DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spring Princess

Prjónuð ferningspeysa fyrir börn með gatamynstri. Stærð 1 mán – 4 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyMerino.

DROPS Baby 31-13
DROPS Design: Mynstur bm-081-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-200 (200-200) g litur 44, púður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir lykkju fyrir tölu.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 1 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig:
Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri = alls 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað í hring í ferning frá miðju á framstykki og út að hálsmáli og hliðum, síðan er stykkið prjónað áfram fram og til baka. Prjónað er áfram yfir bakstykki, axlir settar saman og prjónað er niður yfir bakstykki.
Að lokum er prjónaður kantur í hring neðst niðri á peysu á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónað er ofan frá og niður, í hring á sokkaprjóna.

FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað í hring.
Fitjið upp 6 lykkjur á sokkaprjón 3 með BabyMerino, skiptið yfir á hringprjón eftir þörf. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð er aukið út þannig: Prjónið * 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* = 12 lykkjur, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið síðan A.1 alls 4 sinnum, setjið 1 prjónamerki á milli hverra eininga A.1 (= 4 prjónamerki).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 204 lykkjur í umferð (= 51 lykkja á hvorri hlið). Stykkið mælist nú ca 24 cm þar sem það er breiðast.
Fækkið nú lykkjum fyrir hálsmáli þannig:
Prjónið A.2 (= 6 lykkjur), prjónið 7-6-6 (5-4) lykkjur sléttprjón, fellið af næstu 25-27-27 (29-31) lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 7-6-6 (5-4) lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (= 6 lykkjur), A.2 yfir næstu 6 lykkjur, * prjónið sléttprjón þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, A.3 yfir næstu 6 lykkjur, A.2 yfir næstu 6 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið sléttprjón þar til 6 lykkjur eru eftir síðasta prjónamerki, A.3 yfir síðustu 6 lykkjur, klippið frá. Færið umferðina til þannig að næsta umferð byrji frá hálsi.
Prjónið nú stykkið áfram fram og til baka. Prjónið alls 10-10-12 (12-16) umferðir af A.2, A.3 og sléttprjóni. Mynsturteikning A.2 og A.3 er endurtekin á hæðina yfir ystu 6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hverju horni = 235-233-249 (247-269) lykkjur. Stykkið mælist nú ca 30-30-32 (32-34) cm þar sem það er breiðast.
Nú er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 20-19-21 (20-22) lykkjur slétt (= að 1. prjónamerki = hægri öxl), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 22-24-26 (29-31) lykkjur, setjið þær síðan á þráð (= lykkjur fyrir hægri ermi), fellið af næstu 43-41-43 (40-44) lykkjur (= að 2. prjónamerki = hægri hlið), prjónið 65-65-69 (69-75) lykkjur, setjið þær síðan á þráð (= að 3. prjónamerki = neðri kantur. Þessar lykkjur á síðar að setja saman við lykkjur frá bakstykki og gatamynstur prjónað yfir þær), fellið af næstu 43-41-43 (40-44) lykkjur (= vinstri hlið), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 22-24-26 (29-31) lykkjur, setjið þær síðan á þráð (= að 4. prjónamerki = lykkjur fyrir vinstri ermi), prjónið sléttar lykkjur yfir 20-19-21 (20-22) lykkjur sem eftir eru (= vinstri öxl. Prjónið nú bakstykki áfram yfir lykkjur þannig:

BAKSTYKKI:
VINSTRI ÖXL:
Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið upp 1 lykkju í næstu umferð frá röngu = 21-20-22 (21-23) lykkjur. Nýja lykkjan er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (innan við þessa lykkju á síðar að prjóna upp lykkjur fyrir ermi). Prjónið 2 cm sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að öxl, síðan eru fitjaðar upp 13-14-14 (15-16) lykkjur fyrir hálsmáli í lok næstu umferðar frá réttu = 34-34-36 (36-39) lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju i garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 8 cm (= 6 cm klauf), stillið af að endað sé með 1 umferð frá réttu, geymið stykkið og prjónið hægri öxl þannig:

HÆGRI ÖXL:
Prjónið eins og vinstri öxl, nema gagnstætt, þ.e.a.s. fitjið upp 1 lykkju að ermi í lok fyrstu umferðar frá réttu og fitjið upp 13-14-14 (15-16) lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar frá röngu. Þegar stykkið mælist 8 cm, stillið af að endað sé með 1 umferð frá réttu, prjónið axlir saman þannig:

