Sonja Timmermans skrifaði:
Bij het telpatroon is bovenaan bij de schouders die 2x 3 cm armsgat boord meegenomen in de boven breedte of niet ? Dank u
31.10.2026 - 13:18DROPS Design svaraði:
Dag Sonja,
De maattekening geeft de maten aan als het kledingstuk helemaal klaar is, dus inclusief de boorden.
31.10.2026 - 17:16
Anne skrifaði:
Bonjour, pensez-vous qu'il est possible de tricoter ce modèle avec le fil Karisma, groupe B également mais moins de métrage, donc avec 8 pelotes. Merci.
11.10.2026 - 15:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne, vous pouvez effectivement tricoter ce modèle en DROPS Karisma, utilisez le convertisseur pour savoir la quantité nécessaire pour votre taille, et pensez à bien vérifier votre tension (comme pour tout autre ouvrage). Bon tricot!
12.10.2026 - 09:35
Ximena skrifaði:
Se puede tejer en circular , para evitar coser.
08.10.2026 - 01:05DROPS Design svaraði:
Hola Ximena, tienes que trabajar el principio de ida y vuelta, por las aberturas laterales. Después de las aberturas laterales puedes unir la labor y trabajar en redondo hasta las sisas y finalmente terminas los delanteros y la espalda de ida y vuelta.
11.10.2026 - 19:16
Sonja skrifaði:
Ich komme jetzt beim Vorderteil zu den 11 Abnehmen beim Armausschnitt. Es steht, dass man am Anfang und am Ende der Nadel jeweils 2 Maschen zus. stricken muss. Jetzt ist meine Frage, ob man dies bei jeder Nadel muss, oder nur auf der Vorderseite, und dann die Rückseite ohne Abnehmen stricken? Dankeschön 🍀
07.10.2026 - 20:48DROPS Design svaraði:
Liebe Sonja, die Anbanhmen für den Armauschnitt entesthen in jeder Hinreihe insgesamt 11 Mal (22 Reihen); nach den 2 ersten Maschen am Anfang der Hinreihe und vor den 2 letzten maschen der Hinreihe am Ende der Hinreihe; beachten Sie nur, daß diese Abnahmen werden am Armloch bearbeitet, wenn man die Arbeit für den V Halsausschnitt teilt, wird man nur 1 Masche für Armloch abnehmen. Viel Spaß beim Stricken!
08.10.2026 - 08:39
Kara skrifaði:
I’m ready to decrease after the ribbing and am unclear if the decrease happens in the ribbing or if the knit one row from the wrong side instruction after you get to 6cm is the start of the stockinette. This is my second go at the decrease as I started on the third size but could see the piece was going to be far too large — so I’m going to keep the ribbing (because I’d like it not too snug) and decrease then proceed according to the smallest size. Any tips are welcome. Thank you!
05.09.2026 - 01:31DROPS Design svaraði:
Hi Kara, We recommend that you decrease on the second row (from the right side) after the ribbing is finished. Finish the rib after a row from the right side, knit a row from the wrong side then knit a row from the right side and decrease. Regards, Drops Team.
05.09.2026 - 06:37
Lulu skrifaði:
Hola estoy haciendo la disminución para el cuello en v , el patrón marca que la disminución sea cada 2 filas, es decir que llego a los 3 puntos antes del cuello , disminuyó y luego volteó y hago la vuelta de revés , esa cuenta como una fila, y luego empiezo de nuevo a tejer la vuelta de derecho al terminar esa vuelta se hace de nuevo la disminución ? Ósea contaría como la 2 da fila?
02.06.2026 - 07:49DROPS Design svaraði:
Hola Lulu, solo en la 1ª fila del escote-v se disminuye cuando queden 3 puntos hasta el marcapuntos. Ahora giras y trabajas normal de vuelta (2ª fila). En la siguiente fila, cuando queden 3 puntos antes del final de la fila trabajas 2 puntos juntos y 1 punto orillo. (3ª fila). Girar y trabajar 1 fila de vuelta (4ª fila). En la siguiente fila, repite como la 3ª fila y así en todas las filas impares, disminuyendo cada 2ª fila. En el otro lado del delantero se trabajan las disminuciones a la inversa; en las filas con disminuciones trabajas: 1 punto orillo, disminución simple, trabajar el resto de la fila.
14.06.2026 - 23:57
Kara skrifaði:
I am somehow not seeing the yardage of material needed for this project (Audrey vest). Also wondering if printing the pattern is possible. Thanks for any help.
