Ulrika wrote:
Hej, Finns det något liknande mönster i större storlekar? Eller går det att justera mönstret?
29.02.2024 - 20:40DROPS Design answered:
Hei Ulrika. For voksne kan du ta en titt på DROPS 179-2. For større barn, nei, men du kan fint justere oppskriften til større barn (design avd. har dessverre ikke mulighet til å regne det ut). mvh DROPS Design
04.03.2024 - 13:37Valérie Questroy wrote:
Re, Oui c'est bien au niveau du diagramme Au rang 15 il faut faire la nouvelle m et la suivante à l'envers, ce qui veut dire qu'au rg 16, j'ai 5 endroit. Mais au rg 17, il faut faire 2 envers, 1 endroit ... Donc ma question est est ce qu'au rg 16, je dois faire l'inverse du 15 donc 5 endroit ou préparer le rg 17 en faisant 2 endroit, 1 envers, 2 endroit Merci
20.02.2024 - 16:16DROPS Design answered:
Bonjour Mme Questroy, autant 15, vus tricotez simplement les mailles comme elles se présentent, soit sur l'envers: A.1C - 1 m end, 1 m env, 2 m end, 1 m env, A.1B: 2 m env, 1 m end, 2 m env, 1 m end et A.11: 2 m end, 2 m env, 2 m end, 1 m env, 1 m end. Bon tricot!
21.02.2024 - 08:12Valérie Questroy wrote:
Bonjour, Je suis bloqué au rang 16 et ou 17. Au rang 15, Il est dit qu'il faut tricoter ensemble, à l'envers la nouvelle maille et la maille suivante, ce qui veut dire qu'au rang 16, il faut faire 5 points endroit. Ma question est donc; est-ce qu'il faut suivre le rang 15 avec 5 mailles endroit ou suivre le rang 17 et faire 2 point endroits , 1 point envers, 2 points endroit, ...... Merci beaucoup
20.02.2024 - 15:45DROPS Design answered:
Bonjour Mme Questroy, je ne suis pas bien sûre de votre question, le rang 15 se tricote en côtes, mais dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter les rangs 7 et 8 + les rangs 13 et 14, peut-être que cela pourra vous aider? C'est probablement la partie du diagramme qui vous pose problème si j'ai bien compris. Sinon n'hésitez pas à revenir, merci pour votre compréhension. Bon tricot!
20.02.2024 - 15:56Mina Emilie Vøllestad Ødeli wrote:
Hei! Når man skal legge opp 68 masker på halsen til prematur, og generelt så blir jeg forvirret når det står inkludert 5 på hver side til maskestolpe. Er de 10 maskene en del av de 68 eller skal man legge opp til 78 masker?
07.07.2023 - 21:49DROPS Design answered:
Hei Mina Emilie Når det står at stolpemaskene er inkludert i maskeantallet vil det si at maskestolpene er medregnet med de 68 maskene. Hadde det f.eks stått: Legg opp 68 masker + 5 stolpemasker i hver side ville det ha blitt 78 masker. mvh DROPS Design
24.07.2023 - 11:23Pia Knudsen wrote:
Strikker trøjen i prematur og skal dele til ærmer, ryg og forstykker jeg har 158 masker. der deles således: 5 m ( forkant), 25 m (forstykke), 34 m (ærme) 40 m (ryg) 34 m (ærme) 25 m (forstykke) 5 m (forkant) = 168 m hvor skal jeg finde de 10 ekstra masker??
21.04.2023 - 20:58DROPS Design answered:
Hej Pia, 5m rille 20m (= forstykke), 34 erme, strikk 40m (= bakstykke), 34m erme, 20 m (= forstykke) 5m rille = 158m.
25.04.2023 - 13:37Karin Jessen wrote:
Jeg er nået til udtagning efter mønster. Kan det passe, at der skal tages færre masker i str 12-18 mdr. end str 6-9 md
18.03.2023 - 10:01Micocoule wrote:
Bonjour dans l'explication des manches, à propos du fil marqueur, ne faudrait - il pas lire "faire suivre le fil marqueur" plutôt que "faire le fil" ? Joli modèle je me suis bien régalée avec le point fantaisie.
18.02.2023 - 11:43DROPS Design answered:
Bonjour Micocoule et merci, c'est ajouté :) Bonne continuation!
20.02.2023 - 09:23Hege Flusund Beddari wrote:
Hva har jeg misforstått her... Hos meg har jakken blitt mye større foran enn bak... Strikker 1/3 mnd, og det står at bakstykke skal ha 52 masker, mens framstykkene er 31m + 31 m + knappestolpe. Jeg har ett kjempeoverlapp! Bruker baby merino.
04.01.2023 - 21:36DROPS Design answered:
Hei Hege, Forstykkene skal ha 31 masker hver (med stolpene inkludert i masketallet), 42 masker på hvert erme og 52 masker på bakstykket. Med 5 masker på hver stolpe har du 26 masker på begge forstykkene og stolpene som overlapper. Håper dette hjelper og god fornøyelse!
