DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Full Moon Festival

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, og klukkuprjóni. Stærð XS - XXL.

DROPS 223-15
DROPS Design: Mynstur ai-322
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-450-450-500 g litur 02, hveiti

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 13 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 6,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis 5. hver og 6. hver lykkja og 6. hver og 7. hver lykkja slétt saman.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI :
UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 3. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* út umferðina.
Endurtakið umferð 2 og 3.

KLUKKUPRJÓNSLYKKJA:
Þegar lykkjurnar eru taldar þá er uppslátturinn ekki talinn sem eigin lykkja.

LASKALÍNA:
Aukið út um 4 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki í (= 16 lykkjur fleiri í umferð).
Öll útaukning er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman (þ.e.a.s. UMFERÐ 3 í klukkuprjóni).
Aukið út um 4 lykkjur í sléttri klukkuprjónslykkju þannig:
Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna saman 1 sinni til viðbótar, færið prjónamerkið að þessari lykkju (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman 1 sinni til viðbótar (= 3 lykkjur og 2 uppslættir), sleppið lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni.
Í næstu umferð eru útauknar lykkjurnar prjónaðar þannig:
Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni, en takið vel eftir að í fyrstu umferð eftir umferð með útaukningum, prjónið sléttu lykkjurnar í útaukningum brugðið án uppsláttar þar sem það er enginn uppsláttur. Prjónamerkið situr nú í miðju útauknu lykkjunni, þ.e.a.s. í sléttri lykkju.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 2 lykkjur í 3. umferð í klukkuprjónsmynstri við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í (uppslátturinn er ekki talinn sem lykkja), lyftið næstu lykkju + uppslætti af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur + uppslátt slétt saman og steypið síðan lyftu lykkjunni + uppslætti yfir (= 2 lykkjur færri), færið prjónamerkið að næstu sléttu lykkju í stykki.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-76-80-84-88-92 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 2 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 13-13-15-15-15-17 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 13-11-11-11-13-13 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-2-2-2-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 25-27-29-31-31-33 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 13-11-11-11-13-13 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-2-2-2-4-4 lykkjur jafnt yfir, prjónið stroff eins og áður yfir síðustu 12-14-14-16-16-16 lykkjur = 68-72-76-80-80-84 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 6. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið nú KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan, umferðina hringinn. Þegar 3. umferð hefur verið prjónuð til loka, setjið 1 prjónamerki í KLUKKUPRJÓNSLYKKJU- sjá útskýringu að ofan, í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki) þannig:
Fyrsta prjónamerki: Hoppið yfir fyrstu 12-12-14-14-14-16 lykkjur, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju (= hálft bakstykki).
Annað prjónamerki: Hoppið yfir næstu 9 lykkjur, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju (= ermi).
Þriðja prjónamerki: Hoppið yfir næstu 23-25-27-29-29-31 lykkjur, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju (= framstykki).
Fjórða prjónamerki: Hoppið yfir næstu 9 lykkjur, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju.
Nú eru 11-13-13-15-15-15 lykkjur eftir í umferð.

Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni. JAFNFRAMT þegar prjóna á næst 3. umferð í klukkuprjónsmynstri, byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í 8. hverri umferð alls 6-7-8-9-10-11 sinnum = 164-184-204-224-240-260 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram í klukkuprjóni þar til stykkið mælist 21-21-23-24-26-28 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsi – stillið af að næsta umferð sé eins og 2. umferð í klukkuprjónsmynstri.

Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 25-27-31-33-35-39 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 33-37-41-45-49-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-5-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 49-55-61-67-71-77 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 33-37-41-45-49-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-5-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 24-28-30-34-36-38 lykkjur.
Prjónið fram- og bakstykki og ermar áfram hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 108-120-132-144-156-168 lykkjur. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni eins og áður.
Þegar stykkið mælist 17-19-19-20-20-20 cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé 3. umferð í mynstri, eru eftir ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið nú A.1 hringinn í umferð. Þegar 1 umferð er eftir í mynsturteikningu mælist stykkið ca 26-28-28-29-29-29 cm frá skiptingu.
Í næstu umferð (síðustu umferð í mynsturteikningu = 2. umferð í klukkuprjónsmynstri) eru lykkjur auknar út í hliðum og sett eru 4 prjónamerki sem eru notuð síðar þegar stroffprjón er prjónað.

