Mountain Pass |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris eða DROPS Bomull-Lin. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, axlarsæti, köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-40 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.5). ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 4,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir ca 4. hverja og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Á berustykki eru lykkjur auknar út fyrir öxl, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 82-84-88-92-96-100 lykkjur á stutta hringprjóna 4 með Paris eða Bomull-Lin. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-16-20-28-32-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 100-100-108-120-128-128 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 33-33-37-40-44-44 lykkjur í umferð (= mitt að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er einnig gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerkið: Setjið 1. prjónamerki á undan fyrstu lykkju í umferð (= hægri öxl að aftan þegar flíkin er mátuð). Annað prjónamerki: Teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 34-34-34-40-40-40 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 34-34-34-40-40-40 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. Prjónamerki (= bakstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar – í fyrstu umferð byrjar mynstur jafnframt því sem útaukning fyrir axlarsæti byrjar! MYNSTUR: Prjónið (byrjun á umferð = 1. prjónamerki) 0-0-2-2-0-0 lykkjur sléttprjón, A.2 alls 2-2-2-2-3-3 sinnum á breidd, 0-0-2-2-0-0 lykkjur sléttprjón, 2. prjónamerki, A.1 yfir næstu 34-34-34-40-40-40 lykkjur (= framstykki), 3. prjónamerki, 0-0-2-2-0-0 lykkjur sléttprjón, A.3 alls 2-2-2-2-3-3 sinnum á breidd, 0-0-2-2-0-0 lykkjur sléttprjón, 4. prjónamerki, A.1 yfir síðustu 34-34-34-40-40-40 lykkjur (= bakstykki). ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram hringinn og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 20-22-24-26-28-28 sinnum = 180-188-204-224-240-240 lykkjur.. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 á framstykki og bakstykki eins og útskýrt er í mynsturteikningu, síðan eru næstu útaukningar prjónaðar í sléttprjóni. ATH: Mynstureiningarnar eru endurteknar á hæðina eins og útskýrt er í A.4, A.5 og A.6. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 9-10-11-12-13-13 cm frá prjónamerki við hálsmál. Síðan eru ermar auknar út eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Haldið áfram með mynstur hringinn eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í jafnóðum inn í A.2 og A.3. ATH: Lykkjur á framstykki og bakstykki eru síðan prjónaðar eins og útskýrt er í A.1 og mynstureiningar eru endurteknar á hæðina eins og útskýrt er í A.4, A.5 og A.6 – aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið út fyrir ermar í annarri hverri umferð alls 11-10-9-9-7-8 sinnum = 224-228-240-260-268-272 lykkjur. Stykkið mælist ca 19-19-19-20-19-20 cm frá prjónamerki við hálsmál. Síðan eru lykkjur auknar út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Nú eru 38-36-38-38-38-40 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-1. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á framstykki og á bakstykki og jafnóðum inn í A.2/A.3 á báðum ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 1-3-4-5-7-9 sinnum = 232-252-272-300-324-344 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 20-22-23-25-26-28 cm frá prjónamerki við háls. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukningar að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Byrjið 0-1-1-3-2-0 lykkjum á undan næstu lykkju með prjónamerki í, setjið næstu 42-46-50-56-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-16-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 74-80-86-94-104-112 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42-46-50-56-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 12-12-14-16-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 74-80-86-94-104-112 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-184-200-220-240-260 lykkjur. Haldið áfram hringinn með mynstur og sléttprjón eins og áður – passið uppá að mynstureiningar í A.4, A.5 og A.6 er endurtekið rétt á hæðina. Þær 12-12-14-16-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru lykkjur auknar út til að stroffið sem prjóna á síðar dragi stykkið ekki saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-18-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 190-202-220-242-264-286 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 42-46-50-56-58-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 12-12-14-16-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 12-12-14-16-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram með A.2/A.3 hringinn eins og áður – lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 3-4-6-10-10-11 sinnum = 48-50-52-52-54-56 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 34-33-33-32-32-30 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm til að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru lykkjum fækkað til að stroffið dragi stykkið aðeins saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 34-36-38-38-40-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 39-38-38-37-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvæt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (3)
Laurence Roquet wrote:
Bonjour, ce puul over ne possede pas de rangs raccourcis pour avoir un plus belle et agréable encolure comment en faire une avec ces emmanchures et le motif ? merci
14.02.2023 - 13:19DROPS Design answered:
Bonjour Mme Roquet, essayez de voir si vous pouvez adapter cette technique utilisée pour les raglans de haut en bas de nos dernières collections. Bon tricot!
14.02.2023 - 13:58Corinne D wrote:
I'd name this one "broken arrow"
13.01.2021 - 15:18Arndt wrote:
Namensvorschlag: Kühle Brise
09.01.2021 - 10:41