Lucie wrote:
Bonjour, Je pense qu’il a une erreur pour ce model en taille 1 an. Au départ après avoir effectué le col, quand il faut mette les marqueurs et faire les augmentations, le total des mailles devrait être de 68m , on se retrouve à 66m. Ou placer les 2 mailles fantômes? avant quel marqueur?
24.02.2024 - 09:05DROPS Design answered:
Bonjour Lucie, en taille 12/18 mois, vous commencez sur 60 mailles et augmentez 8 m au premier tour ainsi: 1 maille lisière au point mousse, 1 maille endroit, (marqueur-1), 7 mailles endroit en augmentant 2 mailles,(marqueur-2), 23 mailles en augmentant 2 mailles , (marqueur-3), 8 mailles endroit en augmentant 2mailles, (marqueur-4), 18mailles endroit en augmentant 2 mailles, ( marqueur-5), 1 maille endroit et 1 maille lisière au point mousse = 60 mailles + 8 augmentations = 68 mailles. Bon tricot!
26.02.2024 - 08:05Lucie wrote:
Bonjour, Pour le montage de la partie corps, à quel moment commencer le tricot en rond? Y a t-il une couture sur les côtés après les raglans? J’en suis au commencement de la partie A1. Merci
23.02.2024 - 10:36DROPS Design answered:
Bonjour Lucie, l'empiècement se tricote tout du long en allers et retours pour la fente d'encolure le long du raglan. Quand on divise l'ouvrage pour les manches, on continue le bas du pull en allers et retours pour tricoter le jacquard uniquement sur le devant du pull. Seules les manches vont se tricoter en rond. Bon tricot!
23.02.2024 - 14:00Stefanie wrote:
Hallo, heb je een tip om geen wirwar van garen tr bekomen als je met 5 garen tegelijk aan het breien bent?
05.01.2024 - 16:14DROPS Design answered:
Dag Stefanie,
Je zou de bollen in een schoenendoos kunnen doen en inhammen in de zijwand kunnen maken voor iedere kleur.
07.01.2024 - 13:58Barbara Beck wrote:
Hallo, ich verstehe die Anleitung nicht, wie der Ärmel zu stricken ist. Werden die 6 Maschen mit dem Rumpf Teil gestrickt, oder bleiben die stillgelegt für den Ärmel?
21.12.2023 - 17:06DROPS Design answered:
Liebe Frau Reck, diese Maschen sind für die Seiten, sie werden beim Rumpfteil gestrickt, und danach mit dem Ärmel auch. Diese Lektion zeigt, wie man so einen Pullover strickt, und ab Foto 9) wie man die Verteilung strickt, es kann Ihnen sicher helfen. Viel Spaß beim stricken!
22.12.2023 - 08:12Ingrid Widera wrote:
Hallo, ich verstehe nicht, warum das Rumpfteil in Hin und Rückreihen gestrickt wird und nicht rund? Der Schlitz ist doch bei Teilung in Ärmel und rumpfteil fertig, oder?
15.11.2023 - 20:58Ingrid Widera wrote:
Hallo, ich verstehe nicht, warum das Rumpfteil in Hin und Rückreihen gestrickt wird und nicht rund? Der Schlitz ist doch bei Teilung in Ärmel und rumpfteil fertig, oder?
15.11.2023 - 20:55DROPS Design answered:
Liebe Frau Widera, man muss hier in Reihen wegen dem Muster stricken, da das Muster A.1 nur beim Vorderteil ist, wird es in Hin- und Rückreihen weitergestrickt. Viel Spaß beim stricken!
16.11.2023 - 09:59Billie wrote:
Hi, I am knitting this jumper size 18mth. I have a question about the yoke part. I did the increase reach 188 stitches. By then the piece should be 15cm long, before dividing body and sleeves on the next row from the right side. However, my piece is 13cm long instead 15cm. Should I move on with the division anyways? Or continue knitting for 2cm while continuing the increase at each marker? Or continue knitting for 2cm with no increase? Thank you!
15.10.2023 - 12:32DROPS Design answered:
Dear Billie, as you can see in the next sentence, you haven't reached 15cm after finishing the increase; you need to work straight (with no increases) until the piece measures 15cm. Then, you will working the division. "Increase at each marker .... =168-184-188 (202-214-224-234) stitches. REMEMBER THE KNITTING TENSION! Work until the piece measures 12-13-15 (16-17-18-19) cm from the cast-on edge. " Happy knitting!
15.10.2023 - 23:16Carina Hed wrote:
Ett krångligt mönster! Svårt att förstå uppläggningarna under armarna! Enligt mönstret ska jag lägga upp 4 maskor under ärmarna 3 gånger!? I början, ca på mitten och på slutet! Annars är det jag som fattar fel.
04.10.2023 - 15:44Lis Mann wrote:
Hej og en. Tak for hurtigt svar, det blev jeg glad for. Vh Lis
17.03.2023 - 16:40
Little Fox |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með refamynstri. Stærð 1 mánaða – 8 ára.
