DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 172-21
DROPS Design: Mynstur nr ee-566
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
850-950-1000-1100-1200-1350 g litur nr 10, vínrauður

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít), NR 540: 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum frá neðri kanti á framstykki að miðju að aftan. Stykkin 2 eru saumuð saman við miðju að aftan. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til fá pláss fyrir allar lykkjurnar.

VINSTRA FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Fitjið upp 50-52-53-56-58-61 l á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið og að miðju að framan): Prjónið 23-25-26-29-21-24 l sléttprjón, A.1 (= 10 l) yfir næstu 20-20-20-20-30-30 l (= alls 2-2-2-2-3-3 sinnum á breiddina) og A.2 yfir síðustu 7 l. Prjónið mynstrið svona til loka.

Í næstu umf frá röngu byrjar útaukning í hlið og fitjaðar eru upp nýjar l í lok hverrar umf frá röngu þannig: Fitjið upp 1 l alls 2 sinnum og 2 l alls 5 sinnum, útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Í næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 5 l í lok umf (þessar 5 l eru prjónaðar í garðaprjóni sem kantur á ermi) = 67-69-70-73-75-78 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist nú ca 14 cm. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 34-34-36-36-38-38 cm.

Fitjið LAUST upp 22-22-24-24-26-26 nýjar l fyrir ermi í lok næstu umf frá röngu = 89-91-94-97-101-104 l. Þær 22-22-24-24-26-26 nýjar l eru prjónaðar í garðaprjóni (= 27-27-29-29-31-31 l garðaprjón í hægri hlið séð frá réttu). Prjónið 6 umf eins og áður.

Prjónið síðan sléttprjón yfir 27-27-29-29-31-31 l í garðaprjóni (= alls 62-64-67-70-64-67 l sléttprjón 20-20-20-20-30-30 l mynstur A.1 og 7 l mynstur A.2). Í næstu umf frá röngu byrjar útaukning í hlið og fitjaðar eru upp nýjar l í lok hverrar umf frá röngu þannig: Fitjið upp 2 l alls 2 sinnum og 1 l alls 8 sinnum. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Í næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 3 l í lok umf (þessar 3 l eru prjónaðar í garðaprjóni til loka) = 104-106-109-112-116-119 l. Þegar stykkið mælist 58-60-59-61-61-64 cm fækkið um 1 l fyrir hálsmáli fyrir miðju frá réttu með því að prjóna 2 síðustu l sléttprjón á undan A.1 slétt saman. Fækkið l í 4. hverri umf alls 6-6-7-7-8-8 sinnum = 98-100-102-105-108-111 l. Stykkið mælist ca 71-73-75-77-80-83 cm. Prjónið nú stuttar umf yfir l með byrjun frá hálsmáli (= ranga) þannig:

UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 10 l sl.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 10 l sl til baka.
UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 17 l sl, prjónið A.1 (= 1-1-1-1-2-2 sinnum á breiddina), sléttprjón og garðaprjón eins og áður út umf.
UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið garðaprjón, sléttprjón og A.1 eins og áður þar til 17 l eru eftir á prjóni, endið með 17 l sl.

Endurtakið umf 1 til 4 þar til stykkið mælist 78-80-83-85-89-92 cm þar sem stykkið er styst, stillið af þannig að næsta umf sé frá röngu.

UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið sl yfir fyrstu 17 l, snúið við.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 3 (= frá röngu): Prjónið sl yfir fyrstu 15 l, snúið við.
UMFERÐ 4 (= frá réttu): Prjónið sl til baka.
Prjónið yfir 2 l færri í hvert skipti sem snúið er við. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umf með garðaprjóni yfir síðustu 3 l, prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l (= miðja að aftan) JAFNFRAMT sem í umf frá röngu er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 5. og 6. l og á milli 13. og 14. l (= 2 l fleiri, þetta er gert svo að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). Fellið af með sl.

HÆGRA FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra framstykki/bakstykki nema gagnstætt. Prjónið A.3 í stað A.2 og A.4 í stað A.1.
Fækkið l og fitjið upp l í vinstri hlið á stykki (þ.e.a.s. í lok hverrar umf frá réttu). ATH: Fellt er af fyrir hálsmáli á eftir A.4 (frá réttu). Fellið af með því að taka 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

FRÁGANGUR:
Saumið saman bæði stykkin við miðju að aftan yst í lykkjubogana. Saumið saman A við B – sjá mynsturteikningu – saumið í ystu lykkjubogana. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Tölum er hneppt í gegnum göt í A.3 í hægri kanti að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = miðja að aftan
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Marie Turpaud wrote:

Bonjour .Les diminutions pour les rangs raccourcis se font sur le diagramme A2et A 1 ou apret Merci

16.04.2024 - 08:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Turpaud, quand on commence les rangs raccourcis, les diminutions doivent être terminées et l'ouvrage mesure environ 71 -83 cm (cf taille). Vous tricotez ensuite d'abord 2 rangs sur les 10 premières mailles, puis 2 rangs comme avant en continuant le diagramme comme avant pour que le motif continue à chaque fois que l'on tricote ces mailles. Bon tricot!

