DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Pink Shell

Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað með áferðamynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 211-10
DROPS Design: Mynstur w-798
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-250-300-350-400 g litur 63, eyðimerkurrós

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með áferðamynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 80 cm fyrir áferðamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu:
Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið þannig:
Prjónið fyrstu 6 lykkjur, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið þannig:
Prjónið fyrstu 6 lykkjur, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri), prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Toppurinn er prjónaður í hring á hringprjóna upp að handveg. Lykkjur eru felldar af í hvorri hlið fyrir handveg og síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 120-132-144-150-168-192 lykkjur á hringprjóna 5,5 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 60-66-72-75-84-96 lykkjur (= í hliðum). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Prjónið A.1 hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 30-32-33-34-35-36 cm – stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé umferð með (2 lykkjur slétt + 1 lykkja brugðið).
Prjónið nú næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 4-4-7-7-7-10 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 51-57-60-60-69-78 lykkjur, fellið af næstu 9-9-12-15-15-18 lykkjur (þ.e.a.s. 5-5-5-8-8-8 lykkjur á undan prjónamerki og 4-4-7-7-7-10 lykkjur á eftir prjónamerki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 51-57-60-60-69-78 lykkjur, fellið af síðustu 5-5-5-8-8-8 lykkjur. Klippið frá. Prjónið síðan framstykki og bakstykki fram og til baka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 51-57-60-60-69-78 lykkjur. Byrjun frá réttu og prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar úrtaka í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð 4-1-2-3-2-1 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 4-10-9-8-10-12 sinnum og að lokum er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-4 sinnum (= 12-15-15-15-18-21 lykkjur færri í hvorri hlið) = 27-27-30-30-33-36 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð og prjónið bakstykki.

BAKSTYKKI:
= 51-57-60-60-69-78 lykkjur. Prjónið á sama hátt og framstykki. Þegar bakstykkið hefur verið prjónað til loka, prjónið kant í hálsmáli.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir 27-27-30-30-33-36 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 12-12-12-15-15-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= band á öxl), prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir 27-27-30-30-33-36 lykkjur á framstykki (setjið til baka lykkjur á prjóninn), fitjið upp 12-12-12-15-15-15 nýjar lykkjur á prjóninn = 78-78-84-90-96-102 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: * Prjónið A.2 yfir fyrstu 27-27-30-30-33-36 lykkjurnar, prjónið A.3 yfir næstu 12-12-12-15-15-15 lykkjur *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir band á öxl. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið – það eiga að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Pink Shell

Handmade_pihlaja, Finland

Pink Shell

Kornelia, Poland

Pink Shell

Carolin, Germany

Pink Shell

Carolin, Germany

Pink Shell

Vicky Castle, Ireland

Pink Shell

Anita, Hungary

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (64)

country flag Corina Avram wrote:

Hi! How much does the pattern stretches? Based on the measurements (my bust is 88cm) I would be knitting size M, but I am afraid that after a few wearings it would be too loose.

15.04.2024 - 10:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Avram, it shouldn't stretch that much, choose the best appropriate size choosing your own ease and make sure to get the correct tension, and then washing the yarn as recommended. Happy knitting!

16.04.2024 - 07:50

country flag Hilde wrote:

Hallo liebes Drops-Team. Ich habe Probleme bei den Abnahmen Auf der linken Seite sieht alles ok aus. Auf der rechten Seite (= 1M abheben/1stricken dann überziehen) sieht es unregelmäßig aus. Woran könnte das liegen? Vielen Dank für einen Rat. MfG

14.06.2023 - 21:19

DROPS Design answered:

Liebe Hilde, per Ferndiagnose ist es etwas schwierig, einen Fehler zu erkennen.Spannen danach kann helfen, eine regelmäßige Arbeit zu haben. Am besten zeigen Sie Ihrem DROPS Laden Ihr Strickstück; vielleicht kann man Ihnen dort weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

15.06.2023 - 09:03

country flag Claudia Parodi wrote:

Come mai nella spiegazione del corpo a deve seguire solo il diagramma A1 e non anche A2 e A3?

04.05.2023 - 12:51

DROPS Design answered:

I diagrammi A.2 e A.3 vengono utilizzati sul bordo del collo, che ha una lavorazione diversa. Buon lavoro!

04.05.2023 - 17:36

country flag Arlettaz Marlyse Sion Suisse wrote:

J’aimerai obtenir un modele du tricot Pink shell s’il vous plait Merci

23.04.2023 - 10:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Arlettaz, vous trouverez les explications en français ici - et la liste des magasins DROPS en Suisse ici. Bon tricot!

24.04.2023 - 10:04

country flag Julia wrote:

Dzień dobry. Jestem początkująca i trochę nie rozumiem odejmowania oczek. Rozumiem, że przy rozmiarze s powinnam co czwarty rząd, cztery razy odjąć po jednym oczku na każdej stronie. Pomyślałam sobie, że żeby wyszło jak na zdjęciu powinnam najpierw zrobić oczko brzegowe, później pięć oczek jak w schemacie, a później odjąć oczko. Ale totalnie nie wygląda to jak wzór na zdjęciu. Wydaje mi się, że całkiem źle zrozumiałam wzór. Pozdrawiam

03.04.2023 - 22:52

DROPS Design answered:

Witaj Julio, w rozmiarze S będziesz zamykać/odejmować: 4 razy 1 oczko z każdej strony co 4 rzędy, dalej 4 razy 1 oczko z każdej strony co 2 rzędy i w końcu 2 razy 2 oczka z każdej strony co 2 rzędy. Jak to robić znajdziesz w części ZAMYKANIE OCZEK (na górze wzoru). Jak wykonać to zamykanie możesz zobaczyć w sekcji video na dole, pod wzorem (kilka filmów na samej górze). W razie problemów pisz. Pozdrawiamy!

04.04.2023 - 08:18

country flag Jackie Adams wrote:

Thank you for your quick response but A 1 implies 2 knits and 1 purl repeated, that doesn't create a lacy texture. Only A2 states yarn overs. Apologies for my misunderstanding of this.

03.04.2023 - 15:08

country flag Jackie Adams wrote:

`I am reading the Pink Shell top on circular needles and am unsure as to what the stitch pattern is. I understand all the decreasing etc, but do not see which stitches are required to create the overall pattern of texture.

02.04.2023 - 16:03

DROPS Design answered:

Dear Jackie, the texture pattern/ stitch pattern is represented in chart A.1, near the measurements schematic. Happy knitting!

02.04.2023 - 22:07

country flag Ghada wrote:

When working the rib on neck edge is it purl,knit,purl,purl,knit,purl ,so two purl and 1 knit? Or 1 purl ,1 knit 1 purl, ,1knit. Meaning rib 1x1 rib or 2x1 rib

18.03.2023 - 23:45

DROPS Design answered:

Dear Ghada, you work: purl1, knit 1, purl 1, purl 1, knit 1, purl 1. Happy knitting!

19.03.2023 - 20:10

country flag Ghada wrote:

Also how do we work the yarn over in the next round using circular needles.

17.03.2023 - 07:36

DROPS Design answered:

Dear Ghada, on the very first row of neck, when casting on the stitches between front and back piece, knit stitches from back and front piece, then work A.2 in the round just as shown in the diagram, this means read every row from the right towards the left, The yarn overs in A.2 will be purled on next round. Happy knitting!

17.03.2023 - 09:07

country flag Ghada wrote:

On first row for neck edge when we join back and front ,which pattern do we use on back & front ?I

15.03.2023 - 08:16