DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Maple Wood

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum, röndum og fölsku klukkuprjóni. Stærð S – XXXL.

DROPS 206-50
DROPS Design: Mynstur z-865
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-150-150-150-200-200 g litur 2020, ljóst nougat
100-100-100-100-150-150 g litur 618, nougat
50-50-100-100-100-100 g litur 607, ljós brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-75-75-75-75-100 g litur 20, ljós beige
50-50-50-50-75-75 g litur 12, beige
25-25-25-25-50-50 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir rúllukant.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 73 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 4,9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

RENDUR:
ATH: Allar rendur eru prjónaðar með 1 þræði Alpaca (A) og 1 þræði Kid-Silk (KS) = 2 þræðir.
RÖND 1: 6-6-6½-6½-7-7 cm með natur (A) og ljós beige (KS).
RÖND 2: 2 umferðir með ljós nougat (A) og natur (KS).
RÖND 3: 2 umferðir með natur (A) og ljós beige (KS).
RÖND 4: 6-6-6½-6½-7-7 cm með ljós nougat (A) og natur (KS).
RÖND 5: 2 umferðir með ljós nougat (A) og ljós beige (KS).
RÖND 6: 2 umferðir með ljós nougat (A) og natur (KS).
RÖND 7: 6-6-6½-6½-7-7 cm með ljós nougat (A) og ljós beige (KS).
RÖND 8: 2 umferðir með ljós nougat (A) og beige (KS).
RÖND 9: 2 umferðir með ljós nougat (A) og ljós beige (KS).
RÖND 10: 6-6-6½-6½-7-7 cm með ljós nougat (A) og beige (KS).
RÖND 11: 2 umferðir með nougat (A) og ljós beige (KS).
RÖND 12: 2 umferðir með ljós nougat (A) og beige (KS).
RÖND 13: 6-6-6½-6½-7-7 cm með nougat (A) og ljós beige (KS).
RÖND 14: 2 umferðir með nougat (A) og beige (KS).
RÖND 15: 2 umferðir með nougat (A) og ljós beige (KS).
RÖND 16: 6-6-6½-6½-7-7 cm með nougat (A) og beige (KS).
RÖND 17: 2 umferðir með ljós brunmelerad (A) og ljós beige (KS).
RÖND 18: 2 umferðir með nougat (A) og beige (KS).
RÖND 19: Prjónið með ljós brúnn (A) og ljós beige (KS) til loka.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 73-77-81-87-91-93 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í litnum natur Alpaca og 1 þræði ílitnum ljós beige Kid-Silk (= 2 þræðir).
Fyrst er prjónaður rúllukantur, þ.e.a.s. prjónið 3 sléttar umferðir.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 15-15-15-17-25-27 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 88-92-96-104-116-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan og mynstur þannig:
Prjónið A.1 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.1 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 2-3-4-6-9-10 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 14 lykkjur sem auknar er út til 24 lykkjur), prjónið 2-3-4-6-9-10 lykkjur sléttprjón (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.1 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.1 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið sléttprjón yfir 18-20-22-26-32-34 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki) og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning).
Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram með mynstur hringinn A.1 og A.X er endurtekið á hæðina) og aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-18-21-22-23-24 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem útskýrð er að ofan) = 218-246-274-290-310-322 lykkjur. Aukið síðan út einungis á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri) í annarri hverri umferð alls 5-5-3-4-5-7 sinnum = 238-266-286-306-330-350 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 5 lykkjur (= á bakstykki) eins og áður, setjið næstu 46-52-58-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 78-86-90-98-108-116 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 46-52-58-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 63-71-75-83-93-101 lykkjur sem eftir eru (= á bakstykki). Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BAKSTYKKI:
= 158-174-186-202-226-246 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í hvora hlið, mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Nú eru 84-92-98-106-118-128 lykkjur á framstykki og 74-82-88-96-108-118 lykkjur á bakstykki. Láið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau aðeins síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Byrjið umferð í hlið og byrjið með framstykki. Prjónið síðan mynstur þannig:
Prjónið 3-3-4-4-5-6 lykkjur sléttprjón (= í hlið), prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið sléttprjón og A.2 yfir næstu 68-76-80-88-98-106 lykkjur eins og áður, prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið 6-6-8-8-10-12 lykkjur sléttprjón (= í hlið), prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir næstu 58-66-70-78-88-96 lykkjur eins og áður, prjónið A.3 (= 5 lykkjur) og endið með 3-3-4-4-5-6 lykkjur sléttprjón (= í hlið).
Þegar fram- og bakstykki mælist 5 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 174-190-202-218-242-262 lykkjur. Prjónið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 29 cm frá skiptingu í öllum stærðum – stillið af eftir 6. eða 12. umferð í A.X (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð frá röngu þar sem aukið er út um 10-10-10-14-14-14 lykkjur jafnt yfir (en ekki auka út yfir kaðal) = 184-200-212-232-256-276 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið 2 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 46-52-58-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 52-58-66-68-72-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón og rendur alveg eins og á fram- og bakstykki.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 8-10-13-14-15-16 sinnum = 36-38-40-40-42-44 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-39-37-35-34-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd) – ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5. Prjónið 2 umferðir með sléttprjóni. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = stingið hægri prjóni í gegnum lykkjuna frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjunum af prjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni

symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-50

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Marta wrote:

Hello. I don’t understand this part: “ Then increase only on front and back piece (= 4 stitches increased) every other round 5-5-3-4-5-7 times = 238-266-286-306-330-350 stitches.” Where should I increase of 4 stitches ? Thanks.