Prjónið fyrst yfir lykkjur frá hægri öxl þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 32-32-34 (34-37) lykkjur brugðið, 1 lykkja garðaprjón, prjónið síðan svona yfir lykkjur frá vinstri öxl, 1 lykkja garðaprjón, 32-32-34 (34-37) lykkjur brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 68-68-72 (72-78) lykkjur. Prjónið síðan stykkið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 9-10-11 (12-13) cm fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok 2 næstu umferða = 72-72-76 (76-82) lykkjur. Prjónið síðan stykkið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Prjónið þar til bakstykkið mælist 30-30-32 (32-34) cm þar sem stykkið er lengst, stillið málið af með framstykkinu, bakstykki og framstykki á nú að vera jafn langt. Haldið lykkjum eftir á prjóni.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðar sauma í ystu lykkjubogana. Síðan er prjónaður kantur neðst niðri á peysu yfir lykkjur frá báðum framstykkjum og bakstykki þannig:

NEÐRI KANTUR:
Setjið lykkjur frá þræði neðst niðri á framstykki á sama hringprjón og lykkjur frá bakstykki = 137-137-145 (145-157) lykkjur. Prjónið nú stykkið áfram hringinn. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 7 lykkjur jafnt yfir framstykki = 144-144-152 (152-164) lykkjur. Prjónið 0-0-0 (3-4) cm sléttprjón. Prjónið síðan A.4 yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Kanturinn mælist ca 2-2-2 (5-6) cm. Stykkið mælist alls ca 32-32-34 (37-40) cm frá öxl.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. Setjið ermar frá þræði á framstykki frá annarri hliðinni á sokkaprjóna 3 (= 22-24-26 (29-31) lykkjur) og prjónið upp frá réttu 22-24-26 (29-31) lykkjur jafnt yfir bakstykki innan við 1 kantlykkju, frá öxl og niður til og með þar sem fitjaðar voru upp 2 nýjar lykkjur (þ.e.a.s. prjónið upp ca 1 lykkju í hverja og eina af 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp fyrir handveg á bakstykki) = 44-48-52 (58-62) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 4-3-2½ (2½-3) cm millibili alls 3-5-6 (8-9) sinnum = 38-38-40 (42-44) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-18-21 (26-31) cm, prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Ermin mælist ca 16-19-22 (27-32) cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan. Þ.e.a.s. prjónið upp lykkjur frá réttu frá hægri öxl á bakstykki, yfir framstykki og síðan yfir vinstri öxl á bakstykki. Prjónið upp ca 55 til 74 lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.

HNESLA:
Heklið nú lykkju/hneslu til að hneppa tölunni í gegn efst í hálsmáli á bakstykki.
Heklið 1 keðjulykkju í vinstri öxl á síðustu lykkju sem fitjuð var upp í hálsi, heklið 6 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í sömu lykkju og fyrsta. Klippið frá og festið alla enda. Saumið tölu í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni efst í hálsmáli á bakstykki á hægri öxl.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður brugðinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt
symbols = takið 2 lykkjur óprjónaðar saman eins og prjóna eigi þær slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Spring Princess

Pauline Bouteiller, United States

b31-13 Spring Princess

Christine, Canada

Spring Princess

Hanne, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 31-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Saadia Hamid wrote:

Very beautiful paatern and comes out very well

27.02.2022 - 12:23

country flag Elisa wrote:

Bonjour, J'ai réalisé l'échantillon comme conseillé, pour obtenir 10cm en largeur pour 24 mailles, j'ai dû utiliser des aiguilles 4,5 (j'ai vu dans les commentaires que vous conseillé d'augmenter de tailles d'aiguilles jusqu'à obtenir le bon nombre de centimètres) seulement, du coup, avec 34 rangs, je me retrouve avec 12cm de longueur... Comment faire s'il vous plaît ? Merci par avance, Elisa

27.11.2021 - 16:47

DROPS Design answered:

Bonjour Elisa, vous tricotez Baby Merino? Tricotez un peu plus serré (cf nuancier) puis lavez et faites sécher votre échantillon (= bloquez-le), puis mesurez- le à nouveau. Si vos mesures en hauteur/largeur ne sont pas juste, ajustez la taille des aiguilles et essayez à nouveau. Dans ce type de modèle, il est important que la hauteur soit tout aussi juste que la largeur. Votre magasin pourra vous conseiller et aura des astuces pour vous - n'hésitez pas à le contacter, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

29.11.2021 - 07:42

country flag Henna wrote:

Hei! Olen neulomassa tätä paitaa kohdassa jossa pääntien silmukat on päätelty ja työtä jatketaan tasona. En kuitenkaan ymmärrä kuinka neulotaan 10 kerrosta mallikertoja A2 ja A3, sillä näiden kuvioiden ohjeissa on vain 8 kerrosta ruutupiirrosta.

24.03.2021 - 15:18

DROPS Design answered:

Piirrosten A.2 ja A.3 mallikertoja jatketaan kuten aiemmin, eli pitsikuvio siirtyy koko ajan kohti reunoja kuten aiemmin.