Næsta umferð er prjónuð þannig:
Hálft bakstykki: * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 14-14-18-18-20-22 lykkjur. Setjið prjónamerki hér.
Í hlið á fram- og bakstykki: * Prjónið uppsláttinn snúinn brugðið (= 1 lykkja fleiri), prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 26-28-30-34-36-40 lykkjur (= 13-14-15-17-18-20 lykkjur fleiri), setjið eitt prjónamerki hér.
Framstykki: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 28-32-36-38-42-44 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér.
Í hlið á fram- og bakstykki: * Prjónið uppsláttinn snúið brugðið, (= 1 lykkja fleiri), prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 26-28-30-34-36-40 lykkjur (= 13-14-15-17-18-20 lykkjur fleiri), setjið eitt prjónamerki hér.
Hálft bakstykki: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 14-18-18-20-22-22 lykkjur.
Nú eru 134-148-162-178-192-208 lykkjur í umferð.

Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroffprjón þannig:
(1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) fram að fyrsta prjónamerkinu, prjónið (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt fram að næsta prjónamerki, prjónið (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) fram að næsta prjónamerki, prjónið (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt fram að næsta prjónamerki, prjónið (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) út umferðina.
Haldið áfram hringinn með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 3 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 33-37-41-45-49-53 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 6 og fitjið upp 5-5-5-5-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= mitt undir ermi) = 38-42-46-50-56-60 lykkjur.
Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni eins og áður - passið uppá að byrja í réttri umferð í mynstri, umferðin byrjar nú með 1. af 5-5-5-5-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp mitt undir ermi.
Í stærð XS, S, M og L er prjónað áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.
Í stærð XL og XXL er prjónað áfram þannig:
Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju undir ermi (= 1 lykkja slétt í klukkuprjónsmynstri). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé umferð 3 í klukkuprjónsmynstri, fækkið nú lykkjum undir ermi – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 8. hverri umferð alls 2-2 sinnum = 52-56 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-41-39-39-37-35 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis).
Nú eru eftir ca 4 cm til loka. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 0-2-4-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-42-44-46 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Ermin mælist ca 44-45-43-43-41-39 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið

symbols = prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman
symbols = prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman
symbols = fækkið um 2 lykkjur þannig: Prjónið næstu 3 lykkjur (+ uppslátt sem tilheyrir lykkjum) slétt saman (= 2 lykkjur færri).
symbols = aukið út um 2 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppsláttinn með því að prjóna 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppslættinum af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkjuna og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni, en takið vel eftir að í fyrstu umferð á eftir umferð með útaukningum, prjónið brugðnar lykkjur í útaukningu brugðið án þess að prjóna þær með uppslættinum, þar sem uppslátturinn er ekki til staðar lengur.
symbols = byrjið í þessari umferð í mynstri
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Lilian wrote:

Jeg kan ikke finde ud af sidste pind i ryg/forstykke. Strik omslaget drejet vrang, 1 V og 1 R. Gentag. Men der er efter forrige pind en vrangmaske, der IKKE har et omslag Så hvordan skal jeg gøre. På forhånd tal Lilian

02.03.2024 - 12:12

DROPS Design answered:

Hei Lilian. Husk å lese forklaringen til diagramikonet: ... men vær opmærksom på at på første omgang efter en omgang med udtagninger, strikkes vrangmaskerne i udtagningen vrang uden at de strikkes sammen med omslag, fordi omslaget ikke er lavet endnu. mvh DROPS Design

11.03.2024 - 07:38

country flag Katharina wrote:

Hallo, ich versuche das Model in halbpatent, von unten zu Stricken, verstehe aber das Diagramm leider nicht! ist das Diagramm alle 10 Reihen verschoben? Wie stricke ich die Maschen in der zweiter Reihe? So wie die Maschen erscheinen?

26.01.2024 - 17:33

DROPS Design answered:

Liebe Katarina, das Diagram macht ein kleines Muster mit Abnahmen/Zunahmen, so sieht das Muster etwast verschoben aber so wird es nicht, schauen Sie das 4. Foto oben, um das Ergebnis zu sehen. Viel Spaß beim stricken!

29.01.2024 - 11:25

country flag Caroline wrote:

Ik heb de pas en het lijf perfect volgens de beschrijving kunnen breien. Bij de meerderingen voor de zijkant van het lijf kom ik echter uit op een totaal van 198 steken ipv 208. Ik begrijp niet waar ik die 10 extra meerderingen nog had moeten bijmaken?

