Georgette skrifaði:
Prachtige trui geworden! Twee draden gebreid met heerlijk zacht materiaal. Patroon is duidelijk beschreven maar het is geen breiwerk voor iemand die net begint met breien. Door van boven naar beneden te breien is de lengte goed aan te passen. En het rondbreien met de rondbreinaald is fijn en achteraf geen enkele naad te sluiten. Eindresultaat is geweldig.
13.07.2021 - 14:54
Marion Peitz skrifaði:
Wo finde ich das Diagramm von Modell 223-7? Ich kann es in der Anleitung nicht finden. Danke
25.05.2021 - 20:24DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Peitz, Diagram A.1 finden Sie zwischen den Zeichenerklärungen und der Maßskizze, es wird über 2 Maschen und 4 Reihen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
26.05.2021 - 10:25
Annarita skrifaði:
Buongiorno, non ho capito bene se il lavoro è fatto tutto con un capo di Delight e un capo di Kid-Silk, come mai le quantità di filato che occorre non sono uguali? Oppure vanno usati entrambi i filati solo per una parte del lavoro? È possibile avere qualche chiarimento? Grazie!
04.05.2021 - 12:26DROPS Design svaraði:
Buonasera Annarita, il maglione è lavorato con 1 capo per qualità: la quantità dei due filati è diversa perchè è diverso il loro metraggio. Buon lavoro!
04.05.2021 - 21:23
Alexandra Bühler skrifaði:
Stripes of Harmony
09.01.2021 - 15:44
Liz Barlow skrifaði:
Love the colour combination
07.01.2021 - 20:50
April Love#aprillovesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-7 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 69 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 23. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 23. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 3 lykkjur slétt (miðjulykkjan af þessum 3 lykkjum er lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að prjóna 1 mynstureiningu með A.1 á breiddina. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkjur slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Lykkjurnar sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar slétt. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá skiptingu á milli bakstykkis og hægri öxl og prjónað er ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón niður að klauf í hvorri hlið. Síðan skiptist fram- og bakstykkið og hvort stykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 69-72-75-80-83-88 lykkjur á stuttan hringprjón 5,5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-4-21-28-29-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 72-76-96-108-112-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Setjið 1 prjónamerki hér, berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 6. Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið án þess að prjóna. Prjónamerkin verða að hafa annan lit, til að þau verði aðskilin frá prjónamerki eftir kanti í hálsi. Setjið eitt prjónamerki í fyrstu lykkju (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), hoppið yfir næstu 12-12-16-16-16-16 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), hoppið yfir næstu 22-24-30-36-38-42 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), hoppið yfir næstu 12-12-16-16-16-16 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), nú eru 22-24-30-36-38-42 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 hringinn í umferð með 3 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermar. Þ.e.a.s. lykkjur með prjónamerki í og 1 lykkja hvoru megin við þessar lykkjur eru prjónaðar slétt. JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-18-18-18-20-24 sinnum = 200-220-240-252-272-312 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram með mynstri þar til stykkið mælist ca 20-22-24-26-28-30 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 44-48-52-52-56-64 lykkjurnar á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 56-62-68-74-80-92 lykkjurnar í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-52-56-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 56-62-68-74-80-92 lykkjurnar í mynstri eins og áður (= bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 124-136-148-160-172-196 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = á undan 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Haldið áfram hringinn með mynstri A.1. Mynstrið á að passa yfir mynstur frá berustykki. Þegar stykkið mælist 13-13-12-12-12-10 cm frá skiptingu, prjónið garðaprjón yfir miðju 8 lykkjurnar í hvorri hlið á stykki. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar 8 lykkjur, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki mitt í þessum 8 lykkjum í hvorri hlið = 62-68-74-80-86-98 lykkjur fyrir framstykki og 62-68-74-80-86-98 lykkjur fyrir bakstykki. Prjónið síðan hvort stykki fram og til baka hvort fyrir sig, þannig að það myndist klauf í hvorri hlið. Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður og 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 13 cm frá þar sem stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki – stillið af að endað sé eftir umferð frá röngu, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-12-13-15-15 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir ystu 4 lykkjur í hvorri hlið) = 72-78-86-93-101-113 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 2 cm. Fellið af – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Prjónið hitt stykkið á sama hátt. ERMI: Setjið til baka 44-48-52-52-56-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 50-54-58-58-62-70 lykkjur. Byrjið umferð á milli 2. og 3. lykkju sem prjónaðar voru upp undir ermi og prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið 3. og 4. lykkju slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt, prjóni mynstur eins og áður yfir næstu 46-50-54-54-58-66 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt = 49-53-57-57-61-69 lykkjur. Nú eru 3 lykkjur slétt mitt undir ermi. Haldið áfram hringinn með mynstri A.1 og prjónið sléttar lykkjur yfir miðju 3 lykkjur undir ermi. Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkjuna undir ermi. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 4-6-6-5-7-10 sinnum = 41-41-45-47-47-49 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist ca 37-35-34-32-31-30 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir umferð með sléttum lykkjum. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir 2 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-7-7-7-7-7 lykkjur = 46-48-52-54-54-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið garðaprjón hringinn í 2 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 39-37-36-34-33-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #aprillovesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.