjur, aukið út fyrir axlarsæti á eftir 4. prjónamerki, prjónið síðustu umferð í A.5, síðan eru sléttar lykkjur prjónaðar yfir 16-20-24-26-28-28 lykkjur sem fitjaðar voru upp mitt að framan. Klippið þráðinn. Nú eru 208-216-224-228-232-232 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 7 cm í öllum stærðum – mælt frá uppfitjunarkanti mitt að aftan. Síðan byrjar umferðin á undan 1. prjónamerki. Farðu áfram í ÚTAUKNING FYRIR ERMAR í útskýringu að neðan. ------------------------------------------------------- VALMÖGULEIKI-1 OG VALMÖGULEIKI-2 – HÉÐAN ERU BÁÐIR VALMÖGULEIKARNIR PRJÓNAÐIR EFTIR SAMA MYNSTRI. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið mynstur þannig: Prjónið A.2 á milli 1. og 2. prjónamerki og á milli 3. og 4. prjónamerkis, prjónið A.3 eins og áður yfir mynsturlykkjur á milli 2. og 3. prjónamerki og á milli 4. og 1. prjónamerki (passið uppá að mynstrið haldi áfram í réttri umferð í mynsturteikningu), aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar eins og útskýrt er í A.2. Aukið út svona út fyrir ermar í annarri hverri umferð alls 2-2-2-2-2-3 sinnum = 216-224-232-236-240-244 lykkjur. Stykkið mælist ca 9 cm í öllum stærðum – mælt frá prjónamerki framan í hálsmáli (valmöguleiki-1) / uppfitjunarkantur mitt að aftan (valmöguleiki-2). Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjum sitji í ystu lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki (ekki á milli 2 lykkja). Nú eru 34-34-34-34-34-36 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverri og einni af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú eru lykkjur auknar út á framstykki, bakstykki og á báðum ermum. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á framstykki og á bakstykki og í A.2 á báðum ermum þar til A.2 nær yfir 38 lykkjur, síðan eru næstu útauknu lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 13-15-17-21-24-27 sinnum = 320-344-368-404-432-460 lykkjur. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-23-26-28-30 cm – mælt frá prjónamerki framan í hálsmáli (valmöguleiki-1) / uppfitjunarkantur mitt að aftan (valmöguleiki-2). Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: S, M, L og XL: Byrjið umferð 1-1-2-2 lykkjur á undan fyrstu lykkju með prjónamerki í. XXL: Byrjið umferð á undan fyrstu lykkju með prjónamerki í. XXXL: Byrjið umferð 1 lykkju á eftir fyrstu lykkju með prjónamerki í. ALLAR STÆRÐIR: Setjið síðan fyrstu 64-68-74-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 96-104-110-120-132-142 lykkjur eins og áður, setjið næstu 64-68-74-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 96-104-110-120-132-142 lykkjur eins og áður. Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-224-240-260-284-308 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki - mitt á milli 8-10-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og haldið áfram hringinn eins og áður með A.3 yfir miðju 50 lykkjur á framstykki og bakstykki og aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 196-212-228-248-272-296 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 16-16-16-15-15-15 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroffið. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-12-12-14-16 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 206-222-240-260-286-312 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 64-68-74-82-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-76-84-92-94-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Haldið áfram með A.2 hringinn eins og áður yfir miðju 38 lykkjur – aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 3 cm milli bili alls 5-5-4-4-3-3 sinnum = 82-86-92-100-100-106 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 33-31-30-27-26-24 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 9 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Nú er lykkjum fækkað til að stroffið sitji betur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 36-38-42-46-46-50 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 46-48-50-54-54-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 42-40-39-36-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI HELDUR ÁFRAM – VALMÖGULEIKI-1: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður. En til að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI – VALMÖGULEIKI-2: Byrjið mitt að aftan og prjónið upp frá réttu ca 136-144-152-156-160-160 lykkjur hringinn á stuttan hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) og fækkið jafnframt lykkjum jafnt yfir til 104-108-112-116-120-124 lykkjur í fyrstu umferð. Þegar stroffið mælist 7 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður, en til að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (44)
De kabels in a4/a5 lijken de andere kant op te draaien dan zichtbaar in de foto?