03.07.2023 - 23:04

DROPS Design answered:

Dag Caroline,

Er zijn 2 stukken waarover je over 40 steken, steeds de omslagen averecht breit. Hierdoor meerder je in die secties 20 steken, dus in totaal 40 steken.

06.07.2023 - 21:09

country flag Anne wrote:

Hej Jeg er ved at strikke de 19 cm på ryg/forstykke inden man skal strikke A1. Skal sidste række inden A1 være en 2. eller 3. omgang i helpatentmønsteret? Eller er det ligemeget? Hilsen Anne

07.05.2023 - 22:03

DROPS Design answered:

Hei Anne. Når du skal starte å strikke A.1 må du avpasse slik at neste omgang (altså den omgangen du skal starte med er 3. omgang med forklaringen til HELPATENT MED KAST). Om du ser på forklaringen til 3. omgang og 1. rad i diagram A.1 er det lik forklaringen. Da får du en fin overgang fra helpatent med kast til diagram A.1. mvh DROPS Design

08.05.2023 - 13:59

country flag Emma Svensson wrote:

Jeg skal strikke den største størrelsen. Setter første merke i maske nr.17 og får da 15 masker igjen på pinnen når siste merke er satt på. Men så strikker jeg omg.2 i raglan for så å øke på 3 omg. Da sitter merket i en enkel maske uten kast. Hvordan få dette til å bli riktig? Setter ut markører etter en omg.3. Er det feil i beskrivelsen?

08.01.2023 - 13:52

DROPS Design answered:

Hej Emma, du sætter først mærkerne når du har strikket 3. omgang. Næste gang du skal strikke 3.omgang starter udtagningerne. Se i videoen nederst hvordan du tager ud i retpatentmasken som forklaret i RAGLAN :)

10.01.2023 - 13:31

country flag Alanio wrote:

J'ai compris. On marque la maille après la 14ème....

10.12.2022 - 18:12

country flag Evelyne Alanio wrote:

J'ai commencé le pull. Problème lors du partage dos, manches et devant J'ai 76 m à partager 14 demi dos, 9 manche, 27 devant, 9 manche, il me reste 17 au lieu de 13. Y a t il une solution ? Merci

09.12.2022 - 20:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Alanio, chacun des marqueurs doit être dans une maille, autrement dit, vous devez avoir: 14 m (1/2 dos), 1 m avec un marqueur, 9 m (manche), 1 m avec un marqueur, 27 m (devant), 1 m avec un marqueur, 9 m (manche), 1 m avec un marqueur, 13 m (demi-dos), soit: 14+1+9+1+27+1+9+1+13=76 mailles. Bon tricot!

12.12.2022 - 08:50

country flag Chris wrote:

Am Ende der Halsblende vor Beginn der Passe soll man bei Grösse L 80 Maschen haben. Nach drei Runden Vollpatent soll man die Masxhenmarker bei 14, 9, 29, 15 setzen. Dann bleiben noch 5 Masxhen übrig. Ich komm auf 75 statt auf 80.

30.11.2022 - 23:57

DROPS Design answered:

Liebe Chris, die Markierer sollen in je eine Masche eingesetzt werden, so haben Sie: 14 M, 1 M mit Markierer, 9 M, 1 M mit Markierer, 29 M, 1 M mit Markierer, 9 M, 1 M mit Markierer, 15 M (=14+1+9+1+29+1+9+1+15=80 M). Viel Spaß beim stricken!

01.12.2022 - 11:23

country flag Nina Yndestad Eide wrote:

Hei igjen. Har eit spørsmål til: Kva er poenget med å øke ut så mange masker i sidene? Blir genseren for smal hvis eg lar vere å øke ? Mvh Nina. Y. Eide

06.11.2022 - 22:13

DROPS Design answered:

Hei Nina, Fasongen er vid på denne genseren. Du får selvfølgelig en smalere genser hvis du ikke øker masker, men det er fullt mulig å strikke genseren slik, hvis du ønsker det. God fornøyelse!

07.11.2022 - 07:44

country flag Nina Yndestad Eide wrote:

Hei \\r\\nSkjønner ikkje korleis eg skal strikke den siste omgangen på diagrammet. Går fint dei første 18 maskene (størrelse L), men så kjem eg til sidene på bolen og da stopper det opp. Går greitt heilt til eg kjem til der eg har økt på omgangen under. Da stemmer det ikkje lenger. Skal eg ikkje strikke kastet vridd vrang og så 1 vrang og 1 rett og gjenta det dei neste 34 maskene ?\\r\\nMvh Nina Y. Eide

06.11.2022 - 20:38