05.01.2023 - 07:58María Teresa Ureta wrote:
PATRÓN: Ver diagrama A.1. Los diagramas muestran todas las hileras del patrón vistas por el lado derecho. Hay un error en alemán está bien explicado
15.12.2022 - 22:46
Stroll in the Park |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Peysa fyrir börn með hringlaga berustykki og áferðamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stuttar buxur á börn með snúru og stroffi. Stykkin eru prjónuð úr DROPS BabyMerino eða DROPS Alpaca. Stærð fyrirburar til 2 ára.
DROPS Baby 33-26 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir á peysu): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11 lykkjur) = 5,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan. LASKALÍNA (á við um stærð 12/18 mán og 2 ára): Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í hverri útauknings umferð). Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi á peysu og innan á skálmum á buxum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagati í fyrstu umferð frá réttu eftir kant í hálsi. Fellið síðan af fyrir 4 næstu hnappagötum með ca 5 cm millibili. ÚTAUKNING (á við um mitt að framan og mitt að aftan á buxum): Byrjið á 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á PEYSU HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp (68) 72-78-82-84 (86) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Baby Merino eða Alpaca. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (11) 16-16-18-19 (20) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING og fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = (79) 88-94-100-103 (106) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir slétt). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1A (= 2 lykkjur), prjónið A.1B þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð (= (21) 24-26-28-29 (30) mynstureiningar með 3 lykkjum), prjónið A.1C (= 4 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og mynsturteikning sýnir. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru (148) 166-178-190-196 (202) lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 7 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið JAFNFRAMT út (10) 16-20-24-14 (12) lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = (158) 182-198-214-210 (214) lykkjur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan mismunandi eftir stærðum. FYRIRBURAR, 0/1 MÁNAÐA, 1/3 MÁNAÐA, 6/9 MÁNAÐA: Haldið áfram með sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist (9) 9-10-11 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð í sléttprjóni með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þannig: Prjónið (25) 28-31-33 lykkjur (= framstykki), setjið næstu (34) 40-42-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið (40) 46-52-56 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu (34) 40-42-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið (25) 28-31-33 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! 12/18 MÁNAÐA, 2 ÁRA: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið (án þess að prjóna lykkjurnar) þannig: Fyrsta prjónamerki er sett eftir fyrstu 33 (34) lykkjurnar (= framstykki), 2. prjónamerki er sett eftir næstu 44 (44) lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett eftir næstu 56 (58) lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett eftir næstu 44-44 lykkjur (= ermi). Nú eru 33 (34) lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Haldið áfram með sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir er aukið út fyrir LASKALÍNA í næstu umferð frá réttu – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 2 (3) sinnum. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 226 (238) lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 12 (13) cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þannig: Prjónið 35 (37) lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 60 (64) lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 35 (37) lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = (98) 110-126-134-146 (154) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist (7) 11-14-15-17 (19) cm frá skiptingu er skipt yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca (20) 24-28-30-33 (36) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (38) 44-48-52-56 (58) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með (3) 2-2-1½-1½ (1½) cm millibili alls (2) 4-6-7-9 (9) sinnum = (34) 36-36-38-38 (40) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (7) 11-14-15-18 (19) cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 3 og fellið laust af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca (8) 12-15-16-19 (20) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kanti að framan. ------------------------------------------------------- STUTTAR BUXUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Fitjið upp (96) 106-116-132-144 (152) lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino eða Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 2½ cm prjónið gataumferð fyrir snúru þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= (24) 26-29-33-36 (38) gat í umferð). Haldið síðan áfram með stroff með 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið þar til stykkið mælist 4 cm frá uppfitjunarkanti. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (10) 10-10-12-14 (18) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = (86) 96-106-120-130 (134) lykkjur. Prjónið nú upphækkun aftan á buxum eins og útskýrt er að neðan. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Til að flíkin passi betur eru buxurnar prjónaðar hærri að aftan en að framan. Þetta er gert með því að prjóna stuttar umferðir fram og til baka þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 8 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið stykki, herðið á þræði og prjónið 16 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 40 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan STUTTAR BUXUR: Haldið áfram hringinn í sléttprjóni yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar buxurnar mælast (14) 16-17-20-21 (22) cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan er sett 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = (110) 120-130-144-154 (158) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (18) 20-21-24-25 (26) cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Nú skiptist stykkið fyrir skálmar við bæði prjónamerkin. Setjið helming af lykkjum á þráð eða á hjálparprjón og prjónið skálm yfir þær lykkjur sem eftir eru eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! SKÁLM: = (55) 60-65-72-77 (79) lykkjur. Skiptið lykkjunum á sokkaprjóna 3 og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT eftir 1 umferð er fækkað um 2 lykkjur innan á skálm – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls (2) 2-2-2-3 (3) sinnum = (51) 56-61-68-71 (73) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um (5) 6-7-8-9 (9) lykkjur jafnt yfir = (56) 62-68-76-80 (82) lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina skálmina á sama hátt. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gataumferðina á buxunum og hnýtið slaufu mitt að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Daniela Zerosi wrote:
La lavorazione dello sprone mi piace molto! Sarebbe bello se le misure del cardigan potessero arrivare ai 4 anni!
29.06.2023 - 07:18