05.04.2026 - 21:22DROPS Design svaraði:
Hi kara, Each ball of Drops Sky has approx. 208 yards of yarn and each ball weighs 50 g (1.8 oz.). You print the pattern by clicking on the printer icon to the right of the "Audrey Vest" title-line. Regards, Drops Team.
06.04.2026 - 15:28
CLAUDINE skrifaði:
Bonjour, Je souhaiterai tricoter ce modèle que je trouve très joli. Pouvez-vous me dire combien il faut acheter de pelotes ? Merci pour votre réponse, cordialement
11.03.2026 - 17:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Claudine, vous trouverez la quantité nécessaire pour chaque sous l'onglet "Explications" en haut de page, par ex en taille S, il vous faudra 150 g DROPS Sky/50 g la pelote = 3 pelotes Sky en S. Bon tricot!
12.03.2026 - 09:35
Grace skrifaði:
Hello, In the back part of the vest, the pattern says to "Decrease INSIDE." I do not understand what "decreases INSIDE" means. (Then decrease inside 2 stitches, decreasing 1 stitch on each side 8-11-14-16-21-27 times – read DECREASE TIP-2 = 64-66-68-70-72-74 stitches. Best, Grace
17.02.2026 - 05:56DROPS Design svaraði:
Hi Grace, This means that you decrease after the first 2 stitches at the beginning of the row and before the last 2 stitches at the end of the row. Regards, Drops Team.
17.02.2026 - 06:31
Claudette skrifaði:
Bonjour. Pourriez-vous me dire pourquoi doit-on diminuer des mailles après avoir fait les côtes? Merci
10.02.2026 - 18:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Claudette, il faut plus de mailles pour les côtes avec les aiguilles 3,5 que pour le jersey avec les aiguilles 4,5, ainsi on va diminuer pour conserver la bonne largeur (les côtes ne doivent pas resserrer le bas du pull). Bon tricot!
11.02.2026 - 17:10
Audrey Vest#audreyvest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni, v-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-43 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 118 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 4,9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál): Fækkið lykkjum innan við 2 lykkjur. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 síðustu lykkjurnar slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kant í handvegi og v-hálsmáli sem prjónað er í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 118-130-138-150-166-182 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, síðan er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-26-28-28-30-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 94-102-110-120-132-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum. Fækkið síðan lykkjum innan við 2 lykkjur, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið 8-11-14-16-21-27 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 34-34-36-36-38-38 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 14-15-15-16-16-17 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, stykkið mælist nú 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 118-130-138-150-166-182 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, síðan er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-26-28-28-30-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 94-102-110-120-132-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Setjið 1 prjónamerki í miðju á stykki, þannig að það verða 47-51-55-60-66-73 lykkjur í hvorri hlið (prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum fyrir v-hálsmáli). LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum. Fækkið síðan lykkjum innan við 2 lykkjur, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið 8-11-14-16-21-27 sinnum. V-HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 31-33-34-36-37-39 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður að framan þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setjið síðustu lykkjurnar á þráð án þess að prjóna þessar lykkjur. Héðan eru axlirnar prjónaðar hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá. Vinstri öxl er nú prjónuð héðan (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). VINSTRI ÖXL (framstykki): Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í lok umferðar frá réttu. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) 17-17-18-18-19-19 sinnum til viðbótar (alls 18-18-19-19-20-20 úrtökur, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman, fyrsta úrtakan er gerð þar sem framstykkið skiptist) = 14-15-15-16-16-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRI ÖXL (framstykki): Setjið lykkjur til baka af þræði á prjóninn. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í byrjun umferðar frá réttu. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð (fækkið lykkjum með því að lyfta 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð) alls 18-18-19-19-20-20 sinnum = 14-15-15-16-16-17 lykkjur eftir á öxl. ATH: Fyrsta úrtakan er gerð í fyrstu umferð sem var prjónuð). Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Byrjið undir ermi og saumið hliðarsaum innan við kantlykkju – skiljið eftir ca 6 cm fyrir klauf. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu neðst í v-hálsmáli. Notið stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 168 til 184 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum allt op í hálsmáli (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4), byrjið neðst í v-hálsmáli, prjónið upp lykkjur meðfram úrtöku upp yfir hægri hlið, í kringum hálsmál að aftan og niður meðfram vinstri hlið. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Leggið hægri hluta á kanti í hálsmáli mitt að framan yfir vinstri hluta, þannig að hlutarnir vefjist saman. Saumið niður í ystu kantlykkju við hálsmál. Endurtakið alveg eins að innan verðu, þannig að stykkin séu saumuð niður til hægri innan á stykkinu. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu við hliðarsaum undir handveg. Notið stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 124 til 152 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #audreyvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.