DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11946.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Drizzle

Prjónað poncho úr DROPS Alpaca og DROPS Brushed Alpaca Silk með röndum, háum kraga í stroffprjóni og snúru með skúfum, prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 171-33
DROPS Design: Mynstur nr z-762
Garnflokkur C + A eða D
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100-100-100 g litur nr 9020, ljós perlugrár
100-100-150 g nr 501, ljós grár
150-150-200 g nr 517, milligrár
Og einnig:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
75-75-75 g litur nr 02, ljós grár
75-75-75 g litur nr 03, grár

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l x 20 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 19 l x 25 umf með sléttprjóni með 2 þráðum af Alpaca verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11946.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
Allar rendur eru prjónaðar með 2 þráðum í sléttprjóni þannig:
RÖND 1: Prjónið 11-12-13 cm með Alpaca ljós grár + Brushed Alpaca Silk ljós grár.
RÖND 2: Prjónið 11-13-14 cm með Alpaca ljós grár + Brushed Alpaca Silk ljós grár.
RÖND 3: Prjónið 12-13-14 cm með Alpaca milligrár + Brushed Alpaca Silk ljós grár.
RÖND 4: Prjónið 12-13-14 cm með Alpaca ljós grár + Brushed Alpaca Silk grár.
RÖND 5: Prjónið 12-13-14 cm (þ.e.a.s. til loka) með Alpaca milligrár + Brushed Alpaca Silk grár.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 104 l) og deilið þessum l með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8 ) = 13. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 13. hverri l.

ÚTAUKNING-2:
Prjónið fram að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hvert og eitt prjónamerki sem eru eftir. Í næstu umf er uppslátturinn við miðju að framan og við miðju að aftan prjónaður slétt til að það myndist göt og uppsláttur í hliðum er prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Prjónað er í hring niður að köntum á ermum. Síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Kragi og kantur á ermum er prjónað með 2 þráðum Alpaca.

PONCHO:
Fitjið upp 104-116-120 l með 2 þráðum Alpaca í litnum ljós perlugrár á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stykkið mælist 13 cm, prjónið 1 umf þannig: Prjónið * 2 l sl, 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Prjónið nú 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þar sem auknar eru út 8-12-16 l jafnt yfir í 1. umf í garðaprjóni – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 112-128-136 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6. Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Í fyrstu umf eru sett 4 prjónamerki þannig: Setjið 1. prjónamerki í byrjun umf (= hlið), síðan eru sett hin 3 prjónamerkin með 28-32-34 l á milli hverra prjónamerkja: 2. prjónamerki = miðja að framan, 3. prjónamerki = hlið og 4. prjónamerki = miðja að aftan.
Á eftir 3. prjónamerki eru 28-32-34 l eftir í umf. Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út við prjónamerki við miðju að framan og við miðju að aftan í annarri hverri umf alls 46-50-54 sinnum og við prjónamerki á hlið í 4. hverri umf alls 20-23-27 sinnum = 376-420-460 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú skiptist stykkið í framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Setjið allar l á milli 3. og 1. prjónamerkis á þráð fyrir bakstykki = 188-210-230 l fyrir bakstykki

FRAMSTYKKI:
Nú eru 188-210-230 l fyrir framstykki.
ATH: Útaukning við miðju að framan heldur áfram í annarri hverri umf eins og áður til loka. Prjónið frá byrjun umf þannig: Fellið af fyrstu 3 l (= l á milli útaukninga í hlið og næstu 2 l), haldið áfram í sléttprjóni fram að miðjulykkju í útaukningu í næstu hlið, snúið við og fellið af fyrstu 2 l. Fellið síðan af 2 l fyrir kant á ermum í byrjun á hverri umf þar til felldar hafa verið alls 12-14-15 sinnum í hvorri hlið = 163-181-199 l. Prjónið nú 4 umf garðaprjón yfir allar l í umf. Fellið af.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka l á prjóninn = 188-210-230 l fyrir bakstykki. ATH: Útaukning hvoru megin við prjónamerki við miðju að aftan heldur áfram í annarri hverri umf eins og áður!
Prjónið og fellið af í hvorri hlið eins og á framstykki = 163-181-199 l. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið af

