Merete Justesen skrifaði:
Efter første udtagning til hals står der strik 9 cm fra mærket. Mærket sidder ved udtagningen til hals og derfra er der allerede strikket 6 cm. Kan det passe at der kun skal strikkes 3 cm efter første udtagning? For så bliver stykket under hals ikke så langt som på billederne. Strikker str 3-5 år
05.12.2022 - 12:38DROPS Design svaraði:
Hei Merete. Når du har lagt opp 12 nye masker (under haken), settes det et nytt merke. Strikk for forklart i oppskriften til arbeidet måler 6 cm, øk deretter alle 2 rett til 3 rett. Strikk videre til arbeidet måler 9 cm fra merket, altså 3 cm fra siste det ble økt masker. Og nå økes det igjen. Strikk 1 omgang med 3 masker rett / 3 masker riller. Strikk 1 omgang vrang. Deretter felles det løst av med rett. Arbeidet måler ca 34 cm fra midt på midtpartiet og ned. mvh DROPS Design
05.12.2022 - 14:45
Jocelyne skrifaði:
Je ne vois comment faire une augmentation à 7 mailles du bord et continuer à réaliser le diagramme, dans la mesure où je rajoute une maille et le diagramme tourne sur 2 mailles merci pour votre aide
02.04.2022 - 17:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Jocelyne, effectivement, après la 1ère augmentation, le motif ne tombera pas juste, tricotez les mailles comme un nouveau motif en largeur, après 4 augmentations, vous aurez augmenté 1 motif complet, après 8 augmentations, vous aurez augmenté 2 motifs complets. Bon tricot!
04.04.2022 - 08:40
Emma skrifaði:
Stämmer det att det på mittpartiet, när man stickar 24maskor, blir det en rand på 4maskor och på andra sidan en rand på 6maskor(kantmaskan inte medräknad).
21.10.2021 - 23:38DROPS Design svaraði:
Hej Emma. Inte helt säker på att jag förstår vad du menar. Vartannat varv i A1 kommer vara slätstickat och vartannat resårstickat (2 rm/2 am) med 1 kantmaska i rätstickning på varje sida. Mvh DROPS Design
22.10.2021 - 08:25
Sølvi Myhre skrifaði:
Hei jeg skal strikke denne i Merino extra fine Bruker jeg samme pinnenr som til Lima?
24.09.2021 - 10:10DROPS Design svaraði:
Hej Sølvi. Ja det skulle jag tro, men det kommer an på hur stramt du stickar. Du ska ha den pinne som gör att du får den stickfasthet som uppges i oppskriften. Mvh DROPS Design
24.09.2021 - 10:43
Britta skrifaði:
Jeg er i tvivl om hvor udtagningerne præcis skal laves. I opskriften står der: “Tag ud indenfor de yderste 7 masker mod midt foran”. Er det lige før de 7 sidste masker inden mærketråden i midten af huen? Eller er det på et vilkårligt sted blandt de første og sidste 7 masker i hver side af huen? Eller lige før den 7. Maske?
08.03.2021 - 20:33DROPS Design svaraði:
Hej Britta, du tager ud mod ansigtet, indenfor de yderste 7 masker :)
11.03.2021 - 09:49
Northern Spirit Kids#northernspiritbalaclava |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð balaclava / lambhúshetta / húfa fyrir börn úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað í áferðamynstri með kanti í stroffprjóni. Stærð 2 til 12 ára.
DROPS Children 37-28 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um í hvorri hlið við miðju að framan): Aukið út innan við ystu 7 lykkjurnar við miðju að framan. Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, þ.e.a.s. 2 fyrstu lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni, næstu 2 lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni, næstu 2 lykkjur í sléttprjóni o.s.frv. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt aftan á húfu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki mitt að aftan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Miðjueiningin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju framan á höfði og aftur. Lykkjur eru prjónaðar upp hvoru megin við miðjueininguna. Síðan er húfan prjónuð fram og til baka á hringprjóna, áður en lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmál mitt að framan. Síðan er afgangur af húfunni prjónaður í hring á hringprjóna að loka máli. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum op að framan. MIÐJUEINING: Fitjið upp 24-28-32-32 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3,5 með Lima. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi eins) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-11-11-13 cm, fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 22-26-30-30 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá. Prjónið síðan húfuna eins og útskýrt er að neðan. HÚFA: Prjónið nú upp lykkjur hvoru megin við miðjueiningu, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið upp 21-25-25-29 lykkjur meðfram hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-26-30-30 lykkjur á prjóni og prjónið upp 21-25-25-29 lykkjur meðfram annarri hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni = 64-76-80-88 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að aftan). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt að aftan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið mitt að framan – mynstrið á að passa fallega yfir lykkjur í miðjueiningu. Aukið síðan út í hvorri hlið við miðju að framan og fækkið lykkjum mitt að aftan eins og útskýrt er að neðan – lestu kaflann um útaukningu og úrtöku áður en þú prjónar áfram! ÚTAUKNING Í HVORRI HLIÐ VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN: Þegar stykkið mælist 8-8-9-9 cm frá þar sem prjónamerkið var sett í, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að framan – sjáLEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum í hvorri hlið. ÚRTAKA MITT AÐ AFTAN: JAFNFRAMT þegar auka á út í 5. skiptið, fækkið um 2 lykkjur mitt að aftan – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 4 sinnum (útaukning og úrtaka endar samtímis). Eftir þessa útaukningu og úrtöku eru 72-84-88-96 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 18-18-19-19 cm frá þar sem prjónamerki var sett, á að fitja upp lykkjur fyrir hálsmáli mitt að framan. Mátið e.t.v. húfuna og prjónið að óskaðri lengd. Fitjið upp 12-12-16-16 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 84-96-104-112 lykkjur í umferð. Takið prjónamerkið frá úr stykkinu og setjið 1 prjónamerki í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú hálsmál eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Prjónið nú stykkið í hring á hringprjón. Haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur – passið uppá að mynstrið gangi jafnt upp alla leiðina hringinn. Þegar stykkið mælist 5-6-7-8 cm frá prjónamerki undir hálsmáli, aukið út allar 2 lykkjur slétt til 3 lykkjur slétt með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir allar 2 lykkjur slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð) = 105-120-130-140 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 8-9-10-11 cm frá prjónamerki. Aukið nú allar 2 lykkjur garðaprjón til 3 lykkjur garðaprjón með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir allar 2 lykkjur garðaprjón = 126-144-156-168 lykkjur. Prjónið 1 umferð með 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón (uppslátturinn er prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið 1 umferð brugðið. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 32-34-36-38 cm frá miðju á miðjueiningu og niður. KANTUR Í KRINGUM OP AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst í opi að framan, þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir hálsmál og prjónið upp ca 136-140-148-152 lykkjur í kringum opið að framan innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón 3 með Lima. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5-6-6-6 cm – stillið af að stroffið passið fallega yfir lykkjur í miðjueiningu og við hálsmál þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Brjótið stroffið inn að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur. Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northernspiritbalaclava eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.