Vray wrote:
Bonsoir je ne comprends pas qu'il reste après le motif A1 6o mailles Alors qu'au début du motif il y a 66 m Merci pour votre aide Annick
30.05.2023 - 19:15DROPS Design answered:
Bonjour Annick, au 7ème tour de A.1 vous allez diminuer 2 mailles mais ne faire qu'un seul jeté (= 7 m end, 2 m end à l'end, 1 jeté, glisser 1 m à l'end, 1 m end, passer la m glissée par-dessus la maille tricotée) = il reste 10 m dans chaque A.1 soit 60 mailles au total. Bon tricot!
31.05.2023 - 08:14Anaëlle P wrote:
Bonjour, Peut-on utiliser des aiguilles circulaires pour réaliser ce modèle de chaussette ? Merci Bonne journée
19.04.2021 - 11:13DROPS Design answered:
Bonjour Anaëlle, tout à fait, vous pouvez tricoter toutes les paires de chaussettes, mitaines, moufles etc... que vous voulez en utilisant une aiguille circulaire grâce à la technique du magic loop. Bon tricot!
19.04.2021 - 11:43Hayley wrote:
Hi, thank you for your reply on 26.02. I'm a bit stuck again after finishing the heel decrease. when i pick up the 14 stitches at side of heel do i knit them? also i'm on a purl row after knitting the 15 heel stitches, does that sound right? I hope you can help, thanks again:)
03.03.2021 - 19:36DROPS Design answered:
Hi Hayley, If you are on a purl round then it is better to purl the new stitches along the sides of the heel. Happy knitting!
04.03.2021 - 07:39Hayley wrote:
Hi, thank you for your last reply. One more question - Row 5 of A1 = (knit 7, knit 2 tog, 1 yo, knit 1, 1 yo, slip 1 stitch knitwise, knit 1, pass slipped stitch over stitch worked) I run out of stitches to do the last slip stitch. Do you use the yarn over as the slip stitch? Many thanks
26.02.2021 - 09:26DROPS Design answered:
Dear Hayley, check the number of stitches on previous round, you should decrease the sts in each A.1 only on the 7th row, this means on row 3 every yarn over should be compensated by a decrease so that there are the same number of stitches in each repeat. You can add a marker between each repeat to make sure you will have always the correct number of sts in each repeat of the diagram on the round. Happy knitting!
26.02.2021 - 11:48Hayley wrote:
Hi, I am new to lace knitted and when I have completed the A1 chart (DROPS 198-18) I have 75 stitches left on my needles. Can you tell me what i'm doing wrong? Many thanks.
22.02.2021 - 14:49DROPS Design answered:
Dear Hayley, on 7th row in A.1 you will decrease 1 stitch in each repeat in the round (= knit 7, knit 2 together, yarn over, slip 1 stitch knitwise, knit 1, pass slipped stitch over stitch worked = 9 sts remain in each repeat. A.1 is now worked over 10 sts in the round and you should have 60-70 sts in the round, hope this will help. Happy knitting!
22.02.2021 - 16:07Lily wrote:
I do not understand the paragraph AT THE SAME TIME... It follows the heel decrease. Very confusing. It sounds like the top of the sock is being decreased but that is not what the photo shows. Please assist.
19.01.2021 - 19:49DROPS Design answered:
Dear Lily, after you have all 68-72-80 stitches on needle you need to decrease this number of stitches to 52-56-60 stitches. You will then decrease 1 stitch on each side of the middle 27-29-31 sts for the top of foot as described, ie decrease 2 stitches on every other round a total of 8 or 10 times depending on the size. This is for the gusset and you can see that gusset on the 3rd picture for example. Hope this helps. Happy knitting!
20.01.2021 - 07:36Stefanie wrote:
Insgesamt 2 x in der Höhe arbeiten, aber in der letzten Runde von A.2 (im letzten Rapport von A.2 in der Höhe) wie folgt stricken... ICH WEIß NICHT , WIE WEIT ICH NUN STRICKEN SOLL, WEIL A.3 A HAT JA DEN GLEICHEN RAPPORT AM ANFANG WIE A.2 AM ENDE, DANN SIND DIE BEIDEN ÜBEREINANDER? ODER STRICKE ICH NUR BIS ZUR 8TEN RUNDE UND NEHME DA MASCHEN AB? ICH HOFFE SIE VERSTEHEN MICH WAS ICH MEINE...
30.09.2020 - 11:44DROPS Design answered:
Liebe Stefanie, Sie sollen die Diagramme A.2 insgesamt 2 Mal in der Höhe stricken = 2 x 16 Reihen = 32 Runden insgesamt und bei der letzten Runde der letzten A.2 nehmen Sie wie erklärt ab. Nach der Fersen werden Sie A.3 ab 1. Reihe stricken. So werden die Diagramme in der Höhe übereinander gestrickt sein. Viel Spaß beim stricken!
30.09.2020 - 14:05Lena Silverdal wrote:
Det fungerar ej att skriva ut mönstret! Tråkigt
13.06.2019 - 16:37Lois Egenes wrote:
I am going to learn how to knit something other than vanilla sock.
05.06.2019 - 19:36
Step into Spring |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð 35 - 43.
DROPS 198-18 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 12. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR (á við um hæl): Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 15-15-17 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 72-72-80 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Nord. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 2½ cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-6-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 66-66-77 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn (= 6-6-7 mynstureiningar með 11 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 60-60-70 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 hringinn (= 6-6-7 mynstureiningar með 10 lykkjum). A.2 er prjónað alls 2 sinnum á hæðina en í síðustu umferð í A.2 (síðasta endurtekning A.2 á hæðina) er prjónað þannig: Prjónið 14-13-12 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 2-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 12-12-10 lykkjur slétt), prjónið 27-29-31 lykkjur slétt, prjónið 19-18-27 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 4-1-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 15-17-21 lykkjur slétt) = 54-58-62 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 17 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum. Haldið eftir fyrstu 12-12-10 lykkjum á prjóni, setjið næstu 27-29-31 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir 15-17-21 lykkjum sem eftir eru á prjóni = 27-29-31 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – prjónamerkið er notað síðar þegar mæla á frá lengd á fæti. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 15-15-17 hællykkjur, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, setjið 1 prjónamerki, prjónið 1-2-3 lykkjur slétt, prjónið A.3A yfir næstu 20 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.3B (= 5 lykkjur), prjónið 1-2-3 lykkjur, setjið 1 prjónamerki og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram annarri hlið á hæl = 62-72-80 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með mynstur í sléttprjóni og A.3 yfir 25 lykkjur mitt á fæti. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 27-29-31 lykkjur á milli prjónamerkja á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið 2 lykkjur á eftir seinna prjónamerki á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru ca 4-5-6 cm til loka, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Takið frá öll fyrri prjónamerki og setjið 2 ný prjónamerki í stykkið þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti (það á að vera 1 prjónamerki í hvorri hlið á sokk og prjónamerkin eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir tá). Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 5-7-11 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-4-0 sinnum = 12-12-16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-6-8 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðin í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Vray wrote:
Bonsoir je ne comprends pas qu'il reste après le motif A1 6o mailles Alors qu'au début du motif il y a 66 m Merci pour votre aide Annick
30.05.2023 - 19:15