DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Tender Thoughts

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað í stroffprjóni og lykkjum sem færast til. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-9
DROPS Design: Mynstur bm-070
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL
ATH: Málin á teikningu eru gefin upp í prjónfestu í sléttprjóni (á við um fram- og bakstykki). Vegna mynsturs verður flíkin mjög teygjanleg og kemur því til með að skreppa saman um ca 20-21-22-25-28-30 cm á fram- og bakstykki þegar flíkin liggur flöt. Prjónaðu þá stærð sem þú myndir venjulega prjóna.

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-400-450-500-550 g litur 37, ljós lavender

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGRPJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 26.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 26. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð 25. og 26. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúin slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 248-264-280-312-344-376 lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino. Prjónið stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið.
Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist 13 cm í öllum stærðum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Nú byrjar tilfærslan á lykkjum á framstykki og bakstykki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í hlið og prjónamerkið situr mitt á milli 2 lykkja brugðið), * prjónið næstu 31-35-35-43-47-55 lykkjur eins og áður, A.1 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið næstu 14-14-18-18-22-22 lykkjur eins og áður, A.2 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið næstu 14-14-18-18-22-22 lykkjur eins og áður, A.3 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið næstu 31-35-35-43-47-55 lykkjur eins og áður, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið og prjónamerkið situr mitt á milli 2 lykkja brugðið) *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð, fram að fyrsta prjónamerki. Nú er 1 prjónamerki í hvorri hlið á stykki. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fram- og bakstykki skiptist fyrir framstykki og bakstykki.
Nú hafa verið auknar út 2 lykkjur við miðju að framan og miðju að aftan á framstykki og bakstykki (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð) og það hefur fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki (= alls 4 lykkjur færri í umferð).
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, heldur tilfærslan áfram af þeim 14-14-18-18-22-22 lykkjum við hvora hlið í annarri hverri umferð (eins og útskýrt er í mynsturteikningu) þar til fækkað hefur verið alls 32-36-36-36-40-44 sinnum á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 2-2-2-6-6-6 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður (tilfærslan heldur áfram eins og áður) yfir næstu 120-128-136-144-160-176 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 4-4-4-12-12-12 lykkjur (= 2-2-2-6-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið mynstur eins og áður (tilfærslan heldur áfram eins og áður) yfir næstu 120-128-136-144-160-176 lykkjur (= framstykki), fellið af síðustu 2-2-2-6-6-6 lykkjur. Klippið frá. Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka fram og til baka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 120-128-136-144-160-176 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstri, 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og tilfærsla á lykkjum eins og áður, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá handveg þannig: Fellið af 4 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 2-2-2-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-2-2-2 sinnum = 100-108-116-116-132-140 lykkjur. Þegar öll affelling fyrir handveg og tilfærslur á lykkjum hefur verið gert til loka eru 2 lykkjur slétt innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Haldið síðan áfram með stroff og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af miðju 36-36-36-40-40-40 lykkjur fyrir hálsmáli og axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 30-34-38-36-44-48 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 120-128-136-144-160-176 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur, 1 kantlykkja garðaprjón, jafnframt eru lykkjur felldar af í handveg í byrjun á hverri umferð frá handveg þannig: Fellið af 4 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-2-2-2 sinnum = 100-108-116-116-132-140 lykkjur. Þegar allar affellingar fyrir handveg og tilfærslur á lykkjum hefur verið gert til loka eru 2 lykkjur slétt innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Haldið áfram fram og til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 41-42-44-45-47-49 cm, setjið miðju 16-16-16-20-20-20 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 30-34-38-36-44-48 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.
Fitjið upp 52-52-56-56-60-64 lykkjur á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í umferð. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 50-52-58-58-62-66 lykkjur – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 11-9-8-9-9-6 cm, aukið út 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 16-17-17-19-19-20 sinnum = 82-86-92-96-100-106 lykkjur.
Þegar ermin mælist 45-44-43-41-40-38 cm, fellið af 4-4-4-12-12-12 lykkjur mitt undir ermi (= 2-2-2-6-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 78-82-88-84-88-94 lykkjur. Prjónið nú ermakúpu fram og til baka í sléttprjóni og fellið af lykkjur í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 4-5-6-4-5-5 sinnum, 1 lykkja 4-3-1-9-7-7 sinnum, 2 lykkjur 4-4-5-2-3-4 sinnum og 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni = 26-28-30-30-30-32 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 54-53-52-52-51-50 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið ofan á öxl með stuttan hringprjón 3 og Baby Merino og prjónið upp frá réttu 104-124 lykkjur í kringum kant í hálsmáli (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = málin á teikningu eru gefin upp í prjónfestu í sléttprjóni (á við um fram- og bakstykki). Vegna mynsturs verður flíkin mjög teygjanleg og kemur því til með að skreppa saman um ca 20-21-22-25-28-30 cm á fram- og bakstykki þegar flíkin liggur flöt. Prjónaðu þá stærð sem þú myndir venjulega prjóna.
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Elvira Gustke wrote:

Ich wollte mal fragen ob das Rückenteil genau so gestrickt wird wie das Vorderteil.

05.03.2023 - 22:27

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gutske, ja Vorder und Rückenteil werden genauso gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

06.03.2023 - 10:31

country flag Gurli Skattum wrote:

Kommentar! Får ikke sendt mitt spørsmål når det kun kommer opp kommentar, som ikke blir besvart. Kan jeg ringe et nr. og snakke med et menneske og ikke bare en robot? Vennligst svar meg.