16.04.2024 - 13:26

country flag Nicole wrote:

Bonjour madame, au début de l'ouvrage les 5 mailles montées sur la bordure et tricotées au point mousse sont montées une fois les augmentations du bord terminées ou en même temps ?

10.11.2023 - 10:24

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, tout à fait, ces 5 nouvelles mailles sont montées à la fin du rang suivant sur l'envers, quand les augmentations sont terminées. Bon tricot!

10.11.2023 - 11:29

country flag Isabella Zaina wrote:

Buonasera, non ho capito cosa devo fare alla fine del davanti/dietro sinistro quando si dice di lavorare a ferri accorciati la descrizione dei FERRO 1, FERRO 2, FERRO 3, FERRO 4 e nemmeno le fasi successive. Vi ringrazio anticipatamente.

12.09.2023 - 23:41

DROPS Design answered:

Buonasera Isabella, in quel punto deve lavorare solo su una parte delle maglie e non su tutte le maglie sui ferri. Deve seguire le indicazioni, e lavorare solo sul numero di maglie indicato. Buon lavoro!

14.09.2023 - 20:12

country flag Christina Pernholt wrote:

Sista stycket innan avmaskning, man stickar 17, vänder, stickar tillbaka, stick 15 vänder, tillbaka sen 2 räta varv, inkl 2 omslag. men på bild verkar det vara fler än 2 räta varv innan avmaskning? eller fattar jag fel? mvh christina

02.12.2021 - 20:40

DROPS Design answered:

Hej Christina. Du ska sticka förkortade varv tills du har 3 maskor kvar ytterst ("sticka över 2 m mindre för varje gång det vänds") och när du har 3 maskor kvar ytterst så ökar du med omslag för att avmaskningskanten inte ska strama. Mvh DROPS Design

03.12.2021 - 10:49

country flag Truaud wrote:

Merci pour votre réponse rapide et si je peut abuser combien environ doit mesurer l ouvrage terminé cordialement

15.10.2021 - 09:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Truaud, retrouvez toutes les mesures dans le schéma, y compris la hauteur totale de la pièce: 79 à 93 cm selon la taille + les rangs raccourcis du haut. Bon tricot!

15.10.2021 - 13:40

country flag Truaud wrote:

Bonjour lorsque vous dites le cote le plus court est ce celui de la manche je ne comprends pas bien cordialement

15.10.2021 - 07:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Truaud, vous devez mesurer du côté où vous avez tricoté moins de rangs, si vous regardez le schéma, ce sera du côté droit, vu sur l'endroit, à partir du rang de montage jusqu'aux mailles sur l'aiguille (cf flèche), mais avant les pointillés du schéma = avant les rangs raccourcis. Bon tricot!

15.10.2021 - 08:13

country flag Haas Gabriele wrote:

Hallo, ab den verkürzten Reihen verstehe ich die Anleitung nicht mehr. Können Sie mir bitte helfen? LG

10.03.2021 - 23:02

DROPS Design answered:

Liebe Frau Haas, beim linken Vorderteil/Rückenteil beginnen Sie diese verkürzten Reihen mit einer Rückreihe - die 4 Reihen (= 2 Reihe über die 10 ersten M, 2 Reihe über alle Maschen) wiederholen, dann stricken Sie verkürzten Reihen über nur die Krausrechte Maschen (= die 17 M), dh 2 Reihe über 17 M, 2 Reihe über 15 M, 2 Reihe über 13 M, usw bis Sie 2 Reihe über die ersten 3 M gestrickt haben (Schalkragen), dann stricken Sie 2 Reihen über alle Maschen und ketten Sie dann alle Maschen ab. Viel Spaß beim stricken!

11.03.2021 - 08:20

country flag Haas, Gabriele wrote:

Was bedeutet bei verkürzten Reihen das A. 1(=1-1-1-1-2-2x in der Breite)?? Danke schonmal im voraus für die Hilfe

10.03.2021 - 20:51

DROPS Design answered:

Liebe frau Haas, wenn Sie die 3. Reihe bei den verkürzten Reihen stricken, stricken Sie alle Maschen, dh: 17 M re, A.1 (1 oder 2 x in der Breite je nach der Größe), glatt rechts und kraus rechts wie zuvor bis zur Ende der Reihe. Dann stricken Sie die nächste Hinreihe auch wie zuvor (kraus rechts, glatt rechts, A.1 und kraus rechts). Viel Spaß beim stricken!

11.03.2021 - 08:09

country flag Leila wrote:

Bonsoir, peut t'on réaliser ce modèle avec des aiguilles simple merci

31.01.2021 - 16:14

DROPS Design answered:

Bonjour Leila, cela peut etre diffcile parce que tu as beaucoup de mailles. Comment tricoter en allers et retours sur aiguille circulaire tu peux voir ICI. Bon tricot!

31.01.2021 - 19:14

country flag Gail wrote:

I just finished this and love wearing it, however, I made a couple alterations. I found there was more fabric in front than back, and the placement of the armholes was almost too far back, therefore restrictive. To remedy this, I added a short-row expansions to both the left and right halves, at the end of the pattern, thereby increasing the hem width, without increasing the whole pattern size. I also joined with a crocheted flat braided join for some elasticity. Love the drape now.

12.01.2021 - 01:45