KANTUR Á ERMI:
Saumið með 2 þráðum Alpaca í litnum milligrár saman 4 umf garðaprjón neðst niðri á bakstykki og á framstykki með nokkrum sporum í hvorri hlið (kantur á ermum hefur nú ummál ca 24-28-30 cm). Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Prjónið upp 44-48-52 l í kringum kant á ermum á sokkaprjóna nr 4 með 2 þráðum Alpaca í litnum milligrár. Prjónið 1 umf br, Prjónið síðan stoff * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stroffið mælist 14 cm í öllum stærðum er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

TVINNUÐ SNÚRA MEÐ SKÚFUM:
Klippið 5 þræði Alpaca í litnum ljós perlugrár 3,5 metrar. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferðina á hálsi. Klippið 14 þræði Alpaca í litnum ljós perlugrár + 14 þræði Brushed Alpaca Silk í litnum ljós grár (= alls 28 þræðir) 20 cm. Þræðið í gegnum endann á tvinnuðu snúrunni og skiptið þráðunum þannig að þeir liggi jafnt. Vefjið einn þráð utan um skúfinn, herðið að og gerið hnút. Endurtakið á hinum endanum á snúrunni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.10.2016
RENDUR: Allar rendur eru prjónaðar með 2 þráðum með sléttprjóni þannig:
Yfirfarið á vefsvæði: 25.10.2016
ÚTAUKNING-2:
Prjónið fram að prjónamerki, sláið uppá prjóninn, 1 l sl (= miðju-l), sláið uppá prjóninn. Endurtakið við hvert og eitt prjónamerki sem eru eftir. Í næstu umf er uppslátturinn við miðju að framan og við miðju að aftan prjónaður slétt til að það myndist göt og uppslátturinn á hliðum er prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt.
Yfirfarið á vefsvæði: 13.12.2016
PONCHO: ...1. umf með garðaprjóni – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 112-128-136 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður brugðinn svo að það myndist gat.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Yvette wrote:

Bonjour, je suis au niveau de l'augmentation 2 mais même avec la correction le texte est le même. Si les jetés doivent être ajourés devant et au dos, et fermés dans les côtés comment doit-on faire sur le rang suivant si c’est écrit que dans les deux cas les jetés doivent être tricotés à l’endroit ?

29.11.2023 - 03:33

DROPS Design answered:

Bonjour Yvette, la correction ne sert que si vous aviez imprimé les explications avant cette date; autrement dit, les jetés des côtés se tricotent torse à l'endroit (on n'a ainsi pas de trou) et ceux du milieu devant et du milieu dos se tricotent à l'endroit pour former des jours. Bon tricot!

29.11.2023 - 08:25

country flag Ewa Ekholm wrote:

Jag undrar om avmaskningen på framstycke och bakstycke. Jag har nu 188 m på framstycket. Enligt mönstret ska jag avm först 3m sedan 2 m till ärmkant i början av varje varv till det har maskars av totalt 12 ggr i varje sida. Det borde bli 2m x 12ggr på varje sida=24+24m (minus 1m på första avm)=143 m kvar. Men i mönstret står det 163 m. Vad är det som inte stämmer?

14.03.2023 - 11:15

DROPS Design answered:

Hej Ewa. Du har 188 maskor, och du ska maska av 2 maskor i början av varje varv (förutom första gången då du ska maska av 3 maskor). Eftersom det ska minskas i början av varje varv tills det minskats totalt 12 gånger, måste det stickas 24 varv = 49 avmaskade maskor. 188 maskor - 49 minskade maskor = 139 maskor, men sedan ökas 2 maskor i mitten som förut och på 24 varv ökas det 12 ggr/24 maskor. 139 + 24 = 163 maskor. Mvh DROPS Design

16.03.2023 - 11:08

country flag Elisabeth wrote:

Jeg er i gang med forstykket og skal til at strikke de sidste 4 pinde retstrik inden jeg skal lukke af: skal jeg stadig lave hulmønster i midten imens jeg laver retstrik eller hvad?

10.03.2023 - 11:20

DROPS Design answered:

HEi Elisabeth. Nei, nå strikkes det bare 4 pinner retstrikk (uten hullmønster). mvh DROPS Design

13.03.2023 - 10:50

country flag Gabriele Haas wrote:

Hallo , bei dem poncho kommt unten am Rücken und Vorderteil 2 rippen kraus rechts in jede Masche. Es werden aber an der mitte wo normal die Zunahmen sind keine Zunahmen angegeben. Es zieht sich aber dann zusammen oder mache ich was falsch ?