27.01.2023 - 14:12

DROPS Design answered:

Hei Gurli. Vi svarer så godt vi kan og du får vanligvis svar innen 5-10 arbeidsdager (er kun 1 arbeidsdag siden du sendte dine spørsmål). Vi har ingen designer som sitter ved telefonen og kan hjelpe med å svare muntlig, men du kan fint henvende deg til butikken du har kjøpt garnet hos for å få personlig hjelp. mvh DROPS Design

30.01.2023 - 13:45

country flag Gurli Skattum wrote:

. Jeg er i gang med modell 205-9 . Ferdig med diagrammet på 16 omganger og kommer ikke videre,( ser at andre heller ikke gjør det og går sur iall tellingen) Det kan tyde på at vi mangler fortsettelsen av diagrammet. Har tidl. sendt en anmodning om å få tilsendt hele diagrammet på Mail, men ikke fått svar. Det kan ikke være meningen å komprimere oppskriftene så mye at ingen forstår dem. Vennligst send svar inkl. diagram. Mvh Gurli Skattum

27.01.2023 - 14:04

DROPS Design answered:

Hei Gurli. Kan ikke se at du har sendt inn noe Spørsmål tidligere eller lagt inn en Kommentar under denne oppskriften, eller anmodning til diagram. Det er ikke flere diagram enn det du ser på nettsiden. Når du har strikket diagrammet ferdig i høyden fortsetter du med forskyvningene av de 14-14-18-18-22-22 maskene utover mot hver side på hver 2.omgang (som vist i diagrammet) til det er felt og økt totalt 32-36-36-36-40-44 ganger i høyden. Altså, du fortsetter med å ta ut masker i midten og ta inn masker i sidene som tidligere. mvh DROPS Design

30.01.2023 - 13:40

country flag Lilly wrote:

Hej er igang med diagram men syntes ikke jeg kan få de ekstra masker ind i mønster så det giver 2 ret og 2 vrang ,skal første pind i diagram strikkes 2 gange ,el hvordan skal jeg få det til at passe ?

25.09.2021 - 11:50

DROPS Design answered:

Hei Lilly. Første pinne i diagrammet skal ikke strikkes 2 ganger, du følger radene i diagrammene. Usikker på hvorfor det blir feil hos deg, men prøv å sett maskemarkører mellom hvert diagram / maskeantall det er beskrevet i oppskriften. Da er det lettere å følge med hvor det evnt dukker opp en feil. mvh DROPS Design

28.09.2021 - 12:39

country flag Lilly Jensen wrote:

Jeg er igang med opskrift nr 205 /9 strikket diagrammet ,hvad skal jeg gøre nu ,skal jeg forsætte med at strikket diagram med mindre masker i siderne ? El hvordan skal jeg gøre er det kun midtermaskerne der skal tages ud på ? Håber på hurtigt svar Vh lilly jensen

16.09.2021 - 20:51

DROPS Design answered:

Hej Lilly. Når diagrammet er strikket færdig i højden, fortsætter forskydningen af de 14-14-18-18-22-22 masker ud mod hver side på hver 2.omgang (som vist i diagrammet). Du fortsätter alltså att ta ut maskor i mitten och ta in i sidorna som tidigare. Mvh DROPS Design

22.09.2021 - 09:09

country flag Lis Lei wrote:

Når jeg er færdig med diagrammet, hvordan kommer jeg så videre? skal jeg reducere antal masker i siderne med 1 hver anden pind( altså 35,34,33,32 etc. jeg er løbet helt sur i det! Er ellers en øvet strikker. Venlig hilsen Lis Lei.

22.09.2020 - 17:05

DROPS Design answered:

Hei Lis Lei. Når du er ferdig med diagrammet skal neste pinne skal strikkes med natur fra retten. Nå skal det strikkes riller (les forklaringen på riller) og på første pinne skal det felles 7-11 masker jevnt fordelt = 90 masker. LES FELLETIPS i oppskriften. Deretter strikkes det en pinne fra vrangen og så settes det 10 merker i arbeidet. Så skal det felles 1 maske før hvert merke fra retten, fell ved å strikke 2 masker rett sammen. Fell slik på hver 2.rille (= hver 4.pinne) totalt 4 ganger = 50 masker. God Fornøyelse!

28.09.2020 - 09:42

country flag Christine wrote:

Jeg strikker størrelse s og er nået til bagstykket. Men jeg forstår simpelthen ikke, hvordan 120 masker skal blive til 100, når jeg lukker 4+2+2+1+1=10 masker af. Så er der jo 10 for mange. Kan I hjælpe? Mvh Christine

18.09.2020 - 22:42

DROPS Design answered:

Hei Christine. Du skal felle av til ermehull på begynnelsen av hver pinne, altså 10 masker på den ene siden (4+2+2+1+1) og 10 masker på den andre siden (4+2+2+1+1)= 20 masker = 100 masker. God Fornøyelse!

21.09.2020 - 10:49

country flag Connie wrote:

Jeg havde strikket for/bagstykke, men på trods af at jeg havde forlænget den med 6 cm (jeg er 1,80), så blev den ALT for kort, så nu er den trevlet op 😥

22.02.2020 - 15:35

country flag Jeanne Holbrecht wrote:

Ik wil deze trui graag breien als kerstcadeau voor mijn dochter maar dat wordt moeilijk zonder patroon

29.10.2019 - 12:56

country flag Estera wrote:

Cudny sweterek♡♡♡...czekam z niecierpliwością na wzór!

10.10.2019 - 21:50