24.03.2021 - 16:34

country flag Mariacristina wrote:

Schema bellissimo lo sto realizzando per la mia bimba di sei mesi. è disponibile un disegno simile anche per adulti? Grazie mille

07.01.2021 - 17:12

DROPS Design answered:

Buonasera Mariacristina, nello specifico lo stesso disegno non c'è per adulti ma questi due modelli hanno un motivo molto simile: 170-4 e 170-3. Buon lavoro!

07.01.2021 - 17:27

country flag Anna wrote:

Hallo. Die Frage gab es schon auf Englisch , aber ich konnte die Antwort nicht komplett übersetzen. Ich habe das Quadrat gestrickt. Habe abgekettet und bin einmal rum. Ich verstehe das gerade an der Stelle nicht wo ich A.3 gestrickt habe und dann den Faden abschneiden soll. Warum schneide ich den Faden ab? Und soll ich dann an der Ecke umdrehen oder soll ich noch A.2 und die Maschen bis zum angeketteten Stück stricken und dann umdrehen? Danke für sie Antwort im Vorraus

21.05.2020 - 23:31

DROPS Design answered:

Liebe Anna, am Anfang der vorrigen Runden haben Sie einige Maschen gestrickt, bevor Sie die Maschen abgekettet haben. Wenn diese Runde bis zur Ende gestrickt ist muss der Faden geschnitten sein, und jetzt in Reihen stricken, dh die Reihen beginnen jetzt links von den abgeketteten Maschen (Rückreihe), damit Sie alle Maschen von der Rückseite stricken können. Viel Spaß beim stricken!

22.05.2020 - 10:06

country flag Josie Jestis wrote:

I knit the initial square, bound off for the neck, & reattached the yarn. Do I start the first back and forth row by knitting the 7 stockinette stitches or the A.2 diagram? When I have completed the 10 rows for the smallest size, do I then work the A.2 & A.3 diagrams again? It seems like at this point I will have already worked the diagrams on the outermost 6 stitches of the corners of the square. Thanks for the clarification.

01.08.2019 - 21:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jestis, after you have worked the rows casting off the stitches for neck, cut the yarn, then turn (= next row will be worked from WS) and join yarn after the stitches cast off for neck, starting with the 7 sts in stocking st, then A.3, A.2 and so on to the 7 sts in stocking st at the end of the row. this means you are now working along the 4 sides of the square but starting from one side of neck to the other side of neck. Work a total of 10 rows inA.2/A.3. Happy knitting!

07.08.2019 - 09:31

country flag Helen - Knitter wrote:

I would like to congratulate you on your site.I knit continuously, and I would like you to know that yours is the the most professional, friendly, easy and generous site I have used.You have lots of interesting patterns, but more than that, I am able to download them.So many sites demand signup before you can even look at patterns.You cater to language and size change between countries...Thank you.I am VERY happy to recommend you to other knitters.Keep up the great site...and be proud.

13.07.2019 - 05:47

country flag Josie Jestis wrote:

Hi, I am making the DROPS Baby31-13 sweater with the drops baby merino yarn. I’ve made several swatches & my gauge is wrong. I swatched with US size 4 (3.5mm) & 5 (3.75mm). My gauges are 27 st x 36.75 rows(size 4) and 26.25 st x 32.5 rows (size 5) after washing & blocking a 6” square. You are calling for 24 st x 34 rows. For this, I’ll need to go up to size 6 or 7 and then my row gauge will be all wrong. Is the pattern gauge correct? How can I figure out what I am doing wrong?

14.06.2019 - 17:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jestis, you should try with larger needles, you might work somewhat tight - read more about tension here. Happy knitting!

17.06.2019 - 09:25

country flag Renate wrote:

Die Anleitung lässt sich nicht vollständig ausdrucken, es wird nur eine Seite gedruckt.

30.03.2019 - 09:53

DROPS Design answered:

Liebe Renate, alle Seiten sollten ausgedruckt werden, prüfen Sie mal die Druckeinstellungen, damit alle Seiten gedruckt werden. Viel Spaß beim stricken!

01.04.2019 - 12:07

country flag Maria B. Martens wrote:

Hej. Jeg er igang med den skønne Spring Princess sweater, men er nu jeg gået i stå. Jeg har strikket A.1 en gang i højden og har 204 masker på pinden. I følge opskriften skal jeg nu lukke af til hals - når jeg har gjort det, hvor mange masker skal der så være på pinden? Jeg spørger fordi jeg ikke kan få det til at passe med det antal masker jeg skal have tilbage efter at have strikket 12 pinde af diagram A.2, A.3 og glatstrik i højden over de yderste 6 masker (247 m).

19.02.2019 - 15:00