DROPS Baby 36-14 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 - veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Öll mynsturteikningin A.1 er prjónuð í sléttprjóni. Mynsturteikningin sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Þegar prjónað er með 2 litum, prjónað er með nokkrum þráðum í hvorum lit, þá sleppur maður við löng hopp á röngu. Prjónið e.t.v. með þráðum bæði innan úr og utan með sömu dokkunni. Þ.e.a.s. í fyrsta hluta í A.1 er prjónað með 5 þráðum (1 þræði heslihneta, 1 þráður ljós beige, 1 þráður heslihneta, 1 þráðu ljós beige, 1 þráður heslihneta), síðan er prjónað 3 þráðum (1 þráður heslihneta, 1 þráður ljós beige, 1 þráður heslihneta). ATH: Til að koma í veg fyrir göt við litaskipti, þá verður að tvinna þræðina um hvorn annan. Mynsturteikning A.2 og A.3 sýnir hvar á að sauma augun með lykkjuspori í lokin. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. prjónamerki, prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 2.-3. og 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn og aukið út um 1 lykkju á undan 5. prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað fram- og til baka á hringprjón, áður en það skiptist upp fyrir ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 56-60-60 (68-72-72-76) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3,5 með heslihneta. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 1½ til 2 cm, skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 5 prjónamerki í stykkið og aukið lykkjur jafnt yfir frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 1 lykkja slétt, setjið 1. prjónamerki, prjónið 7 lykkjur slétt og aukið út 2-4-2 (2-2-2-2) lykkjur jafnt yfir, setjið 2. prjónamerki (= vinstri ermi), prjónið 21-23-23 (27-29-29-31) lykkjur slétt og aukið út 2-2-2 (1-1-2-1) lykkjur jafnt yfir, setjið 3. prjónamerki (= bakstykki), prjónið 8 lykkjur slétt og aukið út 2-4-2 (2-2-2-2) lykkjur jafnt yfir, setjið 4. prjónamerki (= hægri ermi), prjónið 16-18-18 (22-24-24-26) lykkjur slétt og aukið út 2-2-2 (1-1-2-1) lykkjur jafnt yfir, setjið 5. prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón = 64-72-68 (74-78-80-82) lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorir hlið á stykki og aukið út fyrir laskalínu í hverri umferð frá réttu þannig: Aukið út við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING, alls 13-14-15 (16-17-18-19) sinnum = 168-184-188 (202-214-224-234) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 12-13-15 (16-17-18-19) cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, setjið næstu 36-40-40 (42-44-46-48) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-6 (6-6-6-6) lykkjur undir ermi, prjónið sléttar lykkjur yfir 49-53-55 (60-64-67-70) lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 36-40-40 (42-44-46-48) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-6 (6-6-6-6) lykkjur undir ermi, prjónið sléttar lykkjur yfir 45-49-51 (56-60-63-66) lykkjur, 1 lykkja garðaprjón og fitjið upp 4-4-4 (4-4-4-5) lykkjur í lok umferðar = 108-116-124 (134-142-148-155) lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 0-0-0 (0-1-2-3) cm frá skiptingu. Nú er prjónað A.1 á framstykki þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, sléttprjón yfir 62-68-72 (76-82-84-89) lykkjur, A.1 (= 35-35-39 (46-46-51-51) lykkjur), 9-11-11 (10-12-11-13) lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið stykkið til loka með heslihneta. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 13-14-15 (17-20-23-26) cm frá skiptingu. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 2-2-2 (0-0-2-3) lykkjur jafnt yfir = 110-118-126 (134-142-150-158) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stroffið mælist ca 3 cm – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 28-30-33 (36-40-44-48) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-40-40 (42-44-46-48) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6 (6-6-6-6) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-44-46 (48-50-52-54) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 4-4-6 (6-6-6-6) lykkja sem prjónaðar voru upp mitt undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum hvoru megin við prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2-2-1½ (2½-3½-4-5) cm millibili alls 3-4-5 (5-5-5-5) sinnum = 34-36-36 (38-40-42-44) lykkjur. Þegar ermin mælist 10-12-13 (16-21-25-28) cm frá skiptingu, fækkið um 2-0-0 (2-0-2-0) lykkjur jafnt yfir = 32-36-36 (36-40-40-44) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 3 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. LASKALÍNUKANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 28 til 36 lykkjur frá réttu (deilanlegt með 4) innan við 1 kantlykkju meðfram laskalínuopi á ermi á hringprjón 3,5 með litnum heslihneta. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju garðaprjón og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar kantur að framan mælist 2 cm, felli af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið meðfram laskalínuopi á framstykki, en þegar kantur að framan mælist 1 cm fellið fyrir 4 hnappagötum á framstykki. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur brugðið saman í brugðnu einingunum, (séð frá réttu) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Saumið út augu á ref og nef með litnum svartur. Eyrun eru saumuð með lykkjuspori með litnum ljós bege eftir mynsturteikningu A.2 og A.3. Lykkjurnar eru saumaðar ofan frá og niður. Lykkja með ör og stjörnu í mynsturteikningu A.2 og A.3, á að sauma ca 2 umferðum neðan við lykkju með ör og stjörnu í A.1. Saumið kanta að framan neðst í laskalínuopi (þar sem fram- og bakstykki byrjar) – kantur að framan á framstykki á að liggja yfir kant á ermi. Saumið tölur í kant að framan á ermi. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Amber wrote:
This pattern is very badly written. Im an experienced knitter, but the instructions are too wandering to be followed easily.
13.03.2024 - 20:10