DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Full Moon Festival Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, klukkuprjóni og V-hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 223-16
DROPS Design: Mynstur ai-321
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-450-450-500 g litur 02, hveiti

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 629: 5-5-5-5-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 39 lykkjur), mínus 1 kantlykkja í hvorri hlið og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 3,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kantlykkjur.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. hver og 4. hver lykkja slétt saman.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka – á við um berustykki og fram- og bakstykki):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 2 og 3.

KLUKKUPRJÓN (prjónað í hring á við um ermar):
UMFERÐ 1: Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina.
Endurtakið umferð 1 og 2.

LASKALÍNA:
Aukið út um 4 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki í (= 16 lykkjur fleiri í umferð).
Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu (þ.e.a.s. 3. umferð í klukkuprjóni).
Aukið út um 4 lykkjur í slétta lykkju í klukkuprjónsmynstri þannig:
Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna saman 1 sinni til viðbótar, færið prjónamerkið að þessari lykkju (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman 1 sinni til viðbótar (= 3 lykkjur og 2 uppslættir), sleppið lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni, en takið vel eftir að í fyrstu umferð (ranga) eftir umferð með útaukningum, prjónið sléttu lykkjurnar í útaukningum slétt án uppsláttar þar sem þar er enginn uppsláttur. Prjónamerkið situr nú í miðju útauknu lykkjunni, þ.e.a.s. í sléttri lykkju.

ÚRTAKA (á við um undir ermum):
Fækkið um 2 lykkjur í 2. umferð í klukkuprjónsmynstri við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í (uppslátturinn er ekki talinn sem lykkja), lyftið næstu lykkju + uppslætti af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur + uppslátt slétt saman og steypið síðan lyftu lykkjunni + uppslætti yfir (= 2 lykkjur færri), færið prjónamerkið að næstu sléttu lykkju í stykki.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 41-42-42-44-44-45 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-7-11-9-9-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 49-49-53-53-53-57 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki eftir 25-25-27-27-27-29 lykkjur, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

Prjónið nú KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar 3. umferð hefur verið prjónuð til loka, setjið 1 prjónamerki í skiptinguna á milli bakstykkis/framstykkis og erma þannig:
Fyrsta prjónamerki: Hoppið yfir fyrstu lykkjuna (= kantlykkja í garðaprjóni) og setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju.
Annað prjónamerki: Hoppið yfir næstu 9 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Hoppið yfir næstu 25-25-29-29-29-33 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Hoppið yfir næstu 9 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju.
Nú er 1 lykkja eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni, JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu og V-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

LASKALÍNA:
Í næstu umferð sem er prjónuð frá réttu (= 3. umferð í mynstri) byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í 8. hverri umferð alls 6-7-8-9-10-11 sinnum = 96-112-128-144-160-176 lykkjur fleiri.

V-HÁLSMÁL:
Þegar á að gera 3. útaukningu fyrir laskalínu, byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli. Aukið út um 2 lykkjur í 4. lykkju frá kanti í hvorri hlið (þ.e.a.s. slétt lykkja í klukkuprjónsmynstri) þannig:
Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman 1 sinni til viðbótar (= 2 lykkjur og 1 uppsláttur), sleppið lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni. Aukið svona út í 8. hverri umferð alls 6-7-7-8-8-8 sinnum (= 12-14-14-16-16-16 lykkjur fleiri fyrir V-hálsmáli í hvorri hlið á stykki).
Þegar öll útaukning fyrir laskalínu og V-hálsmáli er lokið eru 169-189-209-229-245-265 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21-21-23-24-26-28 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er frá röngu og er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 26-30-32-36-38-40 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 33-37-41-45-49-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-5-7-7 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 51-55-63-67-71-79 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 33-37-41-45-49-53 lykkjur á þræði fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-5-7-7 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 26-30-32-36-38-40 lykkjur.
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 113-125-137-149-161-173 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni.
Þegar stykkið mælist 17-19-19-20-20-20 cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé umferð frá réttu, eru eftir ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Nú er mynstrið prjónað þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur klukkuprjón eins og áður, prjónið A.1 yfir næstu 108-120-132-144-156-168 lykkjur (= 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með síðustu lykkju í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 26-28-28-29-29-29 cm frá skiptingu.
Í næstu umferð eru lykkjur auknar út í hliðum og sett eru 4 prjónamerki sem eru notuð síðar þegar stroffprjón er prjónað.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Framstykki: 1 kantlykkja garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 14-16-18-20-22-22 lykkjur. Setjið prjónamerki hér.
Í hlið á fram- og bakstykki: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 26-28-30-34-36-40 lykkjur (= 13-14-15-17-18-20 lykkjur fleiri), setjið eitt prjónamerki hér.
Bakstykki: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 30-34-38-38-42-46 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér.
Í hlið á fram- og bakstykki: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 26-28-30-34-36-40 lykkjur (= 13-14-15-17-18-20 lykkjur fleiri), setjið eitt prjónamerki hér.
Framstykki: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 15-17-19-21-23-23 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón.
Nú eru 139-153-167-183-197-213 lykkjur í umferð.

Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroffprjón frá röngu þannig:
1 kantlykkja garðaprjón, (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) fram að fyrsta prjónamerkinu, prjónið (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat) fram að næsta prjónamerki, prjónið (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) fram að næsta prjónamerki, prjónið (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat) fram að næsta prjónamerki, prjónið (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið áfram fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og prjónið 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stroffið mælist 3 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 33-37-41-45-49-53 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 6 og fitjið upp 5-5-5-5-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= mitt undir ermi) = 38-42-46-50-56-60 lykkjur.
Prjónið KLUKKUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan (passið uppá að byrja í réttri umferð í mynstri), umferðin byrjar nú með 1. af 5-5-5-5-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp mitt undir ermi.
Í stærð XS, S, M og L er prjónað áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.
Í stærð XL og XXL er prjónað áfram þannig:
Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið nú lykkjum undir ermi – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 8. hverri umferð alls 2-2 sinnum = 52-56 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-42-41-40-39-38 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis).
Nú eru eftir ca 4 cm til loka. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 0-2-4-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-42-44-46 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Ermin mælist ca 45-46-45-44-43-42cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermin á sama hátt.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka á bakstykki, prjónamerkið er notað þegar helmingur af lykkjunum í kanti að framan/kanti í hálsmáli er talinn. Kantur að framan er prjónaður upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á framstykki og í 1. umferð sem er prjónaður í kringum hálsmál.

Hægri kantur að framan:
Byrjið neðst á hægra framstykki frá réttu með hringprjón 4 og Air. Prjónið upp ca 119 til 149 lykkjur meðfram öllu framstykkinu upp að prjónamerki í hnakka (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1). Það er mikilvægt að stroffið verði ekki of slappt með of margar lykkjur, en má heldur ekki vera of stíft með of fáar lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 1 lykkja brugðið, (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 1 cm, fellið af fyrir 5-5-5-5-6-6 hnappagötum.
Neðsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið þar sem v-hálsmálið byrjar. Þau 3-3-3-3-4-4 hnappagöt sem eru eftir eru staðsett jafnt yfir með ca 8 cm millibili á milli hnappagata.
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Haldið áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.

Vinstri kantur að framan:
Byrjið mitt aftan í hnakka frá réttu með hringprjón 4 og Air. Prjónið upp jafn margar lykkjur og á hægri kanti að framan (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið
symbols = prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman
symbols = fækkið um 2 lykkjur þannig: Prjónið næstu 3 lykkjur (+ uppslátt sem tilheyrir lykkjum) slétt saman (= 2 lykkjur færri).
symbols = aukið út um 2 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppsláttinn með því að prjóna 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppslættinum af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkjuna og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni, en takið vel eftir að í fyrstu umferð á eftir umferð með útaukningum, prjónið sléttu lykkjurnar í útaukningu slétt án þess að prjóna þær með uppslættinum, þar sem uppslátturinn er ekki lengur til staðar.
symbols = byrjið í þessari umferð í mynstri
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Irene Suihko wrote:

Hei, jätin kuvion eli mallineuleen tekemättä helmaan ja tein vain pelkkää patenttia. Vaikuttaako se jotenkin joustinneuleosion aloittamiseen? Yt. Irene

07.04.2024 - 14:30

DROPS Design answered:

Hei, tämä ei vaikuta joustinneuleen aloittamiseen. Tee kuitenkin sivulisäykset ohjeen mukaisesti ennen kuin aloitat joustinneuleen.

08.04.2024 - 18:02

country flag Mia wrote:

Hei, når jeg strikker helpatent øker jeg med mange masker, hvordan skal jeg unngå det?

23.03.2024 - 08:43

DROPS Design answered:

Hej Mia, husker du at strikket omslaget sammen med næste maske?