15.02.2023 - 16:03

DROPS Design answered:

Liebe Frau Haas, ich verstehe leider nicht, was Sie hier meinen, wenn Sie das Vorder- bzw Rückenteil separat in Hin- und Rückreihen stricken, stricken Sie glatt rechts wie zuvor und nehmen Sie in der Mitte wie zuvor zu (Zunahmen werden glatt rechts gestrickt, bei der Rückreihe links) und gleichzeitig ketten Sie am Anfang jeder Reihe (= beidseitig) Maschen für die Ärmel. Kann das Ihnen helfen?

16.02.2023 - 11:44

country flag Marie-France Blanchette wrote:

Je comprend pas augmentation 2 1 jeté 1 end 1 jeté es-ce que je glisse le premier marqueur et je fais les aug après ou j'arrete 1 m avant le marqueur et je fais 1 jeté 1m end glisse le marqueur 1 jeté?????????

13.02.2023 - 12:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Blanchette, votre marqueur est au niveau de la maille centrale du milieu devant/milieu dos et de chaque épaule - ainsi vous ferez 1 jeté juste avant le marqueur, vous tricotez la maille suivante ( glissez le marqueur) et faites 1 jeté juste après la maille centrale. Bon tricot!

13.02.2023 - 15:48

country flag PAMELA CRAPPIER wrote:

Bonjour Je souhaiterais faire ce modèle en taille 12 ans. Pouvez vous m'aidé à adapter le patron et aussi me dire combien de pelote il me faudrait? Merci d'avance Paméla

19.07.2022 - 08:59

DROPS Design answered:

Bonjour Pamela, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande individuelle. Pour toute assistance complémentaire, vous pouvez vous adresser à votre magasin DROPS qui saura vous conseiller et vous renseigner. Bon tricot!

24.07.2022 - 15:06

country flag Yulia wrote:

Could I ask why you have chosen to increase with YO and not KFB, or M1L / M1R instead? If I use M1L or M1R, depending on what side I am increasing, what would be the downside? Thank you!

04.10.2021 - 10:30

DROPS Design answered:

Dear Yulia, we are used to increase with yarn overs, and on mid front and mid back, you are suppose to have holes created through the yarn overs worked in the front loop of stitches, feel free to increase as you rather get them to be like, creating and avoiding holes as in the pattern or avoiding holes if you don't like to get some. Happy knitting!

04.10.2021 - 15:28

country flag Elizabeth Bexell wrote:

Jag stickar stl S/M och har nu delat arbetet i fram- och bakstycke (188m till vardera). Jag ska minska i sidorna totalt 12 ggr tills jag har 163m. MEN samtidigt ska jag fortsätta ökningen på vartannat varv i mitten... Då blir det ju mer än 163 m när jag maskat av för ärmkanten. Tänker jag fel?

23.03.2021 - 17:27

DROPS Design answered:

Hei Elizabeth. Du har 188 masker, så skal du felle av 2 masker i starten av hver pinne (bortsett fra første gang da det skal felles 3 masker). Ettersom det skal felles i starten av hver pinne til det er felt totalt 12 ganger må det strikkes 24 pinner = 49 felt masker. 188 masker - 49 felt masker = 139 masker, men så økes det 2 masker midt på som før og på 24 pinner økes det 12 ganger/24 masker. 139 + 24 = 163 masker. mvh DROPS design

07.04.2021 - 11:56

country flag Mirjam Uhle wrote:

Hallo, dieser Poncho sieht so klasse aus! Ich würde ihn gerne nur mit DROPS Brushed Alpaca Silk, Nadelstärke 5 nur mit drei Farben stricken. Kann mir bitte jemand mit dem Umrechnen helfen? Wieviel Material brauche ich für Größe 40/42?

01.02.2021 - 21:57

DROPS Design answered:

Liebe Frau Uhle, der Poncho wird mit 1 Faden Brushed Alpaca Silk + 1 Faden Alpaca gestrickt, mit einer Maschenprobe von 15 M x 20 Reihe glatt rechts = 10 x 10 cm - leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder individuellen Anfrage anpassen - hier finden Sie alle Ponchos die mit Brushed Alpaca Silk gestrickt werden, von denen mit nur 1 Faden. Viel Spaß beim stricken!

02.02.2021 - 10:15

country flag Ana Merino wrote:

No entiendo la explicación del frente, una vez dividido en dos partes

04.12.2020 - 17:52