10.06.2023 - 09:36Maak je de kabels in het eerste stuk aan de averechte kant ?
08.06.2023 - 08:13Valt bij alternatief 2 de nek aan de achterkant hoger (als wanneer je verkorte toeren breit ?)
04.06.2023 - 11:10Diagrammerne til opskriften åbner ikke, så jeg kan ikke få dem printet ud eller se dem
31.01.2023 - 20:16Vanaf de boord, de schouders de mouwen en de markeerdraden is me volkomen onduidelijk
08.12.2022 - 12:00DROPS Design answered:
Dag Liesberth,
Welk patroon brei je Alternatief 1 of Alternatief 2? En waar ben je op dit moment? Ik neem aan dat je de boord hebt gebreid en dat het je nu niet meer duidelijk is omdat je markeerdraden in moet voegen? Er wordt eerst een markeerdraad ingevoegd waarmee je de pas later kan meten. Daarnaast worden er 4 markeerdraden ingevoegd, die in de hoogte meelopen met je werk.
10.12.2022 - 08:44Ik heb wol en patroon besteld voor drops 221-12. Ik ben een ervaren breister maar ben 3 dagen. Bezig met het patroon te begrijpen lukt me dus niet. Graag duidelijke en systematische uitleg. Dis is een wanhoop
06.12.2022 - 14:53DROPS Design answered:
Dag Liesbert,
Kun je aangeven waar je precies tegen aanloopt? Dan kunnen we je waarschijnlijk beter helpen. Om te beginnen: heb je al een proeflapje gemaakt? Komt de stekenverhouding overeen met die in het patroon?
07.12.2022 - 20:32Ik heb patroon en wol gekocht voor patroon 222-12 patroon me-219 ik ben een ervaren breister maar na 3 dagen bestuderen weet ik nog steeds niet waar ik moet beginnen en in welke volgorde. Graag duidelijke uitleg dit id echt wanhoop. Waar moet ik beginnen, het vervolg etc
06.12.2022 - 14:48Buongiorno, non riesco ad aprire i diagrammi di questo modello, come mai?
24.11.2022 - 17:05DROPS Design answered:
Buonasera Nicoletta, i diagrammi si trovano in fondo alla pagina: provi a svuotare la cache del browser. Buon lavoro!
24.11.2022 - 19:51El patrón indica: "La prenda de la fotografía se teje de abajo hacia arriba ... visualmente, prácticamente no hay diferencia (más allá del escote en diagonal) – el patrón tejido de abajo hacia arriba podrá ser publicado online en el futuro". ¿Se ha publicado el patrón de abajo hacia arriba? ¿Hay foto del modelo tejido segun patron de arriba hacia abajo? ¿Qué quieren decir con "escote en diagonal" en la frase "no hay diferencia (más allá del escote en diagonal"?
17.10.2022 - 16:53DROPS Design answered:
Hola Silvia, Desgraciadamente no disponemos de más fotos que las publicadas online. De momento no tenemos información sobre el patrón tejido de abajo hacia arriba, pero contactaremos con el departamento de diseño para obtener más información.
20.10.2022 - 20:12Bonjour, au niveau de la partie augmentations empiècement, je ne comprends pas pourquoi il faut déplacer les 4 marqueurs dans des mailles ? Et pourquoi augmenter de 8 mailles alors que si on suit A2, au rang 4 il n'y a pas d'augmentations à faire.
16.09.2022 - 14:21DROPS Design answered:
Bonjour Manon, les augmentations "empiècement" correspondent aux augmentations de type raglan, autrement dit on augmente 2 m pour chaque pièce: dos, devant et manches, soit 8 m au total. On doit décaler les marqueurs pour qu'ils soient désormais dans une maille (= la 1ère et la dernière maille du dos/devant) et non plus entre 2 mailles. Tricotez les augmentations des manches en suivant A.2, et, quand A.2 est terminé (= 50 mailles), tricotez les augmentations suivantes en jersey. Bon tricot!
16.09.2022 - 15:14