Geneva wrote:
How do you knit "one ridge over the 4 stitches? "
27.01.2024 - 20:16DROPS Design answered:
Dear Geneva, 1 ridge = work 2 rows in garter stitch (as indicated in the EXPLANATIONS FOR THE PATTERN), which are 2 knit rows. This means that you will knit these 4 stitches in the next 2 rows. Happy knitting!
28.01.2024 - 23:56Geneva wrote:
How do you knit "one ridge over the 4 stitches? "
27.01.2024 - 20:16DROPS Design answered:
Dear Geneva, 1 ridge = work 2 rows in garter stitch (as indicated in the EXPLANATIONS FOR THE PATTERN), which are 2 knit rows. This means that you will knit these 4 stitches in the next 2 rows. Happy knitting!
28.01.2024 - 23:56Flaviana wrote:
If I wanted to use a group D yarn for the size 9-12 years, in this case Drops Melody, how much would I need?
03.11.2021 - 11:58DROPS Design answered:
Dear Flaviana, you will find how to calculate new amount of yarn here - just remember texture will be different when using an alternative. Should you need any assistance, please contact your DROPS store so that they can help you, even per mail or telephone. Happy knitting!
03.11.2021 - 13:24Flaviana wrote:
Do I need to use the two strands (1 Karisma and 1 Alpaca) all the way through the hat or just in certain places? For the bigger size, I read that 150g of Karisma are 300m long, but 50g of Alpaca are 167m? Thank you.
03.11.2021 - 11:44DROPS Design answered:
Dear Flaviana, this pattern is worked with 2 yarns held together: 1 strand Karisma + 1 strand Brushed Alpaca Silk (not Alpaca) - Karisma comes in ball 50 g and Brushed Alpaca Silk 25 g/140 m - reason why you require less ball, for ex. in first size you need 2 balls Karisma but just 1 Brushed Alpaca Silk. Happy knitting!
03.11.2021 - 12:22Karin Wallin wrote:
Hei Kan jeg bruke Drops Air til denne lua? Hilsen Karin
08.10.2021 - 10:14DROPS Design answered:
Hej Karin. Ja du kan byta ut DROPS Brushed Alpaca Silk mot DROPS Air. (Dvs att du stickar den med 1 tråd Karisma och 1 tråd DROPS Air). Se bara till att du får den stickfasthet som uppges på mönstret, och att beräkna riktig garnåtgång. Mvh DROPS Design
08.10.2021 - 11:22
Warm Snuggles Kids |
|
|
|
Prjónuð balaclava / húfa / lambhúshetta fyrir börn úr DROPS Karisma og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með kanti í stroffprjóni. Stærð 2 til 12 ára.
DROPS Children 37-27 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 55 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 4 lykkjur) og deilið þeim 51 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 7,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum á undan hverju prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir hverju prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3 (á við um í hvorri hlið við miðju að framan): Fækkið lykkjum innan við ystu 4 lykkjurnar við miðju að framan. Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 4 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið 4 fyrstu lykkjurnar eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 4 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 4 lykkjum, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 síðustu lykkjurnar eins og áður (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING-2 (á við um miðju aftan á húfu): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki eins og útskýrt er að neðan. Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (prjónamerkið situr á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) prjónið uppsláttinn snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, neðan frá og upp eftir klauf. Síðan er stykkið sett saman og prjónað er áfram í hring á hringprjóna. Lykkjur eru felldar af fyrir háls, síðan er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna til loka máls. Húfan er saumuð saman í toppi. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum op að framan. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 55-59-65-69 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Karisma og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið alls 4 umferðir stroff. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 7-8-8-9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 48-51-57-60 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til framstykkið mælist 3-4-5-5 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Geymið stykkið og prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á framstykki og prjónið alveg eins og framstykkið (framstykkið og bakstykkið eru alveg eins). Setjið síðan stykkið saman fyrir háls eins og útskýrt er að neðan. HÁLS: Setjið framstykkið og bakstykkið á sama hringprjón 6 = 96-102-114-120 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón og prjónið jafnframt 2 umferðir garðaprjón yfir 4 lykkjur í klauf í hvorri hlið. Setjið 6 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, þ.e.a.s. í skiptinguna á milli framstykki og bakstykki. Setjið síðan 5 næstu prjónamerki með 16-17-19-20 lykkja millibili. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 6 prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 = 12 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 3-4-4-4 sinnum á hæðina = 60-54-66-72 lykkjur eftir. Prjónið 2 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð er fækkað um 6-0-6-6 lykkjur með því að fækka um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki (á við um allar stærir nema 3/4 ára) = 54-54-60-66 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 14-16-18-20 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð eru lykkjur felldar af fyrir op mitt að framan, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 9-9-9-10 lykkjur sléttprjón, fellið af 10-10-12-14 lykkjur fyrir op í hálsi og prjónið sléttprjón út umferðina = 44-44-48-52 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að aftan). Prjónið síðan húfuna eins og útskýrt er að neðan. HÚFA: Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað í hvorri hlið við miðju að framan og aukið er út við miðju að aftan eins og útskýrt er að neðan. FÆKKIÐ LYKKJUM Í HVORRI HLIÐ VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN: Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 3-3-4-5 sinnum í hvorri hlið. ÚTAUKNING MITT AÐ AFTAN: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt að aftan – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-4-5-5 sinnum. Eftir allar útaukningar og úrtöku eru 46-46-50-52 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 23-24-25-26 cm frá prjónamerki mitt að aftan, þ.e.a.s. frá þar sem lykkjur voru felldar af við miðju að framan – eða prjónið að óskaðri lengd (þetta mál er hæðin á opi mitt að framan). Stykkið mælist ca 37-40-43-46 cm ofan frá og niður að uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið húfuna saman í toppi innan við affellingarkant. KANTUR Í KRINGUM OP AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst í opi að framan þar sem lykkjur voru felldar af og prjónið upp ca 84-90-94-100 lykkjur í kringum op að framan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði Karisma og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-6-6-6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur. Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |