Forest Vines#forestvinessweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og áferðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-24 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 234 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 58,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 58. og 59. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis 57. og 58. hver lykkja og 58. og 59. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-84-90-90-96-102 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið næstu umferð þannig: S, M og L: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 130-140-150 lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat). Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. XL, XXL og XXXL: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 180-192-204 lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat). Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið A.1 hringinn (= 13-14-15-15-16-17 mynstureiningar með 10-10-10-12-12-12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-6-6-6-7-7 cm frá prjónamerki við hálsmál, prjónið A.2 hringinn (= 13-14-15-15-16-17 mynstureiningar með 10-10-10-12-12-12 lykkjum). Eftir fyrstu umferð í A.2 eru 182-196-210-240-256-272 lykkjur í umferð og þegar 2 fyrstu umferðir hafa verið prjónaðar til loka, endurtakið A.x á hæðina. Þegar stykkið mælist 10-12-12-13-14-14 cm frá prjónamerki við hálsmál, prjónið A.3 hringinn (= 13-14-15-15-16-17 mynstureiningar með 14-14-14-16-16-16 lykkjum). Eftir fyrstu umferð í A.3 eru 234-252-270-300-320-340 lykkjur í umferð og þegar 2 fyrstu umferðir hafa verið prjónaðar til loka, endurtakið A.y á hæðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 18-20-22-23-24-26 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-10-8-6-6-10 lykkjur jafnt yfir = 238-262-278-306-326-350 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 35-39-41-46-50-55 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 71-79-83-93-101-111 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 36-40-42-47-51-56 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-170-182-202-222-242 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 23-25-28-29-33-37 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 177-195-210-231-255-279 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar ermin mælist 6 cm frá skiptingu = 50-54-60-64-68-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4 cm millibili alls 5-5-4-4-4-4 sinnum = 60-64-68-72-76-78 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-40-39-38-38-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-28-29-33-37-36 lykkjur jafnt yfir = 36-36-39-39-39-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 47-45-44-43-43-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá kant í hálsmáli tvöfaldan að röngu og saumið niður með smáu, fallegu spori. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestvinessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.