21.04.2020 - 19:48

DROPS Design answered:

Dear Marta, these increases are done for the raglan on front and back piece only, this means you have to increase for raglan 5-5-3-4-5-7 more times on front and back piece (as before) but you won't increase for sleeve anymore (raglan increases on sleeves are done). Happy knitting!

22.04.2020 - 08:26

country flag FRANCOISE wrote:

J'ai ENFIN compris, merci pour votre patience. Ce pull est magnifique!!

27.03.2020 - 20:00

country flag FRANCOISE wrote:

Je repose cette question : Je comprends les 92m, je comprends les 10m de A2, je comprends les 144 mailles à faire avant et après chaque A1, mais où dois-je faire les 5 fois 4 augmentations (dos et devant seulement) puisque je fais déjà les augmentations des deux côtes des A1 qui les bordent? Le dos comprend 20 mailles au départ et le devant seulement 3 mailles? Mille excuses pour ces incompréhensions; Pouvez-vous m'indiquer un autre modèle que je peux faire avec cette laine? Merci

25.03.2020 - 12:42

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, quand vous aurez augmenté 18 fois 8 m pour le raglan, vous aurez 246 m mais l'empiècement ne sera pas terminé. Vous devez ensuite encore augmenter 5 fois 4 mailles (autrement dit, vous devez encore augmenter pour le devant et pour le dos = 1 m après A.1 au début du dos/devant + 1 m avant A.1 à la fin du dos/devant) mais plus pour les manches = 4 augmentations au lieu de 8) vous augmenterez ainsi 8 m = 246+20= vous aurez 266 m. Bon tricot!

25.03.2020 - 15:00

country flag FRANCOISE wrote:

Je comprends les 92m, je comprends les 10m de A2, je comprends les 144 mailles à faire avant et après chaque A1, mais où dois-je faire les 5 fois 4 augmentations (dos et devant seulement) puisque je fais déjà les augmentations des deux côtes des A1 qui les bordent? Le dos comprend 20 mailles au départ et le devant seulement 3 mailles? Mille excuses pour ces incompréhensions

25.03.2020 - 10:37

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, la réponse précédente a-t-elle plu éclairer cette question? Vous augmentez pour le raglan 18 fois 8 mailles (= 2 m sur chaque manche + 2 m sur le devant + 2 m sur le dos), puis ensuite uniquement sur le devant et le dos, plus sur les manches. Est-ce que vous comprenez mieux ainsi?

25.03.2020 - 11:58

country flag FRANCOISE wrote:

En fait, après réflexion, ce que je ne comprends pas c'est : - Comment faire les 10 augmentations dans A2 - Comment faire les "5 fois 4 augmentations (dos et devant seulement) Merci pour votre aide

25.03.2020 - 09:41

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, les 10 augmentations se font au 1er rang de A.2 (cf les 10 jetés) = on a ainsi 24 m pour A.X. Les 5 x 4 augmentations correspondent aux augmentations des raglans que l'on va ne faire que sur le devant et le dos: 1 m après le A.1 au début du devant/dos et 1 m avant le A.1 à la fin du devant/dos = 4 augmentations sur ces tours (aucune augmentation sur les manches). Bon tricot!

25.03.2020 - 10:16

country flag FRANCOISE wrote:

Je viens de terminer la première augmentation du raglan. Je dois continuer en répétant A1 ET AX (sur 24 mailles) et augmenter 18 fois (je fais le modèle M) au total tous les deux tours. Je ne comprends pas où augmenter et quand. Dois-je reprendre 18 fois les 8 augmentations du montage du raglan mais je n'aurai que 8 fois 18 augmentations soit 74 mailles + les 92 du col je n'arrive pas à 246 mailles à la fin de l'empiècement. Je suis perdue!! Merci

24.03.2020 - 15:42

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, pour A.2 vous allez tricoter uniquement A.X (= les torsades et plus les 2 premiers rangs), A.1 va se tricoter comme avant. Vous continuez ensuite donc en suivant A.1, A.2 et en jersey comme avant en augmentant cf RAGLAN de chaque côté de A.1 (= 1 jeté avant chaque A.1 + 1 jeté après chaque A.1) = 8 augmentations par tour, soit: 92 m + 10 augm dans A.2 + 18 fois 8 augmentations + 5 fois 4 augmentations (= dos et devant seulement) = 92+10+144+20=266 m en taille M. Bon tricot!

24.03.2020 - 17:07

country flag Valérie wrote:

Il est magnifique, serait il possible d’avoir les explications de bas en haut avec des aiguilles droites svp, j ai du mal avec des aiguilles circulaires ... Merci par avance.

02.02.2020 - 22:46

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, vous trouverez ici comment adapter un modèle pour des aiguilles droites. Bon tricot!

03.02.2020 - 10:28

country flag Maria Luisa Cevolani wrote:

I have finished your maple wood ,M size. Altogether it is a very pretty sweater, but the raglans done with your explanations don't look so nice, with the 2 series of different increases, If I do Maple Wood again, I'll do something different at the raglans, in a way that they are and look continuous

13.01.2020 - 14:48

country flag Tone Kristine Ihasee wrote:

Vil gjerne strikke genseren men uten fletten foran. Blir det rett frem med like mange masker?

29.12.2019 - 16:36

DROPS Design answered:

Hei Tone. Nei, det er flere masker i front (fordi fletten trekker genseren litt sammen). mvh DROPS design

20.01.2020 - 11:28

country flag Melanie wrote:

Wieviel Garn Alpaca und Kid Silk bräuchte ich, wenn ich den Pullover einfarbig stricken möchte? Danke.

10.12.2019 - 23:23

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an dem Laden wo Sie die Wolle gekauft haben, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!

11.12.2019 - 08:26