Renate Halfers skrifaði:
Mooi patroon en mooi garen. Kan niet wachten totdat het patroon er is
08.02.2021 - 17:55
Milena skrifaði:
Le modèle est aussi bien en pull, qu'en débardeur. Beau cintrage grâce aux losanges sur la poitrine, prolongés par les liens verticales.
11.01.2021 - 12:50
Hanne Meier skrifaði:
Flot og let model. Har hørt godt om Sky.
09.01.2021 - 10:12
Manjola skrifaði:
Magnolia flower
08.01.2021 - 11:01
White Meadow#whitemeadowsweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli og blöðruermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-7 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið. ÚRTAKA (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman. Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 3 kantlykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur brugðið saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, prjónað er neðan frá og upp. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig að loka máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu. Síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna til loka máls. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 120-128-140-156-172-188 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og1 prjónamerki eftir 60-64-70-78-86-94 lykkjur (= í hliðum á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau eru notuð þegar auka á út í hliðum. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 5-7-10-9-13-17 lykkjur brugðið, prjónið A.1A (= 8 lykkjur), prjónið A.1B yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.1C (= 12 lykkjur), 5-7-10-9-13-17 lykkjur brugðið, prjónamerki *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm, skiptið yfir á hringprjón 7. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 10-10-10-12-12-12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtaki útaukningu þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm = 128-136-148-164-180-196 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, aukið út um lykkjur áður en kaðlarnir byrja, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: * 7-9-12-11-15-19 lykkjur brugðið, prjónið A.2A (= 8 lykkjur), prjónið A.2B yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.2C (= 12 lykkjur), prjónið 7-9-12-11-15-19 lykkjur brugðið, prjónamerki *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 148-156-168-188-204-220 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 7-9-12-11-15-19 lykkjur brugðið, prjónið A.3A (= 10 lykkjur), prjónið A.3B yfir næstu 36-36-36-48-48-48 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.3C (= 14 lykkjur), 7-9-12-11-15-19 lykkjur brugðið, prjónamerki *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, en takið vel eftir að lykkjur eru felldar af fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 12-12-12-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (= 6-6-6-6-7-8 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). ATH: Stillið af þannig að fyrsta umferð þegar prjónað er garðaprjón sé oddatölu umferð í mynstri, þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að snúa kaðli frá röngu þar sem stykkið er prjónað síðar fram og til baka. Eftir 4 umferðir garðaprjón er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 3-3-3-3-4-5 lykkjur, prjónið 68-72-78-88-94-100 lykkjur eins og áður, fellið af 6-6-6-6-8-10 lykkjur (prjónamerkið situr mitt í þessum 6-6-6-6-8-10 lykkjum), prjónið 68-72-78-88-94-100 lykkjur eins og áður og fellið af síðustu 3-3-3-3-4-5 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 68-72-78-88-94-100 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-3-6-5-8-11 sinnum. ATH: Í stærð XXL og XXXL fækkið lykkjum fyrir handveg einnig eftir að A.3 hefur verið prjónað til loka. Haldið áfram með A.4 yfir A.3 þar til lykkjum hefur verið fækkað fyrir handveg – þær lykkjur sem ekki hefur verið fækkað um þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónast brugðið frá réttu og slétt frá röngu þar til þeim hefur verið fækkað, síðan heldur mynstrið áfram eins og útskýrt er að neðan. MYNSTUR EFTIR HANDVEG: Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina og allar fækkað hefur verið um allar lykkjur fyrir handveg eru 58-58-58-68-68-68 lykkjur eftir í umferð og mynstrið heldur áfram frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.4A (= 10 lykkjur), prjónið A.4B yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.4C (= 12 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 20-20-20-22-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 17-17-17-21-21-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 68-72-78-88-94-100 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-46-47-49-51 cm. Setjið nú miðju 14-14-14-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3 sinnum = 17-17-17-21-21-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 36-40-40-40-44-44 lykkjur á sokkaprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem prjónuð er 1 lykkja slétt framan í og aftan í allar lykkjurnar í umferð (lykkjufjöldinn tvöfaldast) = 72-80-80-80-88-88 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 7. Prjónið sléttprjón hringinn með 1 þræði Kid-Silk. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar ermin mælist 37-37-37-34-34-33 cm, felið af fyrir handveg þannig (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu): Byrjið 3 lykkjum á undan byrjun á umferð, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg og prjónið sléttprjón út umferðina. Ermakúpan er núna prjónuð fram og til baka á hringprjóna til loka. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3-4-5-5-6-7 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð þar til ermin mælist 44-45-46-43-44-45 cm = ca 52-58-56-56-62-60 lykkjur eftir. Í næstu umferð frá réttu eru þær lykkjur sem eftir eru prjónaðar slétt saman 2 og 2. Fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í – kantur í garðaprjóni meðfram handveg á að liggja utan á ermi og saumað er í ystu lykkjubogana svo það verði ekki opinn kantur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu ca 72 til 80 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið inn tvöfalt að röngu á flík. Saumið stroffið niður, en til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitemeadowsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.