03.04.2024 - 14:19

country flag ÁNGELA GARCÍA ALARCÓN wrote:

Pueden explicar con exactitud como se teje la zona de aumentos por el revés?. Gracias

12.03.2024 - 20:02

DROPS Design answered:

Hola Ángela, puedes ver el siguiente vídeo sobre cómo trabajar este aumento: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1332&lang=es

17.03.2024 - 21:09

country flag Lene Køhler wrote:

Hej. Jeg har desværre problemer med at læse jeres opskrift. Ved sætning af mærke 1+2+3+4 i starten af arbejdet står der, at der er 1 maske tilbage på pinden efter sidste mærke. Dette er ikke rigtigt. Jeg strikker en str. L. Endvidere fremgår det ikke tydeligt ( slet ikke), hvor raglanudtagningerne til ryggen skal være. Der er kun oplyst, hvor der skal være udtagninger til raglan på forstykket efter/ ved maske 9 ( går jeg ud fra). Jeg hører gerne fra Dem. Mvh Lene

06.03.2024 - 13:59

country flag Noémie wrote:

Hei Drops Design, Jeg strikker full moon festival cardigan i minste størrelse. Derfor startet jeg med å legge opp 41 masker, dermed økte jeg jevnt fordelt over pinnen med 8 masker og har da 49 masker. Når jeg da begynner på helpatent 1. pinne ender jeg opp med 72 masker. Deretter fortsetter jeg med 2. og 3. pinne og ender fortsatt opp med 72 masker. Når jeg da skal sette markør på 9 + 25 + 9 + 2 + 4 har jeg 72-49=23 masker igjen. Hva gjør jeg feil?

18.02.2024 - 10:48

country flag Maria Venetsanou wrote:

Hello team i start it with 41 sts plus 8 sts = 49 1 marker 1 sts 2 marker 9sts 3marker 25 sts 4 marker 9 sts 1 sts edge total 45 sts i have 4 sts more what i make wrong ? can you help me? total

13.01.2024 - 22:00

DROPS Design answered:

Dear Maria, at the start of the yoke, on row 3 of the English rib, you insert the markers inside stitches. So you have: edge stitch (=1), stitch with marker (= 1), 9 stitches, stitch with marker (= 1), 25 stitches, stitch with marker (= 1), 9 stitches, stitch with marker (= 1), edge stitch. So you have: 1+1+9+1+25+1+9+1+1 = 49 stitches. Happy knitting!

14.01.2024 - 13:33

country flag Maria Venetsanou wrote:

Hello team I start it .I put 41st and added 8 =49 For the markers 1 marker 1st 2 marker 9st 3marker 25 st 4 marker9 st Remain 1 std Total 45 sts remain 4 sts What i do wrong?

13.01.2024 - 00:46

country flag Nadya wrote:

Hello, Could you please explain why does one need to increase stitches in the sides before knitting the ribbing. Thank you.

10.12.2023 - 00:24

DROPS Design answered:

Dear Nadya, ribbing tends to pull the knitting in, we do these increases to avoid that. I hope this helps. Happy Knitting!

10.12.2023 - 21:30

country flag Rita wrote:

Stemmer virkelig mønsteret nederst på bolen? Jeg har strikket prøvelapp etter å ha kommet feil ut på jakken, og får det likevel ikke til å stemme. Skal *strikk 1 rille - 2 masker helpatent - mønster - 1 maske helpatent - 1 rille* alltid strikkes fra rettsiden? Hva er det jeg ikke skjønner her?

31.10.2023 - 16:03

DROPS Design answered:

Hei Rita. Når arbeidet måler 17-19-19-20-20-20 cm fra delingen – avpass at neste pinne er en pinne fra retten, (det er kun neste pinne som skal være fra retten, ikke alltid fra retten). Så strikkes det mønster slik det er forklart i oppskriften. mvh DROPS Design

06.11.2023 - 09:42

country flag Sandra wrote:

Op de tekening met de maten zie je bij de mouw 21 cm(maat s) dit staat ook in het patroon vanaf de markering gemeten, maar waar komt nou die 4 cm vandaan die erboven staat?

29.09.2023 - 22:17

DROPS Design answered:

Dag Sandra,

De 4 cm is vanaf de bovenkant van de schouder tot waar de raglanlijn begint (als je het kledingstuk plat neerlegt).

03.10.2023 - 06:34