Remmie |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð samfella og tátiljur fyrir börn úr DROPS BabyMerino með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð fyrirburar - 4 ára.
DROPS Baby 31-14 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um tátiljur): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR (á við um samfellu): PRJÓNIÐ 4 LYKKJUR SNÚNAR SLÉTT SAMAN ÞANNIG: Prjónið 4 lykkjur slétt, steypið næst síðustu lykkju sem var prjónuð yfir síðustu lykkjuna, þannig að sú lykkja liggi utan um síðustu lykkju, endurtakið þar til allar 3 lykkjur hafa verið steyptar yfir (= 3 lykkjur færri). PRJÓNIÐ 4 LYKKJUR SLÉTT SAMAN ÞANNIG: Prjónið 4 lykkjur slétt, setjið þær til baka yfir á vinstri prjón, steypið næst síðustu lykkju yfir síðustu lykkju, þannig að sú lykkja liggi utan um síðustu lykkju, endurtakið þar til allar 3 lykkjur hafa verið steyptar yfir (= 3 lykkjur færri), steypið síðustu prjónuðu lykkju til baka yfir á hægri prjón. PRJÓNIÐ 5 LYKKJUR SNÚNAR SLÉTT SAMAN ÞANNIG: Prjónið 5 lykkjur slétt, steypið næst síðustu lykkju sem var prjónuð yfir síðustu lykkju, þannig að sú lykkja liggi utan um síðustu lykkju, endurtakið þar til allar 4 lykkjur hafa verið steyptar yfir (= 4 lykkjur færri). PRJÓNIÐ 5 LYKKJUR SLÉTT SAMAN ÞANNIG: Prjónið 5 lykkjur slétt, setjið þær til baka yfir á vinstri prjón, steypið næst síðustu lykkju yfir síðustu lykkju, þannig að sú lykkja liggi utan um síðustu lykkju, endurtakið þar til allar 4 lykkjur hafa verið steyptar yfir (= 4 lykkjur færri), steypið síðustu prjónuðu lykkju til baka yfir á hægri prjón. MYNSTUR: Samfella: Sjá mynsturteikningu A.1. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Tátiljur: Sjá mynsturteikningu A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um samfellu): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út innan við 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um samfellu): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan 3 lykkjum í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju yfir eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir 3 lykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). HNAPPAGAT (á við um samfellu): Fellt er af fyrir hnappagötum á framstykki. 1 HNAPPAGAT = Prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum á báðum hliðum á stykki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat). Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist alls: 0: 3, 9 og 15 cm. 0/1 MÁN: 3, 8, 13 og 19 cm. 1/3 MÁN: 4, 10, 16 og 23 cm. 6/9 MÁN: 4, 9, 14, 19 og 25 cm. 12/18 MÁN: 5, 10, 15, 21 og 27 cm. 2 ÁRA: 6, 12, 18, 24 og 30 cm. 3/4 ÁRA: 4, 10, 16, 22, 28 og 34 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SAMFELLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fyrst er framstykkið prjónað ofan frá og niður að klofi, síðan er bakstykkið prjónað neðan frá og upp og að lokum eru axlabönd prjónuð. Stykkin eru síðan prjónuð saman í eitt stykki. FRAMSTYKKI: Fitjið upp (28) 34-38-44-48 (52-58) lykkjur á prjón 3 með BabyMerino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í síðustu umferð er aukið út um 1 lykkju = (29) 35-39-45-49 (53-59) lykkjur. Síðan er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið (6) 9-11-12-14 (16-19) lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu (17) 17-17-21-21 (21-21) lykkjurnar, endið með (6) 9-11-12-14 (16-19) lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 1 cm er fellt af fyrir 2 hnappagötum jafnt yfir (6) 9-11-12-14 (16-19) lykkjurnar í hvorri hlið á stykki (= alls 4 hnappagöt). 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Hér á að hneppa síðar axlaböndum. Endurtakið A.1 og garðaprjón á hæðina. Þegar stykkið mælist (3) 3-4-4-5 (6-4) cm fellið af fyrir hnappagötum á hvorri hlið á stykki – lesið HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist (17) 21-25-27-29 (32-36) cm er fækkið lykkjum fyrir klofi þannig – lesið ÚRTAKA: (ATH: Haldið áfram með A.1 þar til lykkjufjöldinn gengur ekki lengur upp í mynstri, þá er haldið áfram með brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur í A.1). Fækkið um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur færri) í 4. hverri umferð alls (5) 4-5-4-6 (6-5) sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls (2) 6-7-11-10 (12-16) sinnum, JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju = (14) 14-14-14-16 (16-16) lykkjur. Stykkið mælist nú ca (22) 27-32-35-38 (42-47) cm. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. Framstykkið hefur nú verið prjónað til loka. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BAKSTYKKI: Stykkið er núna prjónað áfram í garðaprjóni til loka. Nú er aukið út þannig – lesið ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur fleiri) í annarri hverri umferð alls (12) 15-17-20-21 (23-26) sinnum = (38) 44-48-54-58 (62-68) lykkjur. Stykkið mælist ca (5) 6-7-8-9 (10-11) cm frá prjónamerki. Síðan eru fitjaðar upp 11 nýjar lykkjur í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umferðum = (60) 66-70-76-80 (84-90) lykkjur. Þegar stykkið mælist (19) 24-28-30-33 (37-41) cm fellið af 16 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á 2 næstu umferðum (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) = (28) 34-38-44-48 (52-58) lykkjur. Þegar stykkið mælist (23) 28-33-36-40 (44-49) cm frá prjónamerki, prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu (6) 9-11-12-14 (16-19) lykkjur (= 1 axlaband), setjið þær síðan á þráð, fellið af næstu (16) 16-16-20-20 (20-20) lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu (6) 9-11-12-14 (16-19) lykkjur (= 1 axlaband). Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir (6) 9-11-12-14 (16-19) lykkjur þar til stykkið mælist (29) 34-39-42-47 (51-56) cm frá prjónamerki (axlaband mælist ca (6) 6-6-6-7 (7-7) cm). Fellið af. Prjónið hitt axlabandið á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í axlabandið. Saumið tölur mitt í 6 ystu lykkjur í hvorri hlið á bakstykki (= kantur að framan). ---------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. TÁTILJA: Fitjið upp 51-51-51 (51-68) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.2 (= 17 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 3-3-3 (3-4) sinnum á breidd). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 3-4-4 (5-5) sinnum á hæðina mælist stykkið ca 4-5-5 (6-6) cm. Prjónið 1 umferð sléttprjón og jafnið lykkjufjöldann til 40-44-48 (52-56) lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Prjónið síðan næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-*. Í næstu umferð eru settar fyrstu 15-17-18 (20-21) lykkjur á þráð, haldið eftir næstu 10-10-12 (12-14) lykkjum á prjóni og setjið síðustu 15-17-18 (20-21) lykkjur á þráð. Stykkið er síðan prjónað fram og til baka. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir lykkjur á prjóni í 3½-4-5 (6-7) cm (= efra stykki). Takið upp 9-11-13 (15-18) lykkjur hvoru megin við efra stykki og setjið til baka lykkjur af þráðum á prjóninn = 58-66-74 (82-92) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki eftir 29-33-37 (41-46) lykkjur (= mitt í stykki). Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka frá miðju að aftan – JAFNFRAMT eftir 2-2½-3 (3½-4) cm er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman í byrjun og í lok umferðar og hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar, endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umferð þar til einingin með garðaprjóni mælist 3-4-5 (5-6) cm. Fellið af og saumið saum undir fæti og upp að gataumferð við miðju að aftan – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. SNÚRA: Klippið 3 þræði ca 1 meter, tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman, hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna inn og út í gataumferðina á tátiljunum. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
María wrote:
Hola. Estoy haciendo el diagrama A1 pero sólo muestra las vueltas del derecho. ¿Qué tengo que hacer, por ejemplo, cuando termine la vuelta de las lazadas y puntos juntos y me toque la vuelta del revés? Gracias.
21.12.2019 - 19:47DROPS Design answered:
Hola Maria. Todos los diagramas de DROPS muestran todas las filas del patrón vistas por el lado derecho. Lee nuestra lección sobre cómo leer los diagramas: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=23
31.12.2019 - 18:13Marie wrote:
Hvor på arbejdet skal det måles? Er det midt, langs retstrik eller der hvor det måler længst? Jeg får nemlig tre forskellige mål da arbejdet buer pga. mønstret.
06.09.2018 - 07:41DROPS Design answered:
Hei Maria. Hullmønsteret blir nok såvidt litt løsere enn rillestrikken, det kan man også se på bildet. Du kan måle i rillestrikken: fra oppleggskanten til der du er kommet. Arbeidet vil etterhvert gå over til kun rillestrikk så dette vil stramme inn hullmønsteret litt i forhold til lengde. God fornøyelse.
06.09.2018 - 10:35